15.12.1943
Efri deild: 66. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 264 í D-deild Alþingistíðinda. (3296)
181. mál, tilraunastöð og skólasetur á Reykhólum
Gísli Jónsson:
Þetta mál hefur legið fyrir þ. að kalla allan þingtímann og hefur nú verið afgreitt frá landbn. Ég vil þakka n. afgreiðsluna. Ég skil vel afstöðu hennar til skólamálsins, þó að ég sé henni ekki sammála, en ég sé ekki ástæðu til að senda þann hluta frv. til mþn., því að málið var fullkomlega rætt við fræðslumálastjóra á sínum tíma, og óska ég því, að 2. liður þáltill. verði borinn upp sérstaklega. Ég treysti mér ekki til að greiða atkv. með honum, en ég er þakklátur fyrir aðra afgreiðslu málsins.