02.12.1943
Efri deild: 59. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 656 í C-deild Alþingistíðinda. (3175)

173. mál, skipulag Reykjavíkurbæjar

Jónas Jónsson:

Herra forseti. Ég flutti hér í hv. d. fyrir nokkru till. til þál. um skylt efni því, sem hér um ræðir, en með henni er afstaða skipulagsn. gerð sterkari frá því, sem nú er. Þessi till. til þál. hefur hins vegar ekki komið aftur hér til umr. Ég hef hugsað mér í sambandi við þetta frv. að gefa skýringu á mínu máli, sem væntanlega verður tekið fyrir á næsta þingi að öðru sinni.

Ég hef hér handa á milli skýrslu frá form. skipulagsn., Geir Zoega, þar sem er yfirlit yfir störf skipulagsn. frá byrjun. Það er því fróðlegt að segja það, um leið og þetta frv. er borið fram, að breyting sú, er próf. Guðmundur Hannesson beitti sér fyrir um skipulagsmál kaupstaða og kauptúna, hefur haft mikla þýðingu, og af þessari skýrslu sést það, að allir kaupstaðir og kauptún að undanteknum Reykjavíkurbæ hafa notið góðs af störfum skipulagsn., og þykir þeim þeir hafa notið frekar of lítils en of mikils af leiðbeiningum hennar. Aftur á móti hefur höfuðstaðurinn af einhverjum ástæðum ekki litið þannig á þetta. Hann hefur ekki notfært sér þetta skipulag, enda sést það nú á höfuðstaðnum, að hann er mjög illa undir það búinn að taka þeim öra vexti, sem hann er nú í, vegna þess að svo mikil mistök hafa átt sér stað í þessum sökum. Það lítur út fyrir, að forráðamenn bæjarins hafi ekki skilið eða kunnað að meta þýðingu þessa skipulags, svo að niðurstaðan hefur orðið sú, að til eru staðir hér í bænum eins og t. d. Uppsalahornið og Zoegahornið hér við Vesturgötu, sem eru glögg dæmi þess, hversu bærinn er illa undir það búinn að mæta umferðinni, eins og hún er nú orðin.

Ég ætla svo að upplýsa það, að eftir að skipulagsn. hafði starfað í 6 ár, eða frá árinu 1921–1927, lagði hún fram uppdrátt fyrir Reykjavíkurbæ, sem fékk þær undirtektir hjá bæjarráði Reykjavíkur, að það hvorki breytti eða samþ. uppdráttinn, heldur lagði hann til hliðar. Eftir árið 1930 bar hv. 6. þm. Reykv. fram frv. um það, að ef einhver bær hefði ekki samþ. skipulagsuppdrátt sinn fyrir vissan tíma, mundi uppdrátturinn alveg falla niður. Þetta náði fram að ganga og varð til þess, að Reykjavík slapp við þetta. Eftir árið 1932 var því ekkert skipulag í Reykjavík, vegna þess að hún hafði losað sig undan því, og á þeim tímum gerðist stórkostlegt hneyksli, sem ég mun víkja nánar að. Það, sem gerðist, var það, að tekin var fúamýri og byggð þar mörg hús, en klettarnir látnir standa óhreyfðir. Ýmsir merkir menn sáu, að þetta dugði ekki, og fyrir fáum árum var því gerð lagabreyt. um þetta efni, sem gaf skipulagsn. stórum bætta aðstöðu. S. l. sumar sendi skipulagsn. því bæjarstjórn Reykjavíkur aftur uppdrátt yfir miðbæinn, en bæjarstjórn leit ekki við þessu né gerði nokkrar breyt., þótt um svo merkilegt mál sé að ræða. N. sér sér því ómögulegt að gera till. um það, hvernig ríkið eigi að nota sér lóðir við Lækjargötu. Það stendur því á Reykjavíkurbæ að svara þessu, annaðhvort samþ. þennan uppdrátt eða breyta honum. Þegar svo allt er þannig í pottinn búið, kemur meiri hl. bæjarstjórnar og segir: „Viljið þið ekki vera svo elskulegir að undanþiggja okkur frá þessum l.? Það, sem farið er hér fram á, er því tóm vitleysa, sem á sér ekkert fordæmi. Það er ákaflega leiðinlegt fyrir Reykjavík að láta nokkurn mann heyra eða sjá, að hún vilji vera undanþegin landslögum. Það getur þá verið, að landið segi við Reykjavík: Ef þið viljið vera ríki út af fyrir ykkur í þessu, þá er bezt, að þið séuð það í öllu. — Ég skal ekki segja, hvort hv. borgarstjórinn, 6. þm. Reykv., er í þeim meiri hl. bæjarráðs, sem stendur fyrir því, að þetta frv. er flutt hér. En ef þetta frv. verður samþ. hér, sem er ólíklegt, þá er óhugsanlegt, að nokkur maður fáist til að vera í skipulagsn. landsins, — eins og enginn dómari mundi vilja vera í hæstarétti, ef Reykjavík væri tekin undan og sagt, að einhver sérstakur Reykjavíkurdómstóll ætti að dæma í málum manna hér í bænum. Aðrir staðir á landinu mega vita það, ef þetta gengur fram, að þá þýðir það ekki aðeins stjórnleysi fyrir Reykjavík sjálfa í þessu efni, heldur líka upplausn á skipulagi allra annarra staða á landinu, vegna þess að það verður ekki hægt að fá neina menn með frambærilega þekkingu til þess að vinna í þessum efnum fyrir aðra staði, ef búið er að lýsa því yfir, að þeir „fínu“ í Reykjavík vilji ekki nota þá, en þeir megi aðstoða „dónana“ í hinum kaupstöðunum. — Ef það eru einhverjir „fínir“ menn á þessu sviði, þá á að láta þá vera undir skipulagslöggjöf, sem gildir í þessu efni fyrir allt landið, en ekki neinn eilífan hæstarétt í þessum bæ í skipulagsmálum bæjarins.