15.12.1943
Sameinað þing: 43. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 265 í D-deild Alþingistíðinda. (3306)

184. mál, uppbót á þingfararkaupi

Sigurður Kristjánsson:

Þessu máli var ekki vísað til n., en sökum þess að málið snertir mjög þingfararkaupsn., þar sem till. kveður á um að fela þessari n. að ákveða aukaþóknun eða uppbót á kaup þm. og greinir þar á milli, hverjir eiga að fá þetta og hverjir ekki, þá taldi þingfararkaupsn. ástæðu til að ræða málið sín á milli. Ég var ekki kosinn frsm. fyrir n., en þó vil ég skýra frá því áliti, sem virtist koma fram á fundi þingfararkaupsn.

Ég held, að ég megi fullyrða, að við séum allir sammála um það, að það væri hið mesta neyðarúrræði fyrir n. að þurfa að taka við till. eins og hún liggur fyrir. Samkv. till. á n. að greiða uppbót til þm., sem búa utan Reykjavíkur, og þeim þm., sem búsettir eru í Reykjavík, en þurft hafa að sleppa starfi vegna þingsetunnar að dómi hennar, og á n. að ákveða þessar launauppbætur hæfilegar eftir sínu mati. En n. telur þetta miklu meiri vanda en hún telur sér fært að leysa.

Svo er mál með vexti, að þingfararkaup var ákveðið fyrir mjög löngu, og eins og kunnugt er, er kaup þm. ekki í neinu samræmi við kaupgjald til annarra stétta í þjóðfélaginu, og ætla ég, að grunnkaup þm. sé t. d. ekki nema helmingur af grunnkaupi sjómanna. Ég geri ekki ráð fyrir því, að þetta ástand, að þingmannakaupið sé svo lágt samanborið við kaup annarra stétta, stafi af því, að þm. viti ekki sjálfir, að þeir eiga að hafa greiðslur fyrir störf sín, og þeir viti einnig, að kaup þm. var upphaflega — miðað við aðrar launastéttir — stórkostlega miklu hærra en það er nú. En þeir mega sjálfum sér um kenna, ef þeir eru óánægðir með sinn hlut. Þó kann þetta sumpart að stafa af feimni við að skapa sjálfir laun sín, en sumpart fyrir það, að þm. eru ekki saklausir af því að hafa eitthvað vakið andúð og vantrú almennings á þjóðnýtingu þess starfs, sem þm. vinna, og það er alls ekki laust við það, að í nafni þingflokkanna sé í blöðunum haldið uppi látlausum áróðri um þm. fyrir störf þeirra og þeir settir mjög neðarlega í siðfræði.

Þótti mér rétt að hafa þetta sem eins konar inngang um það, sem ég segi um þessa sérstöku tillögu.

Ég er þeirrar skoðunar, að þm. eigi að skera úr því, hvað þingfararkaup á að vera, og að það sé alls ekki réttlátt eða afsakanlegt að koma því endilega á einhverja sérstaka menn eða ef menn álíta þetta óvinsælt mál, að vilja þá klína því á þessa þingfararkaupsn. Ef þm. hafa ekki einurð til þess að taka ákvörðun um þetta í sameiningu, finnst mér réttast, að þeir sitji við það sama.

Ég held, að það sé rétt fyrir mig að gera nokkru frekari grein fyrir því, hvers vegna þingfararkaupsn. lízt ekki á það verkefni, sem höfundur till. hefur ætlað henni, en í till. segir, að n. skuli greiða uppbætur til þm. En þessi n. hefur ekkert vald til þess að greiða neinar uppbætur, því að hún borgar ekki út neitt fé. Hennar starf er aðeins að samþ. þingfararkaupsreikningana og ákveða, eftir hvaða reglum það er reiknað. En það er forseti þingsins, sem ávísar upphæðinni, sem svo ríkissjóður greiðir, því að þingfararkaupsn. hefur engan peningakassa til þess að greiða úr. En þegar svo að þeim vanda kemur fyrir n. að eiga að meta þetta, sem till. segir: „að greiða þeim alþingismönnum, sem búa utan Reykjavíkur, og þeim þingmönnum, sem búsettir eru í Reykjavík, en þurft hafa að sleppa starfi vegna þingsetunnar að dómi hennar, hæfilega uppbót á dag“, þá er þetta atriði, sem n. getur ekki metið, því að við verðum að viðurkenna, að n. hefur aðeins það starf að taka við skýrslum og framtölum þm. sjálfra og leyfir sér ekki að vefengja, að rétt sé sagt frá. Þó mun n. viðurkenna, að menn eru misjafnlega frekir til fjár. Sumir mundu ekki telja það við skapferli sitt að telja allt fram, þó að það að vísu væri allt réttmætt, eða það, sem þeir hafa orðið að kosta til, til þess að láta vinna verk sín fyrir sig, eða hvaða verk þeir hafa orðið að fella niður. Aðrir mundu fara enn nákvæmar út í þetta og tína enn meira til. Þannig mundu þm. sjálfir skapa sér misjafnan rétt, og n. mundi alls ekki láta sér detta í hug að fara að rýna í þetta af nokkurri smámunasemi. Af þessum ástæðum er ógerningur fyrir n. að taka að sér það, sem henni er ætlað í till.

Nú er hér verið að semja aðra till. um það að setja aðra n. til þess að athuga launakjör þm., og á hún að hafa lokið störfum, áður en næsta Alþ. kemur saman. Mér finnst því engin brýn nauðsyn til þess að gera nokkuð í þessu máli á þessu þingi, hvað viðvíkur uppbótum eða leiðréttingum á launakjörum þm.

Þm. hafa að sönnu búið við ákaflega mikil eymdarkjör, hvað laun þeirra snertir, og margir hafa eflaust orðið að borga með sér, auk þess sem ýmis þingstörf hafa mikið erfiði og óbein útgjöld í för með sér, sem þeir bezt þekkja, er hafa komið fram með þessa till. En þeir hafa búið við þetta svo lengi, að mér finnst þeir eins geta þraukað enn í nokkra mánuði.

Ég hef því ákveðið að bera hér fram till. um rökstudda dagskrá, sem hljóðar þannig, með leyfi forseta:

„Vegna þess að kosin verður á þessu þingi milliþinganefnd til þess að gera fyrir næsta reglulegt Alþingi tillögur um launakjör alþingismanna, sér Alþingi ekki ástæðu til annarra aðgerða í þessu máli og tekur fyrir næsta mál á dagskrá“.

Hef ég einnig sett hér varatill., ef þessi till. yrði felld, því að þá liggur ekki annað fyrir en till. á þskj. 598. En til þess að reyna að forða því höggi af n. mun ég einnig leyfa mér að bera fram þessa till. til vara:

„Alþingi ályktar, að alþingismönnum skuli greidd 25% uppbót á dagpeninga yfirstandandi Alþingis og auk þess utanbæjarþingmönnum fæðispeningar eftir mati þingfararkaupsnefndar“.

Leyfi ég mér svo hér með að leggja þessa till. fram fyrir forseta.