15.12.1943
Sameinað þing: 43. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 344 í D-deild Alþingistíðinda. (3484)

143. mál, þjóðleikhúsið

Forseti (GSv):

Sú tilhögun hefur nú verið á fundatímum í Sþ., að sumar till., sem hafa verið bornar þar fram, hefur alls ekki verið hægt að taka fyrir, og það hefur þótt gott, ef þáltill. hafa komizt til síðari umr. og n., að ég nú ekki tali um, ef það hafa komið fram nál. um þær, en það hefur yfirleitt þótt gott, ef þær hafa komizt að. Það er og, að bæði hefur verið farið eftir þeirri röð, sem till. hafa komið fram í, og því, að nál. hafi verið skilað, með að taka fyrir till., og auk þess hefur forseti sjálfur eða með ráðum annarra stundum talið, að eitt ætti að taka fram yfir annað.

Nú vil ég ekki vefengja, að hv. flm. og sjálfsagt fleiri hafi áhuga á því, að þessi þáltill. komist fram, en úrskurður um till. mun ekki hafa verið felldur í gær, þar sem þá voru tæplega nógu margir, til þess að hægt væri að láta atkvgr. fara fram eða yfirleitt til þess að ráða málum til lykta, ef menn voru ekki algerlega á eitt sáttir. Það er því ekki fengin vissa fyrir því, að hv. þm. vilji samþ. þessa þáltill., þótt þessi hluti þeirra, sem var hér mættur í gær, greiddi henni atkv. til síðari umr. Nú mun verða hafður á sá háttur, eins og ég sagði í gær, að aðeins mun kleift að taka á dagskrá mál, sem ekki verða umr. um, þar sem nú er svo mjög áliðið þingtímans, en þar með er þó ekki sagt, að ekki megi takast að taka þetta mál fyrir.