02.12.1943
Neðri deild: 57. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 253 í D-deild Alþingistíðinda. (3261)
100. mál, skipun mjólkurmála
Jörundur Brynjólfsson:
Það skulu ekki verða mjög mörg orð, sem ég legg til þessa máls, og ég hefði ekki staðið á fætur til að leggja orð í belg, ef hv. þm. Hafnf. hefði ekki kallað þau fram, en nú er hann ekki viðstaddur, og get ég því látið ósagt margt af því, sem ég hefði annars viljað við hann tala. En ég tel óhjákvæmilegt að víkja nokkrum orðum að því, að hann vildi láta það líta út sem ég væri af ásetningi að tefja þetta mál, sem nú er til umr., 100. mál.
Þá er það fyrst að segja, að um deilumál hefur sá háttur jafnan verið hafður á að haga umr. um þau á þann veg, að önnur mál liðu ekki stórkostlega við, þ. e. önnur mál, sem ekki er mikill ágreiningur um, því hafa þau verið höfð framar á dagskrá og reynt að þoka þeim áleiðis. Ég veit ekki til, að nokkurn tíma hafi verið fundið að þessu, enda einkennileg vinnubrögð, ef stöðva ætti störf þingsins með því að láta eitt eða tvö ágreiningsmál jafnan sitja í fyrirrúmi. Þá gæti tekizt þannig til, að n. gætu ekki sinnt undirbúningi annarra mála og þingstörf þannig tafizt um langa stund. Nú verður oft svo, að þótt ekki sé búizt við löngum umr. um mál, þá verða þær lengri en búizt var við. Þannig hygg ég, að hver sem ræður umr. á þingi, geti þm. umborið slíkt og mætt slíkum hindrunum með fullum skilningi.
En ef einhver skyldi halda, að eitthvað væri hæft í því, sem hv. þm. var að álasa forseta fyrir, að þetta mál hefði verið tafið af fjandskap við það og hann hefði einnig hagað sér á sama hátt um meðferð svo kallaðs mjólkurfrv., þá er það að segja, að þessi mál eru skyld, bæði ágreiningsmál og fyrir séð, að um þau yrðu miklar deilur. Einu sinni spurði hv. 1. flm. mig, hvort ég gæti ekki reynt að greiða fyrir því, að umr. um það yrði lokið, og sagði ég honum, að ég gæti haft kvöldfund um málið. Þetta kvöld var svo málið tekið fyrir, og var það gegn ströngum mótmælum sumra þm., að sá fundur var haldinn, en engu að síður tók ég til minna ráða til þess að fá málið afgr. Ég veit ekki, hvort hv. þm. Hafnf. var viðstaddur í það skipti. En það skiptir ekki heldur máli. Það hefði betur farið, að hann hefði ekki borið á mig sakir fyrir meðferð þessa máls.
Svo að ég víki að mjólkurfrv. svo nefnda, þá er það að segja, að þskj. var útbýtt 13. okt., það var ákveðin umr. um það 14. okt., á 32. fundi í Nd. Á 33. og 34. fundi var svo annað ágreiningsmál til umr., sem var fast sótt, að fengi afgreiðslu, olíumálið svo nefnda. Á 35. fundi, 21. sama mánaðar, var það svo tekið á dagskrá samkv. ósk hv. flm. Hinn 25. var það svo aftur tekið til meðferðar, en umr. frestað og málinu vísað til landbn.
Nál. meiri hl. landbn. var útbýtt 1. nóv., en þá kom fram fjárlfrv. Nál. minni hl. kom fram 17. nóv. Þá hafði ég átt tal við minni hl. og óskað þess, að hann kæmi með álit sitt, svo að ég gæti tekið málið fyrir á dagskrá. Svo var það tekið fyrir á dagskrá á 42. fundi í Nd. og þar næst á 43. fundi, þá á 45. fundi, 46. fundi og 47. fundi, en þá var ekki nema ein klst. til umr., því að þá átti að hefjast fundur í Sþ., og vannst því ekki tími til að ræða það. Þá var reynt að stilla svo til að taka þau mál, sem litlar umr. yrðu um.
Á 51. fundi var svo 100. málið á dagskrá, en þá vannst ekki tími til að ræða það, og á 53., 54., 55. og 56. fundi var það ætíð til umr.
Ég ætla, að með þessari skýrslu hafi ég sýnt, að þetta mál hafi ekki verið haft út undan. Það er ekki á valdi forseta að stytta meðferð mála með því að taka orðið af þm. Þá er annað ráð, en það er að halda kvöldfundi, en það skirrist maður við að gera, nema maður finni, að það sé vilji þm. og von um, að málin fái þá afgreiðslu.
