16.11.1943
Sameinað þing: 31. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 309 í D-deild Alþingistíðinda. (3426)
127. mál, fyrningar fiskiskipa o.fl.
Eysteinn Jónsson:
Ég vildi aðeins segja það um þessa þáltill., að mér sýnist, að það þurfi að athuga vel þetta mál. Mér virðist margt mæla með því, að þeir, sem hafa lagt í það að endurnýja báta sína eða afla sér nýrra skipa á stríðstímanum, fái að draga frá í rekstrarkostnaði sínum einhvern sérstakan hluta af andvirði þessara skipa eða báta, vegna þess að ég geri ráð fyrir því, að þessi tæki hafi orðið ákaflega dýr, a. m. k. mjög dýr miðað við það, sem áður var, og sennilega dýrari en slík tæki verða framvegis og dýrari en svarar til þess verðlags, sem verður framvegis, svo framarlega sem þær verðlagsöfgar, sem nú eiga sér stað, halda ekki áfram. En það er tæpast hægt að búast við því, að þær haldi áfram um mjög langa hríð. Mér virðist því margt mæla með því, að þessi leið verði farin, sem hér er bent á.
Hins vegar er ýmis vandi á höndum í sambandi við að ganga frá slíku, svo að réttlátlega komi niður og viðráðanlegt verði í framkvæmd. Sérstaklega vil ég beina því til þeirrar hv. n., sem fær þetta mál til athugunar, ef hún aðhyllist meginstefnu till., hvort það sé ekki dálítið vafasamt að binda sig þar alveg við verðlag ársins 1939. Það mun geta verið vafasamt, hvort hitt gæti ekki eins komið til greina að áætla þessum fyrirtækjum sérstaklega til frádráttar einhverja vissa hundraðstölu af verði þeirra skipa eða báta, og hafa hana þá mismunandi eftir því, á hvaða ári þau eru smíðuð. Kannske er þetta ekki heldur heppilegt að miða þetta þannig, en ég skýt þessu aðeins fram til athugunar. Það er nokkurt vandamál, ef lagt verður út á þessa braut, hvar nema skuli staðar, hvort aðeins skuli heimila þennan frádrátt á fiskiskipum og fiskibátum eða hvort þarna skuli einnig taka undir aðrar fleiri eignir, sem menn hafa komið sér upp á þessum tíma. En ég held, að það sé dálítið varhugavert að gera þetta allt of almennt, og það stendur vitanlega nokkuð sérstaklega á um framleiðslutækin og töluvert öðruvísi en um aðrar eignir, og held ég, að alls ekki ætti að fara lengra í þessum frádrætti en það, að framleiðslutæki komi þarna undir, ef farið verður inn á þessa braut, og skera það þá heldur þrengra en víðtækara.
Að lokum vil ég aðeins benda á eitt, sem getur orðið vandasamt að fást við, en það eru skattal., sem gilt hafa síðan 1935. Þar er ekki gert ráð fyrir, að dregin sé frá sem rekstrarkostnaður önnur fyrning en sú, sem talin er í skattal. venjuleg fyrning. Og enn fremur segir þar, að sömu reglum skuli fylgja um fyrningu frá ári til árs. Það er þess vegna vafi á, að hægt sé að koma til framkvæmda stefnu þessarar þáltill. öðruvísi en með lagabreyt. Þetta vil ég benda væntanlegri n. á, sem athugar þetta mál, þó að ég búist við, að sú n. muni kveðja sér til ráðuneytis um þessi atriði þá menn, sem þekkingu hafa á framkvæmd skattal.
Mér er fyrir mitt leyti sama, hvort þessi till. fer til fjvn. eða allshn. Þó hygg ég, að þetta sé allshn.-mál.