15.12.1943
Sameinað þing: 43. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 267 í D-deild Alþingistíðinda. (3308)
184. mál, uppbót á þingfararkaupi
Eysteinn Jónsson:
Í þáltill. er þm. skipt í tvo hópa, annars vegar utanbæjarþm., og hins vegar eru þeir, sem eiga heima í Reykjavík. Þetta vil ég ekki fallast á. Um utanbæjarþm. er lagt til, að þeir skuli fá hæfilega uppbót á dag, frá því að núverandi Alþ. hófst. Þessu er ég samþykkur, eins og allt er í pottinn búið, með tilliti til þess, hversu lengi þessir menn eru búnir að vera frá störfum sínum og hversu kostnaðarsöm dvöl þeirra er í Reykjavík. Við hljótum að viðurkenna það, að utanbæjarþm. hafa miklu meiri kostnað við þinghald sitt en innanbæjarþm. og hljóta að verða fyrir miklum kostnaði heima fyrir vegna fjarvistar sinnar, sem flestir innanbæjarþm. sleppa við að einhverju leyti. Hins vegar finnst mér höfuðatriðið vera það, að þingfararkaupsn. skuli meta uppbætur innanbæjarþm., sem þurft hafa að sleppa starfi vegna þingsetunnar að dómi hennar. Þessi n. á að taka við reikningum frá utanbæjarþm. um það, hversu þeir hafa misst í um tekjur vegna þingstarfanna. Ég hygg því, að hér sé allt of mikið vald lagt í hendur þingfararkaupsn., eins og hv. 7. þm. Reykv. hefur réttilega sýnt fram á. Þegar að því kemur, að fara á að greiða mönnum mismunandi mikið eftir því, hve tekjur þeirra eru annars staðar, hve mikill tekjumissir þeirra hefur orðið, og gera upp á milli einstakra manna, þá er komið út á braut, sem ómögulegt er að fóta sig á, því að þá koma svo margar sérástæður til greina. Hlýtur því sérhver maður að sjá, að slíkt er orðið með öllu ómögulegt að fara út í. Ég vil því láta þar við setja að greiða utanbæjarþm. uppbót og leyfi mér, með leyfi forseta, að flytja eftirfarandi brtt.:
„Alþingi ályktar að fela þingfararkaupsnefnd að greiða þeim alþingismönnum, sem búa utan Reykjavíkur, hæfilega uppbót á þingfararkaup, frá því að núverandi Alþingi hófst“.
Er það ætlun mín, að n. muni meta, hvaða búsifjum utanbæjarþm. verða fyrir umfram aðra þm., og greiða síðan almennar uppbætur í samráði við niðurstöður hennar. Eins og ég gat um áðan, verða utanbæjarþm. fyrir meiri búsifjum, því að flestir innanbæjarþm. geta að einhverju leyti hugsað um störf sín, og er þetta það eina, sem má fóta sig á að svo vöxnu máli.