28.10.1943
Efri deild: 41. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 639 í C-deild Alþingistíðinda. (3130)

123. mál, náttúrurannsóknir

Flm. (Jónas Jónsson) :

Ég er hissa á form. Kommúnistaflokksins, að hann skuli vera óánægður yfir því að fá fulltrúa í ráðið, því að ef það hefur verið slæmt til þessa, ætti hann að geta bætt það.

Kommúnistafl. hefur nú stækkað svo, að sanngjarnt er, að hann fái að taka þátt í starfi mannfélagsmálanna. En ef þeir vilja það ekki, mun enginn sjá eftir því, og rannsóknaráðið mun engu að síður starfa, þó að þeir dragi mann sinn úr því.