28.10.1943
Efri deild: 41. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 638 í C-deild Alþingistíðinda. (3127)

123. mál, náttúrurannsóknir

Flm. (Jónas Jónsson):

Ég geri ráð fyrir, að þetta frv. geti farið nefndarlaust gegnum hv. deild. Frv. gerir ráð fyrir, að nú verði fjórir menn í rannsóknaráði ríkisins í stað þriggja. Þeir, sem sæti eiga í ráðinu, hafa eindregið óskað eftir því, að Emil Jónsson yrði áfram í því, en Alþfl. hefði misst fulltrúa sinn úr því, hefði það ákvæði verið áfram, að aðeins þrír stærstu þingflokkarnir hefðu þar fulltrúa.