18.11.1943
Sameinað þing: 32. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 196 í D-deild Alþingistíðinda. (3209)

141. mál, kaup á efni í rafveitur

Ingólfur Jónsson:

Ég hef hér ásamt fleirum leyft mér að flytja brtt. á þskj. 320 við þá till., sem hér er til umr., að á eftir orðunum „Stokkseyrar, Selfoss“ komi: „um Rangárvallasýslu og til Vestmannaeyja“. — Það er séð, að ef Rangárvallasýsla og Vestmannaeyjar eiga að fá rafmagn, verður það að vera frá Sogsstöðinni. Ég hef talað um þetta við forstöðumann rafmagnseftirlits ríkisins, og telur hann, að þetta muni vera praktiskt, þó að Tungufoss yrði virkjaður síðar, því að það mundi ekki verða gert, fyrr en búið væri að virkja aflið úr Soginu. Það er líka víst, að þetta verður ódýrara en ef farið er að leggja í nýja stöð við Tungufoss, og eftir því starfi, sem rafmagnseftirlit ríkisins hefur nú með höndum fyrir forgöngu raforkumálan., má segja, að það sé alltaf ódýrara að reka stórar stöðvar en smáar, og þess vegna er eðlilegt, ef Alþingi tekur ákvörðun um að kaupa efni til þeirra staða, sem áður hafa verið tilnefndir, að einnig sé tekið tillit til þeirra staða, sem ég hef nefnt, og ætti þá þessi till. að ná samþykki, um leið og aðaltill., og óska ég, að þessari till. okkar verði ásamt aðaltill. vísað til fjvn.