15.12.1943
Efri deild: 67. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 272 í D-deild Alþingistíðinda. (3344)

164. mál, kvikmyndasýningar í skólum

Flm. (Jónas Jónsson):

Þessi till. hefur legið fyrir þinginu nokkuð lengi. Ég geri því ráð fyrir, að þm. hafi kynnt sér efni hennar, en það er að skora á ríkisstj. að hlutast til um, að komið verði á kvikmyndasýningum í kauptúnum og sveitum. — Þetta er hugsað mest sem fræðslukvikmyndir, en einnig sem skemmtikvikmyndir. Eitt af því, sem sveitafólkinu finnst það fara á mis við, eru kvikmyndasýningar, sem fólkið í stærstu kaupstöðunum hefur aðgang að, en þorp, þar sem íbúar eru ekki nema 1000 eða færri, þykjast ekki hafa ráð á að halda uppi. Ég efast um, að hægt sé að koma þar upp kvikmyndasýningum með öðru lagi en þessu til að fullnægja þörf fólksins á þeim fróðleik og þeirri skemmtun, sem þannig er hægt að veita. Ég álít, að þetta geti gengið gegnum þingið án þess að fara í n.