29.11.1943
Neðri deild: 55. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 234 í D-deild Alþingistíðinda. (3249)

100. mál, skipun mjólkurmála

Skúli Guðmundsson:

Hv. 2. þm. N.-M. hefur nú tekið fram nokkuð af því, sem ég hafði ætlað mér að ræða um. En þó vil ég fara um þetta mál nokkrum orðum.

Í grg., sem fylgir þessari þáltill. um rannsóknarnefnd mjólkurmála, er því haldið fram, að í þessum málum sé margt á huldu og margir hlutir óupplýstir. Það lítur út fyrir, að annaðhvort sé hv. flm. þáltill. svo fáfróður um þessa hluti, að hann viti ekkert um það, að í þessi átta ár, sem mjólkursamsalan er búin að starfa, hafa farið fram athuganir og rannsóknir á þessu fyrirtæki a. m. k. sex sinnum, — eða þá að hann kærir sig ekkert um að hafa það, sem sannast reynist í hverju máli, og halda því fram.

Ég vil gera nokkra grein fyrir því, hverjar þessar athuganir hafa verið á þessum málum og hvenær þær hafa farið fram. Ég vil þá fyrst, áður en að því kemur, benda á það, að mjólkursölun., sem einnig starfaði sem stjórn samsölunnar, var, frá því að samsalan hóf starf sitt í janúar 1935 og til vors 1943 — eða í átta ár —, skipuð fulltrúum, ekki aðeins frá bændum og mjólkurbúum á verðjöfnunarsvæðinu, heldur einum fulltrúa frá Alþýðusambandi Íslands og fulltrúa frá bæjarstjórn Reykjavíkur, þannig að þessir aðilar hafa á hverjum tíma öll þessi ár haft hið ákjósanlegasta tækifæri til þess að fylgjast með gangi þessara mála og hafa vitanlega gert það.

Ég vil þá minnast nokkuð á nefndir þær og einstaklinga, sem á þessu tímabili hefur verið falið að rannsaka mjólkurmálin og allt, sem snertir samsöluna.

Í fyrsta lagi er sjö manna n. kosin 16. des. 1935, eftir að samsalan hafði starfað tæplega eitt ár. Í þeirri n. voru fulltrúar frá a. m. k. þremur stjórnmálaflokkum. Og þessi n. skilaði sameiginlegu áliti, eftir að hún hafði starfað að rannsókn málsins. — Þá er önnur n., sex manna n., skipuð 16. janúar 1936 til þess að endurskoða mjólkurlögin. Í þessari n. átti sæti einn mjólkurfræðingur og menn úr fjórum stjórnmálaflokkum. — Þriðja n. er skipuð í janúarmánuði 1938, tveim árum síðar. Þá n. tilnefndu mjólkurbúin, og voru í henni menn úr þremur stjórnmálaflokkum. Var n. falið að athuga ýmis atriði varðandi framkvæmdir þessara mála. — Ekki er allt búið enn. Næsta ár var skipuð fimm manna n. 14. október 1939, til þess að athuga sérstaklega einn þátt málsins, sem einkum snerti framleiðendur í nágrenni Reykjavíkur. Formaður hennar var löggiltur endurskoðandi. — Meira þurfti að rannsaka. Í fimmta lagi var skipuð n. 18. janúar 1940 til að athuga mjólkurmálið í heild, og skyldi hún athuga, hvernig sölufyrirkomulagið hefði reynzt og hver áhrif þess hefðu orðið á ýmsum stöðum í þau fimm ár, síðan skipulagið kom til framkvæmda, og hvað hugsanlegt væri að gera til umbóta í sambandi við fengna reynslu. Þessi fimm manna n. skilaði mjög ýtarlegu áliti. Og svo loks í sjötta lagi, — til þess að fylla nú kúgildið, — var á fundi, sem stjórnir allra mjólkurbúanna á verðjöfnunarsvæðinu og mjólkursölunefndin héldu að tilstilli þáverandi landbrh. og atvmrh., HermJ og ÓTh, í október 1940 til þess að ræða mjólkurmálið, samþ. í einu hljóði að fara þess á leit við ríkisstj., að hún réði Stefán Björnsson mjólkurfræðing til gaumgæfilegrar athugunar á máli þessu, þar með talið rekstri mjólkursamsölunnar og mjólkurbúanna. Ríkisstj. fékk Stefán Björnsson til þess að vinna að þessari athugun, og skilaði hann ýtarlegu áliti, sem dagsett er 12. maí 1941. — Til viðbótar þessu má svo benda á, að alla tíð, frá því að mjólkursamsalan tók til starfa, hafa reikningar hennar verið endurskoðaðir af löggiltum endurskoðanda, Birni E. Árnasyni. — Og nú kemur hv. þm. Snæf. (GTh) og segir: Þrátt fyrir allar þessar athuganir er margt á huldu í sambandi við þetta mál og margir hlutir óupplýstir. Það þarf að skipa eina n. enn til þess að rannsaka þessi mál. En það er ekki til þess að fá neitt upplýst, því að lítil von virðist til, að neitt verði betur upplýst en búið er í sambandi við þessi mál með öllum þeim mörgu n., sem skipaðar hafa verið mönnum úr mörgum flokkum. Ég efast um, að það takist að svipta þeirri hulu, sem hv. þm. Snæf. og aðrir slíkir tala um, að sé yfir þessum málum, þó að ein n. enn yrði skipuð til þess, ef það hefur ekki tekizt með þessum sex nefndum á þessum átta árum. En eftir till. hans á nú að skipa eina n. enn í þetta þrátt fyrir allar þessar athuganir.

