16.12.1943
Sameinað þing: 44. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 282 í D-deild Alþingistíðinda. (3358)
191. mál, lækka verð á vörum innan lands
Brynjólfur Bjarnason:
Það eru aðeins nokkur orð. Hv. 1. þm. Eyf. lét falla í dag í ræðu, sem átti að vera svarræða til hv. 2. landsk., einhver þau strákslegustu ummæli, sem ég hef heyrt hér á þingi, og er þá langt til jafnað, eða a. m. k. á þessu þingl. Hann sagði á þá leið, að hv. 2. landsk. hefði skýrt frá nokkrum atriðum, sem gerzt hefðu í hinni nýju sex manna n., og hann tryði þeim ekki, þau gætu að vísu verið sönn, en það væri tilviljun, ef sá maður segði satt. Ég skil ákaflega vel, að hv. þm. hafi hlaupið upp á nef sér, þó að hann sé annars prúður maður, vegna þess að flokkur hans hefur vissulega oft átt um sárt að binda fyrir hv. 2. landsk. þm. Hann hefur flutt svo rökstuddar ádeilur á Framsfl., að þá hefur sett hljóða og ekki átt annars kost en stökkva upp í bræði sinni, og svo var enn. Þessi hv. þm. kom eins og álfur úr hól. Hann hafði ekki hugmynd um þær rannsóknir, sem hafa verið látnar fram fara í hinni nýju n. og mun nú lokið á þann hátt, að ekkert samkomulag hefur orðið.
Það er rétt, sem hv. 2. landsk. sagði, að sá hagfræðingur, sem starfandi er á vegum n., hefur reiknað út, hvað nema mundi miklu á vísitölunni, ef tollar væru afnumdir af þeim vörum, sem ganga inn í vísitöluna. Hann komst að þeirri niðurstöðu, að það væru 15 stig og síðan fljótlega 5 stig. Hagstofustjóri hefur gert sams konar útreikning, og komst hann nákvæmlega að sömu niðurstöðu. Þó tekur hagstofustjóri fram, að áætlunin sé eins varleg og hugsazt geti, og þegar maður ber það saman við önnur störf manns eins og hagstofustjóra, sem vill fara varlega og segja ekki meira en hann getur staðið við, þá tel ég fulla ástæðu til að ætla, að lækkun vísitölunnar yrði talsveri meiri. Sú tollalækkun, sem hagfræðingurinn reiknaði með, nemur 8½ millj. kr., fyrir ríkissjóð, og þar af sparast um það bil helmingur í launagreiðslum ríkissjóðs. Þessi tala mun vera miðuð við áætlun fjárl. Hún mun verða talsvert hærri, en sízt ætti þessi hv. þm. að hafa á móti því, að reiknað sé með áætlun fjárl., sem þeir standa á fastar en fótunum, að sé a. m. k. nægilega há.
En þegar maður athugar málið nánar, þá er eðlilegt, að þessum hv. þm. hafi orðið svarafátt. Þessi hv. þm. vildi ekki minnast á þessar staðreyndir, vegna þess að hann getur ekki rökrætt þær. Hann hefur engin rök fram að færa máli sínu til stuðnings. Ástæðurnar fyrir því, að hann er á móti að fara þessa sjálfsögðu leið. eru þess eðlis, að hann getur ekki sagt þær. En höfuðástæðan er sú, að hann vill, að verð á landbúnaðarafurðum verði greitt niður. Það er fyrir honum aðalatriðið. Þetta tal um dýrtíð er ekki annað en yfirklór, sem kemur í ljós í hvert skipti, sem maður reynir að rökræða við þessa menn um vandamál dýrtíðarinnar. Hann vill umfram allt láta borga niður verð á landbúnaðarafurðum. Það er af því; að þeir framsóknarmenn vita, að verð á landbúnaðarafurðum er nú svo hátt, að það mundi draga stórlega úr neyzlu þeirra, ef þær væru ekki borgaðar niður. Þetta er ástæðan til þess ofurkapps, sem þeir leggja á þetta. Það er ekki langt síðan framsóknarmenn töluðu mikið um það bæði í ræðu og riti, að niðurgreiðsla á landbúnaðarafurðum væri neytendastyrkur, eins og þeir kölluðu það. Í samræmi við það var ályktun sú, sem hv. 2. landsk. las upp úr skýrslu Búnaðarfélagsins, þar sem lýst var andstöðu gegn þessari stefnu. Þetta var í samræmi við þessa „agitation“. Þeir ímynduðu sér, að fulltrúar fólksins í bæjunum vildu halda við þessari stefnu til þess að lækka verð á þessum vörum. Þeir héldu, að fulltrúar bæjanna mundu ekki treysta sér til að standa á móti því, að niðurgreiðslurnar héldu áfram, vegna þess að verkamenn mundu ekki skilja, að það er þeim til tjóns, en ekki til hagsbóta. Þess vegna var þessi samþykkt gerð, og þess vegna var þessi „agitation“ um neytendastyrk. En þegar þeir sjá, að verkamenn láta ekki blekkja sig, þá koma þeir og segja, að þetta sé nauðsyn, þetta verði að gera til að forðast hrun, og ég veit ekki hvað og hvað, — það sé voði fram undan, ef niðurgreiðslunum sé ekki haldið áfram. Nú talar enginn um neytendastyrk. Það er skrítið, þegar þeir koma til okkar og krefjast þess af okkur í nafni ábyrgðartilfinningar, sem þeir eru alltaf með á vörunum, að haldið verði áfram að borga þennan neytendastyrk úr ríkissjóði.
