08.11.1943
Efri deild: 44. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 270 í D-deild Alþingistíðinda. (3327)

117. mál, rafveituskilyrði í Mývatnssveit

Flm. (Jónas Jónsson) :

Ég hef í grg. fyrir þessari þáltill. gert nokkurn veginn nægilega grein fyrir þessu máli. Mývetningar hafa óskað eftir því, að ríkisstj. léti framkvæma athugun á því að koma rafmagnsleiðslu til þeirra frá Laxá. Ríkisstj. hefur látið kunnáttumenn gera það s. l. sumar. En það, sem hér er farið fram á, er aðeins það, að þessi sveit verði látin njóta þessara aðstæðna, með því líka að það hefur almenna þýðingu, bæði á þessum stað og víðar, að sjá það, hvað muni kosta að leiða rafmagn heim á hvern bæ í sveit. Mývetningar urðu fyrstir til að koma síma heim á hvern bæ hjá sér með frjálsum samtökum, og sýnist því, að þetta fólk mundi leggja mjög mikið á sig til þess að koma þessu í framkvæmd.

Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta, en legg til, að þáltill. verði samþ.