28.10.1943
Efri deild: 41. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 644 í C-deild Alþingistíðinda. (3136)

123. mál, náttúrurannsóknir

Bjarni Benediktsson:

Umr. hafa nokkuð farið á víð og dreif. M. a. fullyrti hv. þm. Str., að Sjálfstfl. hefði látið sér mjög annt um að veita „koncessionir“ einhverjum mönnum, en sjálfur játaði hann, að það hefði verið svo daglegt brauð í sinni stjórnartíð, að hann gæti ekki munað eftir nöfnunum á þeim, sem hefði verið veitt einkaleyfi, svo að hann hefði ekki þurft að fara yfir í hóp sjálfstæðismanna til að finna slíkt.

Um efni málsins að öðru leyti skal það tekið fram, að mig furðar á, með hverjum ofsa hv. 5. þm. Reykv. sækir þetta mál. Hann beindi því að mér, að ég væri í hópi eins konar vesalmenna, sem færu fram á, að Alþfl. væri sýnd sanngirni, því að kommúnistum hefði á sínum tíma ekki verið sýndur sá háttur. Ég hef nú ekki látið mér sérlega annt um Alþfl., þó að það sé goð regla að láta sér annt um þá fátæku og smáu, en hv. 5. þm. Reykv. hefur ekki svo lítið talað um utangarðsmenn, að hann ætti sízt að bregða mér um vesalmennsku fyrir þetta. Ef hv. þm. telur, að þetta rannsóknaráð sé slíkt, að þm. saurgi sig á að fjalla um, hverjir eigi þar sæti, ætti það sama að gilda um hans eigin hvíthreina flokk. Hann hefur tekið ábyrgð á starfsemi ráðsins með því að skipa mann í það.

Við höfum í öðru sambandi orðið sammála um að láta Alþfl. halda sínum hlut, þar sem hann skorti atkvæðamagn til, í kosningu í útvarpsráð í fyrra.

Ég vil ítreka till. mína um, að málið fari til n. og að sú n. taki til alvarlegrar athugunar alla skipun rannsóknaráðs og flytji helzt á þessu þ. frv. um nýskipun þessa máls, þar sem vísindastofnunum vorum sé fengin meiri íhlutun um skipun þess, ef þær komast að þeirri niðurstöðu, að það sé æskilegt. Hitt liggur alveg ljóst fyrir, þó að hv. þm. Str. furðaði sig á því, að þótt atvinnudeild skili ekki neinum óhemju afköstum fyrstu árin, er það ekki nein sönnun um vanmátt hennar. Vísindastarfsemi er ekki þannig, að hægt sé að skipa nokkrum mönnum að setjast í rannsóknastól og skila miklum vísindalegum afrekum innan fárra mánaða, eins og ýmsum fannst eiga að ske, þegar atvinnudeildin var sett á stofn. Slíkt er barnaskapur, sem hlýtur að enda með vonbrigðum.