Hv. 2. þm. S.-M. segir að vísu, að þetta sé aðeins bráðabirgðalausn, og undirstrikar það mjög og segir, að það sé í raun og veru neyðarúrræði o. s. frv., þetta eigi aðeins að vera til bráðabirgða, þar til önnur leið verði farin, þangað til fundin verði leið til frambúðar. Hver verður þá þessi frambúðarleið? Það er bezt að athuga það nánar. Hv. 1. þm. Eyf. segir, að ekki sé hægt að fara neina varanlega leið til að lækka dýrtíðina nú, það kosti einhverjar fórnir og á því hafi staðið, því að enginn hafi viljað færa þessar fórnir. Má ég spyrja: Færir enginn fórnir fyrir þessar niðurgreiðslur, sem eru engin lausn, heldur aðeins neyðarúrræði, svo að maður noti orð hv. 2. þm. S.-M.? Er enginn, sem færir fórnir? Er enginn, sem þarf að greiða þessa peninga? — Jú, vissulega. Hann var spurður, hvar taka ætti féð. Honum varð svarafátt. Hann fór að benda á, að sósíalistar hefðu talið, að tekjur ríkissjóðs væru of lágt áætlaðar í fjárl. Þetta var lítilfjörlegt svar. Hvað koma tillögumönnum skoðanir sósíalista við? Hvað kemur þeim við álit sósíalista í þessu máli? Þeir sjálfir hafa haldið fram, að tekjurnar séu jafnvel of hátt áætlaðar, og þeir hafa jafnvel haldið fram, að fjárl. væru svo ofhlaðin, að jafnvel nú væri talsverður tekjuhalli. Eru þeir kannske að komast á aðra skoðun, eða passar kannske þessi skoðun í dag og önnur þveröfug á morgun, eftir því hvernig vindurinn blæs og hvað þarf að „rökstyðja“ í það og það skiptið? Nei, hv. 2. þm. S.-M. veit, að þetta dugir ekki, þessi röksemdafærsla er svo veik, hún er á svo miklum brauðfótum. Þess vegna segir hann hreint út: Auðvitað þarf nýja tekjustofna til að standast kostnað við niðurgreiðslurnar samkv. þessari till. En það er ábyrgðarleysi, að þessi þáltill. skuli vera borin fram í trausti þess, að samkomulag fáist á eftir. Það var búið að gera samkomulag um tekjuöflunarleiðir, sem tími vinnst ekki til að afgreiða á þessu þingi. En þá koma Sjálfstfl. og Framsfl. sér saman um að slíta þingi, hlaupa frá þeim málum, sem fyrir liggja, eins og skattafrv., eignaaukaskattinum og breyt. á tekju- og eignarskatti, sem átti eftir aðeins eina umr. í Ed. Það var hægt að afgr. þessi mál strax, ef afbrigði hefðu fengizt, en Sjálfstfl. neitaði um afbrigði, og síðan koma þeir sér saman um að slíta þinginu, til þess að málin nái ekki fram að ganga. Nú má ekki fórna einni helgi, til þess að þessi frv. nái fram að ganga. Af hverju? Af því að samið er um það milli þessara flokka, að þessi mál skuli daga uppi, og í öðru lagi um það, að á næsta þingi samþ. þessir flokkar sameiginlega tekjuöflunarfrv., sem verði nokkurn veginn á sömu leið, — þetta getur maður sagt sér sjálfur, — eins og þau liggja fyrir nú, þó að þau verði ekki afgreidd nú, þ. e., að leggja skuli 15% ofan á tekjuskatt í landinu, og enn fremur að leggja 2% innflutningsgjald á allar innfluttar vörur. Skyldu þetta ekki vera fórnir? Hvað segja skattþegnarnir, sem þurfa að greiða tekjuskatt sinn með 15% álagi? Og hvað segja neytendurnir og almenningur í landinu, sem verður að borga a. m. k. 5 til 6 millj. kr. í hækkuðu vöruverði vegna innflutningsgjaldsins? Eru þetta ekki fórnir? Ætli það sé ekki hægt að finna einhverja, sem verða að færa fórnir? Nú, en það má líka hugsa málið á annan veg. Við skulum taka 10 milljónirnar, sem notaðar eru í þessar niðurgreiðslur. Það er nokkurn veginn það, sem gera verður ráð fyrir, að sé það minnsta, sem hægt er að komast af með í niðurgreiðslur á ári. Fyrir þetta mætti t. d. kaupa fiskiskip. Það er þó a. m. k. sú fórn, sem