Ég held, að það hljóti öllum að vera ljóst, að það, sem hér er á ferð, er ekki fram borið, vegna þess að það sé í þessum efnum þörf rannsóknar. Málið hefur verið svo margrannsakað og þaulrannsakað, að það er engin þörf á slíku nú. Þessi þáltill. er til orðin af allt öðrum ástæðum. Og ég vil víkja nokkuð að því, af hverju hún er fram borin, hverjar orsakir þar raunverulega liggja til.

Það mun hafa verið lítils háttar vöntun á mjólk hér í bænum nokkrar vikur í haust, eins og stundum hefur komið fyrir áður. En ég tel það vafalítið, að þessi mjólkurskortur hér í bænum í haust um skamman tíma hafi ekki verið til muna meiri en víða annars staðar á landinu. Það er svo á mörgum sveitaheimilum hér á landi, að það er lítið um mjólk snemma hausts, áður en snemmbærar kýr bera, og sama sagan er í ýmsum kaupstöðum og kauptúnum þessa lands, þó að á öðrum tímum árs sé sæmilega auðvelt fyrir menn að fá svo míkla mjólk sem þeir vilja. Ég er sannfærður um það, að mjólkurskorturinn hefur verið tiltölulega minni hér en víða annars staðar á landinu. Þessi mjólkurskortur er auk þess að verulegu leyti tilbúinn af dagblöðunum í Reykjavík. Þegar þau klifa á því, að mjólkurskortur sé í bænum, og hamra á því dag eftir dag og viku eftir viku, verður það til þess, að ýmsir fara að reyna að ná í meiri mjólk en þeir annars mundu gera. Og þetta veldur troðningi við mjólkurbúðirnar og ýmsum óþægindum, sem verða til þess, að sumir verða út undan, sem annars mundu fá viðunandi skerf af þessari vöru. Sósíalistar hafa einkum haft forgöngu í þessum aðfinnslum og þeim hvalablæstri, sem hefur verið hér í bæ út af þessu máli. Þeim virðist um þessar mundir vera sérstaklega uppsigað við fyrirtæki bænda, samvinnufélögin og önnur fyrirtæki bænda. Og þeir vilja með því að flytja hér á Alþ. sitt mjólkurfrv., sem frægt er að endemum, og með því að þeyta lúðurinn í blaði sínu um allt það ólag, sem þeir telja vera á þessum málum, vinna á móti fyrirtækjum bænda. Alþfl. vill vitanlega ógjarnan vera minni og tekur því undir sönginn í blaði sínu, og þeir hafa einnig látið ljós sitt skína í þinginu mennirnir, sem fastast hafa haldið því fram, að verkamenn ættu að fá að hafa viðskipti við setuliðið, sem hér dvelst. Þeir vilja banna bændum öll viðskipti við það og jafnvel ganga svo langt, að leggja til, að hætt sé að selja sjúkum mönnum mjólk, ef erlendir eru.

