15.12.1943
Efri deild: 66. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 263 í D-deild Alþingistíðinda. (3291)

180. mál, jarðræktarmál

Hermann Jónasson:

Með því að mikið af þessu verki verður unnið af Búnaðarfélagi Íslands, án þess að gerð verði um það þáltill., og ég er hræddur um, að svo verði litið á, ef þáltill. verður samþ., að hún eigi að koma í stað þeirra framkvæmda, sem um gat í frv., er vísað var frá, og fyrir liggur að gera, segi ég nei.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Till. afgr. sem ályktun efri deildar Alþingis (A. 665).