15.12.1943
Sameinað þing: 43. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 344 í D-deild Alþingistíðinda. (3485)
143. mál, þjóðleikhúsið
Jónas Jónsson:
Herra forseti. Ég vil benda á það, að þótt nú sé von til þess að Þjóðleikhúsið verði rýmt, þá er ekkert, sem bendir til þess, að það verði hægt að hraða því verki, sem enn er óunnið við húsið, því að það hefur ekki verið losað enn þá og þótt það losni bráðlega, þá verður lengi verið að koma því í lag. Ef þessi þál. kemur til síðari umr., mun ég bera fram brtt. við hana. Ef það á að fara að setja aðra menn og málunum ókunnuga í stað þeirra, sem hafa unnið að þessu lengi, þá mun ég ekki láta þessa till. ganga umræðulaust í gegnum síðari umr., og þessari till. liggur heldur ekkert á.