16.12.1943
Sameinað þing: 44. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 292 í D-deild Alþingistíðinda. (3365)
191. mál, lækka verð á vörum innan lands
Stefán Jóh. Stefánsson:
Ég hef með örfáum orðum gert grein fyrir því, að Alþfl. var andvígur þessari till. En þar sem málið er nú komið inn á stórpólitískar brautir, finnst mér ástæða til að leiðrétta tvennt, sem fram hefur komið, og veit ég, að hæstv. forseti vir ðir mér það til vorkunnar. Hæstv. ríkisstj. hefur nú enn orðið deiluatriði milli Sósfl. og annarra, og er deilt um það, hver hafi átt upptökin að því, að hún var skipuð. Ég átti sæti í átta manna n., og mér er kunnugt um það, að 3. des. flutti hv. 2. þm. Reykv. till. um, að flokkarnir beindu því til ríkisstjóra, að hann skipaði ópólitíska stj. utanþingsmanna, að vísu í samráði við flokkana, en það gat ekki staðizt. Till. sú, sem varð til þess, að núverandi ríkisstj. var skipuð, kom frá hv. 2. þm. Reykv., og það stendur óhaggað, hvað sem hann segir, en ég veit, að hann mun hafa það sér til afsökunar, að hún hafi samkv. till. hans átt að vera skipuð í samráði við flokkana.
Hitt atriðið er í sambandi við stjórnmálasögu Þýzkalands. Þó að ég sé ekki fróður í samanburði víð hv. 5. þm. Reykv., er mér vel minnisstætt eitt atriði, sem gerðist rétt fyrir síðustu kosningar í Þýzkalandi, áður en Hitler komst til valda. Aðalblað jafnaðarmanna í Þýzkalandi hafði þá heilsíðufyrirsögn með kjörorðinu: Afmáum Hitler! En í Rote Fahne var heilsíðufyrirsögn svo hljóðandi: Afmáum sósíaldemókratana! Þannig er bezt lýst afstöðu þessara tveggja flokka. Sósíaldemókratar vildu afmá Hitler, en kommúnistar vildu afmá sósíaldemókrata, og kjörorð kommúnista sigraði — því miður.