16.12.1943
Neðri deild: 65. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 636 í C-deild Alþingistíðinda. (3118)

42. mál, dýrtíðarráðstafanir

Forseti (JörB) :

Á þessum fundi verður sennilega ekki tóm til þess að hafa fleiri mál til. afgreiðslu en á dagskrá eru. En það verða fleiri fundir í þessari hv. d., áður en þingi er lokið, og þá gefst tækifæri til að taka málið á dagskrá.