sjávarútvegurinn þarf að færa. Og ef þessum peningum hefði ekki verið kastað í tóma vitleysu og til einskis gagns, þá hefði verið hægt að láta smíða skip fyrir 10 millj. kr. Og það var vegna þess, að þessa peninga átti að nota til þessara nytsömu hluta, sem hv. alþm. felldu till. Sósfl. um að veita þetta fé, 10 millj., til smíði fiskiskipa og till. Alþfl. um að veita lán og styrki til þessara hluta. — Það er því svo, að það eru færðar fórnir. En hverjum verða þær í hag? Ekki fiskimönnum, eins og mjög rækilega var bent á af hv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ), því að þessi gjöld greiða þeir fiskimenn, sem fyrst og fremst þurfa á hjálp að halda, bátaútvegsmennirnir. Þeir þurfa tiltölulega mjög lítið kaup að greiða eftir vísitölu, því að það er sáralítil vinna, sem þeir þurfa að láta vinna í landi og greidd er eftir vísitölu, þannig að það kemur ekki þeim í hag, þvert á móti. Útgerðarvörur, sem þeir kaupa, hækka í verði, þegar kominn er á þær nýr tollur. Auk þess hækka skattar á þessum mönnum. — Ekki verður þetta bændum til hagsbóta. Ég geri ráð fyrir, að framsóknarmenn fallist á, að þetta verði ekki til þess að lækka kaupið í sveitinni. Hverjum verður það þá til góðs? Öðrum atvinnurekendum. Ekki fiskimönnum, ekki bændum, heldur stóratvinnurekendum, sem þurfa að kaupa mikið vinnuafl. Þeim eru gefnar þessar milljónir á kostnað landsmanna. Það er mergur málsins, og frá því sjónarmiði getur maður vel skilið, að fulltrúar, sem telja sig vera fulltrúa þessara manna í þjóðfélaginu, séu með þessu.
Það gæti nú verið, að hægt væri að rökstyðja þetta fyrir almenningi, ef hrun væri yfirvofandi á því tímabili, sem inna ætti þessar greiðslur af höndum. En það er síður en svo sé. Það sýnir m. a. sú rannsókn, sem látin var fram fara í sambandi við sex manna n., — að allir atvinnuvegir í landinu ganga vel, eins og sakir standa. Nú veit maður líka, að þessar niðurgreiðslur hafa ekki áhrif nema á því tímabili, sem þær fara fram. Og þegar þeim er svo hætt, fer allt í sama farið og áður. Þessum peningum er því sama sem fleygt í sjóinn. Þeir eru teknir úr vösum þeirra fátæku og gefnir þeim ríku. Og þar er Framsfl., sem berst fyrir þessu.
Ég þarf nú ekki að hafa mörg orð um þetta. Ég vildi aðeins minnast á það, að hv. 1. þm. Eyf. var mjög hneykslaður á því, að hv. 2. landsk. þm. (ÞG) minntist á það, að Framsfl. notaði sér samþykktir Búnaðarfélags Íslands pólitískt, — ákaflega hneykslaður út af þessu. Það væri nú gaman að líta á erindin, sem hæstv. Alþ. hafa borizt frá Búnaðarfélagi Íslands, og athuga svo ræður hv. framsóknarmanna og telja, hvað oft hefur verið bent á erindi frá Búnaðarfélagi Íslands, sem Framsfl. hefur notað sér pólitískt. Vitanlega eru því þessi ummæli hv. 2. landsk. þm. sönn, svo að það er ekki ástæða til að hneykslast á þeim. Þetta er staðreynd, sem allir vita. En það er dálítið slæm samvizka hjá þessum mönnum. Ef einhver segði, að Framsfl. notaði Samband ísl. samvinnufélaga sér til pólitísks framdráttar, ætli þeir þyrftu ekki að mótmæla því? Ósköp væri gaman að heyra þá mótmæla því, að SÍS hefði verið notað til pólitísks framdráttar fyrir Framsfl. Væri gaman í sambandi við þær ræður að lesa upp greinar eftir hv. þm. S.-Þ. (JJ) og aðra, sem birzt hafa í málgagni SÍS. Það hefur verið mikið um pólitíska misnotkun á hinum og þessum félagsskap til framdráttar Framsóknarflokknum, en þetta held ég, að sé það ósæmilegasta í notkun félaga almennings til framdráttar flokknum. Þetta blöskrar mönnum svo, að menn eru hættir að tala um það.
