26.11.1943
Sameinað þing: 37. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 194 í D-deild Alþingistíðinda. (3199)
111. mál, línurit yfir vegi
Flm. (Gísli Jónsson) :
Ég skal ekki hafa á móti því, að það komi línurit yfir þá vegi, sem liggja heim á bæina.
Hv. 2. þm. N.-NI. mælir með því, að till. verði vísað til n. En ég vil benda honum á, að till. var útbýtt 20. okt. og ekki tekin fyrr en þetta til umr., svo að það væri sama og að drepa málið að fara að vísa því til n. nú í þinglokin.
En það er nauðsynlegt, að málið nái fram að ganga, honum og hans sýslubúum til gagnsemdar jafnt og mér og mínum sýslubúum.