16.12.1943
Sameinað þing: 45. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 294 í D-deild Alþingistíðinda. (3372)
191. mál, lækka verð á vörum innan lands
Einar Olgeirsson:
Ég vil aðeins fá úrskurð forseta um, hvort hér sé nægilegt, að einfaldur meiri hl. ráði. Í 64. gr. laga um þingsköp á Alþ. segir svo: „. . . Um stjórnarfrumvörp eða frumvörp, sem flutt eru fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, ræður þó einfaldur meiri hluti. Afbrigði mega þau ein vera, að eigi komi í bága við stjórnarskrána“.