16.12.1943
Sameinað þing: 45. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 338 í D-deild Alþingistíðinda. (3468)
41. mál, nýbýlamyndun
Frsm. minni hl. (Steingrímur Aðalsteinsson):
Herra forseti. Eins og ég hef gert grein fyrir í nái. mínu á þskj. 533, þá gat ég ekki fallizt á, að nauðsynlegt væri að samþ. þessa þáltill., sem hér liggur fyrir. Það er aðallega þrennt, sem í henni felst:
Í fyrsta lagi á að athuga skilyrði til nýbýlamyndunar í sveitum, bæði einstakra býla og býlahverfa. Ég tel, að með þál. þeirri, er þ. samþ. 9. febr. s. l., hafi það gert nægilega samþykkt í þessum efnum. Þar var Búnaðarfélaginu falið að athuga þessi skilyrði. Í þessari þáltill. er að vísu talað bæði um einstök býli og býlahverfi, en ég lít svo á, að rannsóknarþörfin hljóti að miðast við býlahverfin, og um þau var sérstaklega talað í þál. frá 9. febr., því að íhlutunar Alþ. ætti ekki að þurfa um einstök býli. Hitt er aftur rannsóknarefni, hvar nýbýli geta verið í hverfum, því að til þess þarf sérstök skilyrði, ræktunarmöguleika, samgöngur, og önnur skilyrði viðvíkjandi framleiðslunni.
Annað atriðið í þáltill. þeirri, er hér liggur fyrir, er að gera skýrslur um, hversu háttað sé eignar- og umráðarétti á landi því, er telst vel fallið til nýbýlagerðar. Það er að vísu rétt, að í fyrri þál. var ekki beint um þetta talað. En flestum þm. mun kunnugt um, að búnaðarþing hefur kosið mþn. m. a. til að annast framkvæmd þál. frá 9. febr. og Búnaðarfélagið hefur beinlínis falið þeirri n. að afla upplýsinga um eignarrétt á fasteignum í sveitum landsins, og væri þar með nægilega séð fyrir þessu ákvæði, er þessi þáltill. fjallar um. Búnaðarfélagið gæti ekki heldur framkvæmt 4. lið þál. frá 9. febr., nema fyrir lægju upplýsingar um þessi efni. Því er engin nauðsyn á nýrri samþykkt um þetta frá Alþingi.
Þriðja meginatriði þessarar þáltill. er, að nýbýlastjórn er falið að annast þessi tvö verkefni, sem ég hef nú lýst. Með þál, frá 9. febr. var
Búnaðarfélaginu falið þetta, og mér sýnist því ekki aðeins óvíðeigandi, heldur óverðskuldað vantraust á Búnaðarfélaginu, ef Alþ. færi að fela öðrum aðila þessi verkefni, er það hefði falið því áður. Auk þess kom fram við umr. um þetta mál í allshn., að yrði þessi till. samþ., þá mundi framkvæmd þessa atriðis hagað þannig, að nýbýlastjórn mundi fela búnaðarsamböndunum að gera þetta. Það var einmitt hv. 2. þm. Skagf., er viðhafði þessi ummæli, og hann á sæti í nýbýlastjórn. Þetta bendir til þess, að enn minni ástæða sé til að fela nýbýlastjórn þessi verkefni, þar sem einn meðlimur hennar upplýsir þetta.
Að þessu athuguðu sýnist mér ekkert í þessari þáltill., er gefi tilefni til nýrrar samþykktar Alþ., og því legg ég til á þskj. 533, að málinu verði vísað frá með rökst. dagskrá, í fullu trausti þess, að Búnaðarfélagið framkvæmi verkefni þau, er því voru falin með þál. frá 9. febr., og þá í samráði við nýbýlastjórn eftir þörfum.
Eins og ég hef þá fært rök fyrir, þá tel ég enga ástæðu til nýrrar samþykktar um þessi efni. Málinu væri ekkert betur borgið en með því, er felst í þál. frá 9. febr.