25.11.1943
Neðri deild: 54. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 219 í D-deild Alþingistíðinda. (3241)
100. mál, skipun mjólkurmála
Frsm. minni hl. (Bjarni Ásgeirsson) :
Herra forseti. Þessi till. til þál. á þskj. 173 er einn vitnisburðurinn um það rannsóknaræði, sem gripið hefur suma hv. þm. Þessi faraldur kom fyrst upp í haust, þegar nokkurrar mjólkurþurrðar tók að gæta. Þá var komið af stað hreinustu „paník“ með ákveðnum áróðri, og fólkið safnaðist í stórhópum framan við mjólkurbúðirnar á morgnana, eins og um væri að ræða síðasta mjólkurdropann, sem nokkurn tíma kæmi. Allt leiddi þetta af sér megnasta öngþveiti. Á Alþ. rigndi niður svo kölluðum till. til úrbóta. Lagt var til, að rannsókn yrði hafin, mjólkurstöðin yrði tekin af félagi bænda o. s. frv., og þessi gauragangur hélzt löngu eftir að nægar birgðir af mjólk voru komnar á markaðinn. Þetta fyrirbrigði er raunar ekkert nýtt um mjólkina. Á hverju ári hefur orðið mjólkurskortur á haustin, ekki aðeins hér, heldur einnig úti í sveitum, þegar kýrnar geldast.
Nú er langt liðið, síðan komið er meira en nóg af mjólk á markaðinn, en enn þá liggja þó fyrir Alþ. þrjú mál, sem risu hér á tímum mjólkurskortsins. Eitt af þeim er þessi þáltill. um rannsóknarn. mjólkurmála, sem hér er til umr. Þessir mjólkurrannsóknarpostular voru illa staddir um tíma, þar eð það sýndi sig, að þetta uppþot var ástæðulaust, en þá vildi þeim til það happ, að þeir komust í úldið kjöt suður í hraunum. Nú er það ekki svo, að mér detti í hug að halda því fram, að ekki sé margt, sem betur mætti fara. En þegar á málum er haldið með álíka sanngirni og hér er gert, þá getur maður fyllst heilagri vandlætingu. Þegar menn horfa hér upp á fiskskort á þessu fisksælasta landi og vatnsskort á vatnsauðugasta landi veraldarinnar auk stórkostlegs hörguls á rafmagni og þeir, sem mest óskapast yfir mjólkinni, minnast ekki á þetta, og þegar maður athugar, að hér hafa farið í súginn ógrynni af síld, og þegar auk þess er vitað, að ekki alls fyrir löngu var flökuðum fiski, svo að þúsundum skipti, kastað í sjóinn, og þó að fleygt sé mörgum skipsförmum af skemmdum fiski, sem búið er að hætta lífi sjómannanna til að ná í, og þegar ekkert er minnzt á allt þetta, þá eru auðséð heilindin, sem hér liggja á bak við.
En þó að ég vilji ekki taka undir þann són um nauðsyn á rannsókn mjólkurmálanna, sem hér er kyrjaður, vildi ég samt ekki leggja til, að till. yrði felld. Ég held, að við hv. 2. þm. Skagf. höfum mjög svipaða afstöðu í málinu, og höfum báðir lagt til, að gerðar verði nokkrar breyt. á þessari þáltill. Hv. þm. talaði hér í gær, en ég var raunar ekki sammála honum um eitt atriði. Okkur greinir á um nauðsynina á þessum athugunum. Ég skal geta þess, að þau ár, sem mjólkursamsalan hefur starfað, hafa ekki verið skipaðar færri en sex n. til að gera athuganir á henni. Niðurstöður þessara rannsókna hafa ekki allar verið lagðar fram opinberlega, heldur hafa þær verið lagðar fyrir ríkisstj. og hún komið athugasemdunum til hlutaðeigandi aðila, sem hafa þá reynt að bæta úr því, sem ábótavant hefur verið. Hins vegar verð ég að segja það, að þegar fram kemur till. eins og sú á þskj. 173 um enn eina rannsóknarn. í þessum málum, þá finnst mér sjálfsagt að reyna að koma henni í það form, að Alþ. geti sóma síns vegna látið málið frá sér fara. Í þessari þáltill. er gert ráð fyrir, að n. hafi rannsóknarvald samkv. 34. gr. stjskr. En ég hygg, að þessari gr. hafi sjaldan verið beitt og svo hafi verið litið á, að henni beri ekki að beita, nema mikið sé í húfi og þeir, sem henni hefur verið beitt við, hafi framið saknæmt athæfi. Verði þessi till. samþ. óbreytt, tel ég víst, að hún muni valda meiri eldi og ófriði en dæmi eru til áður. Það á eftir að koma fram, hvernig bændur líta á þetta mál. Ég sé ekki betur en svo hlyti að fara, að flestum félagssamtökum hlyti að verða stefnt fyrir eins konar rannsóknarrétt, ef till. yrði samþ. óbreytt, — mjólkursamsölunni, mjólkurbúi Flóamanna, mjólkurbúi Borgfirðinga og mjólkurbúi Hafnfirðinga. Öll þessi félög mundu verða dregin fyrir eins konar sakamálsrétt.