Um þetta mál er það að segja, að af hálfu fylgismanna þess hefur aldrei verið borin fram ósk um, að því væri flýtt frekar en gert hefur verið, nema af hv. 1. flm. einu sinni, og ég sagði honum, að það yrði á næstu dagskrá, og þá var það rætt.
Það er að vísu hægt að grípa til þeirra ráða að stytta umr., þegar þær eru langar. En ef afgreiðsla mála er mikil og eitthvað, sem verulega skiptir máli, þá hef ég skoðað afstöðu forseta þannig, að hann gæti ekki gripið inn í málin, nema þm. óskuðu þess eða hann teldi — samkvæmt eðli málsins — ekki máli skipta, hvort umr. væru langar eða skammar. En þá þarf maður einnig að geta fært fyrir því rök, að þannig sé ástatt um málið. Ég hefði samt sem áður, þótt málið hafi sætt þeirri meðferð, sem venja er til, haldið kvöldfundi til að ræða það, ef nokkur ósk hefði komið fram um að flýta málinu frekar en gert hefur verið. Ég ætla líka, að svo muni ganga bezt, að mál, sem ekki er mikill ágreiningur um, séu látin sitja í fyrirrúmi fyrir ágreiningsmálum, en ekki allt látið stöðvast þeirra vegna. Og svo mikið er víst, að hv. þm. Hafnf. hefur ekki vikið einasta orði að því, að flýta bæri þessu máli fremur öðrum. Af því að hann setti þetta mál í samband við það, sem lá í landbn., þá skilst mér sem það mætti vera þess nokkur von, að af hans hálfu væri komin afgreiðsla á því. Því var vísað til n. 25. f. m., en nú er 2. des., og bólar ekki á því enn. Ég er ekki að deila á landbn. Ég þykist vita, að hún hafi til þess ríkar ástæður.
Mér fannst koma fram í ræðu hv. þm. Hafnf., að hann teldi samband milli þessa máls og þessarar till. til þál. En það get ég tæpast skilið. Ég ætla, að hv. þm. hafi þá ekki kynnt sér nægilega, hvert verkefni þessarar n. á að vera, ef eftir niðurstöðum þess átti að bíða, svo að hægt væri að afgreiða þessa till. til þál.
Úr því að ég varð að taka til máls, hefði ég vikið fleiri orðum að ræðu hv. þm. Hafnf., ef hann hefði verið við. En ég geri það ekki, þar sem hann er fjarverandi. Aths. og skýringar við ræðu hans hafa komið fram hjá öðrum hv. þm., svo að ég get látið það vera. En það hefði ekki verið tiltökumál, þótt ég hefði látið mig málið skipta, þar sem svo mjög var deilt á mig og starf mitt sem forseta. En þar sem haldið hefur verið fram fullkominni sókn gegn þeim ásökunum, sem fram hafa komið, — ekki af mér, heldur af tveimur öðrum hv. þm., — og svo vel á þeim málstað haldið, hef ég ekki fyrr tekið til máls. Ég hefði vikið nokkrum orðum að till. hv. þm. Snæf., ef hann hefði verið viðstaddur, en vegna fjarveru hans geri ég það ekki, enda býst ég við, að það eitt komi fram hér eftir í þessu máli, sem litlu skiptir.
Ég hefði viljað geta mér þess til, að hann hefði borið till. sína fram í góðu skyni og ætlun hans hefði verið sú að lægja þær öldur, sem nú hafa risið út af mjólkursamsölunni. Sömuleiðis hafði ég viljað færa það til ókunnugleika hans, að till. var svo orðuð sem hann flutti hana. Þess vegna furðaði ég mig mjög á því, að í ræðu hv. þm. A.-Húnv. kom það fram, að till. hafði verið borin fram í samráði við marga, sem átt hefðu að vera kunnugri þessum málum en hv. þm. Snæf. Það er því furðulegra, þar sem fleiri fjölluðu um frv., að enginn skyldi festa augun á annmörkum þess.
Ég ætla, að einu sinni áður hafi svipað mál verið hér í þinginu. Þar var um að ræða mann, sem orðið hafði fyrir persónulegri ofsókn. Þar þótti um að ræða svo stórkostlegt réttarfarslegt hneyksli, að ekki væri annað fært en Alþingi léti málið til sín taka, og þótti varða við 34. gr. stjórnarskrárinnar.