Og þá kem ég að þætti Sjálfstfl. Auðvitað telur hann sér ekki annað fært en taka undir sönginn, — ekki til þess að halda fram því, sem rétt er, að þetta mál sé margrannsakað og að þeir, sem eitthvað vilja vita, ættu að byrja á því að lesa það, sem þær n. hafa álitið, er að þessu hafa starfað, — nei, í stað þess að lagfæra sönginn lendir hann á sömu fölsku nótunum og kveður og kyrjar þær af fullum hálsi, eins og orkan leyfir. Og af því að hann þarf að hafa sitt mjólkurmál í þinginu, — vitanlega eins og hinir, — lætur hann einn af bæjarfulltrúum sínum í Reykjavík, sem á sæti hér, flytja till. um pólitíska rannsókn á mjólkursamsöluna og mjólkurbúin.

Ég hef þegar gert grein fyrir því, hve ástæðulaust allt þetta rannsóknarbrölt er, og hv. 2. þm. N.-M. hefur gert það einnig. Málið er fullrannsakað og þaulathugað. Það er vitað, að sölukostnaður samsölunnar hér í Reykjavík er miklu minni en hjá flestum, ef ekki öllum öðrum fyrirtækjum hér á landi, sem verzla með nauðsynjavörur. Þetta mál, sem hér liggur fyrir, er því ekki til þess að fá upplýsta þessa hluti, því að upplýsingar liggja þegar fyrir, ef hv. flm. þessa máls og aðrir slíkir bara nenntu því að kynna sér þau gögn, sem lögð hafa verið fram, heldur er þetta mál einn þáttur í þeim ofsóknarherferðum, sem nú eru svo mjög tíðkaðar gegn bændum og fyrirtækjum þeirra. Og þetta mál hefur gripið svo um sig, að meira að segja menn, sem sæti eiga hér á þingi sérstaklega fyrir sveitakjördæmi, hafa tekið þátt í þessum aðförum. Þannig hefur t. d. hv. þm. A.-Húnv., Jón á Akri, látið ginna sig til þess að taka þátt í þessum ofsóknum gegn fyrirtækjum bændastéttarinnar. Hann hefur verið ginntur svo langt, að hann meira að segja gengur fram fyrir skjöldu og gerist frsm. af hálfu þeirra manna, sem fyrst og fremst standa að þessum ofsóknum og eiga þar upptökin. Og svo rís hv. þm. A.-Húnv. hér upp ósköp sakleysislegur og segir: Ef allt er í lagi hjá þessum fyrirtækjum, er þetta bezt fyrir þau. Það er bezt fyrir samsöluna sjálfa, að rannsókn þessi fari fram, ef allt er í lagi, það er bezt fyrir hana sjálfa, að einni rannsóknarn. enn sé bætt við allar hinar sex, sem hafa starfað. — Ég vil bara vekja athygli á því, að þessar aðfarir, ef þær halda áfram ár eftir ár, geta orðið til þess m. a. að hrekja burt frá þessum fyrirtækjum þá starfskrafta, sem þau hafa nú og vitanlega ekki fá án verið. Það eru vitanlega takmörk fyrir því, hvað bjóða má þeim mönnum, sem veita þessum fyrirtækjum forstöðu og vinna við þau. Það er mjög vafasamt, ef þetta eru starfhæfir menn og eiga þess kost að vinna við fyrirtæki, sem eru látin nokkurn veginn í friði við störf sín, að þeir láti bjóða sér slíkt margendurtekið, þar sem til þess er ætlazt, að þeir eigi að vera á þönum fyrir þessar rannsóknarn., sem stöðugt er verið að kjósa og skipa og þessum starfsmönnum er fyrirskipað að láta upplýsingar í té. Það er hægt að eyðileggja fyrirtæki með því að láta þau engan starfsfrið hafa og hrekja þannig frá þeim þá menn, sem fyrir þau vinna. Sennilega er það þetta m. a., sem fyrir þeim mönnum vakir, er fyrir þessum málatilbúnaði standa. En hitt er öllu merkilegra, þegar þeir menn, sem valdir eru á þing úr sveitakjördæmum og telja sig til þess kosna fyrst og fremst að vera málsvarar framleiðenda í sveitum, láta ginna sig sem þursa til þess að taka þátt í þessum leik.