Ég vildi nú að þinglokum benda á það, að svo virðist sem ríkisstj. sé orðin þingræðisstjórn, þannig að landinu er þá bjargað frá þeim voða að vera stjórnlaust, eins og kallað er, að eiga enga þingræðisstjórn. Það er svo að sjá sem ríkisstj. hafi nú mikinn meiri hl. Alþ. að baki sér í því eina máli, sem hún telur stefnumál sitt, þ. e. a. s. dýrtíðarmálinu. En stefna ríkisstj. er, eins og kunnugt er, — svo lengi sem ekki er fært að fara þá leið, sem hv. 2. þm. S.-M. þráir mest, að lækka kaup verkalýðsins, — að varið sé miklu fé úr ríkissjóði til niðugreiðslna á verði á landbúnaðarafurðum og á þann hátt reynt að halda niðri launagreiðslum að svo miklu leyti sem auðið er — með því að falsa vísitöluna enn meira en orðið er, því að niðurgreiðsla á verði landbúnaðarafurða er til tjóns fyrir launþega, ekki aðeins á þann hátt, að þeir verði að borga með sköttum í ríkissjóð mikinn hluta af því fé, sem fer í þessar niðurgreiðslur, heldur líka verða þessar niðurgreiðslur til þess, að kaup lækkar mun meira en framfærslukostnaður, m. ö. o., til þess að falsa vísitöluna enn meira en orðið er, því að hún er fölsuð nú, það veit maður. Þetta er þannig eins konar staðgengill fyrir þá leið, sem þessir menn þrá mest, kauplækkunarleiðina. — Og þetta er stefna ríkisstj. Og það virðist nú svo, að ríkisstj. vanti ekki meiri hl. fyrir þessa stefnu á framhaldsþinginu í vetur.
Nú í dag átti að koma á dagskrá til síðustu umr. frv., sem hefur haft allt til þessa dags, eftir því sem ég bezt veit, fylgi meiri hl. Alþ. að baki sér, frv., sem ég flutti snemma á þinginu, þar sem skýlaust er tekið fram, að ríkisstj. hafi ekki heimild til niðurgreiðslna úr ríkissjóði, nema sérstök samþykkt komi til. En Sjálfstfl. er kominn í svo náið bandalag við Framsfl. um stuðning við ríkisstj., að hann ætlar að hlaupa frá þessu frv. Þrátt fyrir gefin loforð tók hæstv. forseti Nd. málið ekki á dagskrá síðast á fundi Nd. fyrir tilmæli Sjálfstfl., svo að það er sýnilegt, að samkomulag er um það, að það frv. nái ekki fram að ganga. Og síðan kemur það í ljós, að þessir flokkar standa báðir saman um að veita ríkisstj. heimild til óákveðins tíma með þáltill. til niðurgreiðslna úr ríkissjóði á þann hátt, sem verið hefur. Og þessir flokkar eru samtaka ríkisstj. um flutning frv., sem ríkisstj. að vísu flytur, þar sem stefna ríkisstj. kemur nákvæmlega fram, — og það í sinni allra fáránlegustu mynd, þar sem lagt er til, að vöruverð verði hækkað sem ráðstöfun gegn dýrtíðinni! — hækkað til þess að afla tekna í ríkissjóð til þess að greiða niður aðrar vörur. Mér virðist þess vegna, að það líti út fyrir, að það hækki heldur hagur Strympu, — hæstv. ríkisstj., — hún sé um það bil að verða þingræðisstjórn og hafi þessa tvo flokka að baki sér. Og mér finnst þá ástæðulaust að vera með neinn feluleik um þetta. Það mundi sjálfsagt mörgum landsmönnum létta, sem áhyggjur hafa haft af því, að hér er ekki þingræðisstjórn í landi, ef þeim væri sagt, að nú væri þingræðisstjórn komin, sem hefði stuðning Alþ. Eftir hverju er að bíða? Hvers vegna lýsa þessir flokkar ekki yfir því, að ríkisstj. sé þeirra stjórn?