Hv. frsm. meiri hl., þm. A.-Húnv., lét þau orð falla, að tilgangurinn með till. hefði verið sá að koma á friðsamlegu samkomulagi neytenda og framleiðenda. Það kann að vera, að þessi hafi verið tilgangurinn, en þetta hefur þá verið mjög óheppileg aðferð, því að af þessu mun leiða meiri eld en nokkru sinni fyrr. Auk þess er vitanlegt, að eins og till. er samin, mundu þeir menn, sem ætlað er að hafa þessa rannsókn með höndum, litla eða enga aðstöðu hafa til að framkvæma hana. Alþm. eru yfirleitt svo önnum kafnir, að þeir hafa engin tök á að rækja slíkt starf. Það er alveg vafalaust, að n. þarf að vera öðruvísi skipuð en ætlazt er til í till., ef eitthvert vit á að vera í þessu, og þess vegna höfum við hv. 2. þm. Skagf. borið fram okkar brtt. Við höfum þó ekki orðið algerlega sammála um skipun n. Ég legg til í brtt. minni á þskj. 430, að n. verði aðeins skipuð þrem mönnum og sé einn mjólkurfræðingur, skipaður af atvmrh., en einn af hálfu neytenda, sem væri valinn af bæjarráði Reykjavíkur. Ég geri ráð fyrir, að bæjarráð hafi tök á að fá mann með sérþekkingu og geti því útvegað mjög vel hæfan mann. Þriðji maðurinn sé skipaður af Búnaðarfélagi Íslands, og mundi hann einnig hafa sérþekkingu á þessum málum. Ég er sannfærður um, að verði horfið til nefndarskipunar hér á þ., þá muni nefndarskipun eins og sú, sem ég legg til, verða affarasæl. Það er vitað, að fjölmennar n. ná ekki betri árangri en fámennar, nema síður sé. Ég verð þó að segja um brtt. hv. 2. þm. Skagf., að hún mundi bæta mjög um þáltill.
Þá höfum við borið fram brtt. sameiginlega við eitt atriði í þáltill. Eins og sú brtt. ber með sér, höfum við hv. þm. Skagf. reynt að ganga svo langt til móts við þá menn, sem að þessu máli standa, að þeim ætti að vera unnt að fallast á okkar till. En ég skal játa, að okkur hefur yfirsézt um eitt atriðið, sem gæti vel skilizt öðruvísi en til er ætlazt, þar sem segir: „Skylt er stj. mjólkursamsölunnar og framkvæmdastjóra hennar að veita n. allar þær upplýsingar, er hún kann að óska eftir og lúta að starfi hennar“. Ég veit, að framkvæmdastjóra samsölunnar hefur skilizt þetta svo, að honum bæri skylda til að veita allar slíkar upplýsingar, og er það ekki alveg ástæðulaust, eins og þetta er orðað. En vitanlega er það ekki tilgangurinn. Það er vitanlegt, að skyldur eins og þessar er ekki hægt að leggja á nokkurn borgar a með þáltill. Við gætum þá eins vel samþ., að hv. 2. þm. Eyf. skyldi sýna allar kvikmyndir sínar fyrir ekkert. Við getum samþ. slíkt, en honum er ekki skylt að gera það fremur en honum sýnist. Við getum samþ. á sama hátt, að sósíalistar skuli éta allt úldið kjöt í landinu, og við getum skipað mönnum fyrir um hitt og þetta, en það er ekkert vald til í landinu, sem geti neytt þá til að framkvæma þær fyrirskipanir. En sjálfsagt er að láta það koma fram, sem fyrir manni vakir um það, hvar eigi að afla þessara gagna, og ég efast ekki um, að framkvæmdastjóri mjólkursamsölunnar og stjórn hennar muni fúslega láta n. í té þær upplýsingar, sem hún verður beðin um. Ég vil aðeins brýna það fyrir þeim mönnum, sem eru heilir í þessu máli, að vilji þeir fá eitthvað að gagni út úr þessari rannsókn, samþ. þeir brtt. okkar hv. 2. þm. Skagf. og þá sérstaklega þá brtt., sem ég flyt sjálfur.