Þegar þetta mjólkurmál kom fram hér, var ekki við öðru að búast en þm. tækju upp vörn fyrir þá umbjóðendur sína, sem stefnt var að. Það er mjög mikilvægt, að góð samvinna sé milli framleiðenda og neytenda, en sá málflutningur, sem hér hefur verið viðhafður, er allt annað en heppilegur, til þess að svo megi verða. Ef menn vilja leiða ágreiningsatriði milli þessara aðila til lykta, verður það ekki gert með stöðugum áróðri og dylgjum um, að hér sé ekki allt með felldu, hér sé ýmislegt, sem þurfi að fela og ekki megi koma í dagsljósið. Það er því furðulegra, þar sem þessu er haldið fram af mönnum, sem taldir hafa verið góðir og gegnir. Þetta sýnir mátt áróðursins, sem haldið hefur verið uppi árum saman í ýmsum blöðum. Þetta bregður enn skýrara ljósi yfir verk þeirra, sem fást við opinber mál, og sýnir, hvílíkt skaðræði þess háttar vinnubrögð, sem hér hafa verið viðhöfð, geta verið þjóðfélagi okkar. Mér þykir leiðinlegt, að hér hefur verið gefið í skyn, að þeir, sem með þessi mál hafa að gera, gegni ekki skyldustörfum sínum eins og vera ber. Það er af því, að ég veit, að það er tilhæfulaust. Ég þekki vel forstjóra mjólkursamsölunnar, og þekki ég engan, sem betur hefur rækt skyldustörf sín en hann. Þegar mjólkurflutningar austan yfir fjall tepptust eitt sinn vegna snjóþyngsla og gera þurfti sérstakar ráðstafanir til þess að koma mjólkinni til neytendanna, kom þessi maður kl. 4 að morgni á skrifstofu sína til þess að geta fylgzt með og haft eftirlit með flutningi mjólkurinnar til bæjarins. Þessu hélt hann áfram, unz úr raknaði. Ég ætla, að fáir hafi sýnt meiri kostgæfni í starfi sínu en hann. Það eina, sem þessi maður hefur látið mál þetta til sín taka, er, að hann sendi greinarkorn með leiðréttingum einum. Hann hefur aldrei sagt eitt einasta orð þar fram yfir. Mér virðist, að þingmenn ættu að láta þá menn og störf þeirra manna, sem geta ekki borið hönd fyrir höfuð sér hér, í friði, og er ekki hægt að segja, að mörgum hv. þm. farist að haga sér í því efni eins og þeir hafa gert að undanförnu. Ég tel þetta mjög illa farið. Það er annað mál, þó að víð bítumst hér, ef þörf þykir á, þar sem við erum á þeim vettvangi, að við getum svarað fyrir okkur. En þá verður að gera þær kröfur, að sá málflutningur sé á rökum reistur, en ekki markleysa, sem á sér enga stoð.
Ég ætla ekki að fjölyrða um ræðu hv. þm. Hafnf., af því að hann er ekki viðstaddur, en ég hafði ætlað að gera efnislegum atriðum í ræðu hans nokkur skil. Mér fannst þar betur samandregið ýmislegt, sem fram hefur komið gegn þessu máli en með. Það sýnir, hversu menn geta orðið algerlega miður sín og gengið áróðrinum algerlega á vald. Og það var þeim manni ólíkt, hversu hann viðhafði stór orð um andstæðinga sína. Mér fannst ég ekki þekkja hann fyrir sama mann, eftir því sem ég hafði kynnzt honum, allt fram til þessara síðustu og verstu tíma.
En að einu atriði í ræðu hv. þm. A.-Húnv. vil ég víkja, af því að hann skaut þar svo langt yfir það mark, sem nokkur þm. má láta sig henda. Á ég þar við ummæli hans um hv. 2. þm. N.-M. Það veit hv. þm. A.-Húnv., að þess konar gífuryrði og hrópyrði í garð hv. 2. þm. N.-M. eru staðlausir stafir. Þótt manni hlaupi kapp í kinn, finnst mér, að þm. eigi að temja sér það að bera ekki hverjir aðra óheyrilegum brigzlum. Með því vinnst ekki neitt, og það hæfir ekki þeim stað, sem við rökræðum málefni okkar á. Ég vil færa þetta til betri vegar og álíta, að hv. þm. A.-Húnv. hafi sagt þetta í reiði, en hvorki meint það né viljað segja það, þótt það kæmi þannig fram.