06.09.1943
Neðri deild: 7. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 374 í B-deild Alþingistíðinda. (324)

18. mál, ríkisreikningur 1940

Fjmrh. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. Með frv. þessu á þskj. 24 er leitað samþ. á ríkisreikningnum fyrir 1940. Hefur hann legið frammi, og hafa því hv. þm. haft tækifæri til að kynna sér hann Ég tel ekki þarft að mæla frekar með þessu frv., en geri ráð fyrir, að því verði vísað til fjhn.