04.10.1943
Sameinað þing: 16. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 348 í D-deild Alþingistíðinda. (3495)

50. mál, gagnfræðanám

Jónas Jónsson:

Ég er að vísu bæði með og móti þessari þáltill. Ég veit, að það vakir fyrir flm. hennar að gera þeim mönnum úr kauptúnum og sveitum landsins, sem löngun hafa til þess að ganga háskólaveginn, gönguna léttari fyrstu þrepin.

Það var nýlega samþykkt á bændafundi austan lands að bera fram þá ósk, að Eiðaskóla yrði breytt í gagnfræðaskóla að nokkru leytí. Hygg ég, að meðal annars þessi ósk fólksins úti um byggðir landsins geti að nokkru réttlætt till. þá, sem hér liggur fyrir.

Það er nokkuð vafasamt, hvort rétt sé að breyta lögum um héraðs- og gagnfræðaskóla þannig, að þeir yrðu eins konar trekt, sem lægi upp í háskóla.

Héraðs- og gagnfræðaskólalögin frá 1930 gera ráð fyrir skólum með sérstöku sniði. Þeim er ekki ætlað að búa nemendur sína beinlínis undir það að ganga langskólaveginn, heldur veita hagkvæma menntun, bæði bóklega og verklega, sem öllum má að gagni koma í daglega lífinu.

Ég held, að hægt væri að ná því marki, sem flm. stefna að, þótt farnar séu aðrar leiðir en fyrir þeim virðist vaka. Vil ég í því sambandi nefna Flensborgarskólann í Hafnarfirði, sem er eins konar brú nokkuð áleiðis inn í menntaskólana.

Þegar Alþ. breytti l. um héraðsskólana árið 1939, var gert ráð fyrir ýmsum breyt. á fyrirkomulagi þeirra, þótt þær breyt. séu ekki komnar til framkvæmda vegna yfirstandandi styrjaldar.

Héraðsskólarnir eru nú helztu íþróttaskólar landsins og vinnuskólar og mjög ólíkir þeim gagnfræðaskólum, sem miða að því að búa nemendur sína undir menntaskólanám og eru nokkurs konar þáttur, sem liggur til menntaskóla og háskóla. Vil ég skjóta því til flm. till., að Alþ. er hér búið að móta sérstaka tegund skóla, sem búa ekki nemendur sína undir menntaskólanám. Í þeim er lögð mikil áherzla á íþróttir. Þar eru nemendum kennt að hirða herbergi sín, annast þvotta og ræstingu, og er það athyglisverð nýjung. Auk þess venjast nemendur ýmsum öðrum gagnlegum vinnubrögðum. Skólarnir eru félitlir, og skortur á kennslubókum og áhöldum hefur verið talsverður, síðan stríðið skall á, en úr því verður bætt smátt og smátt.

Alþingi 1939 leit svo á, að ekki væri heppilegt að breyta héraðsskólunum í bóklega skóla. Vil ég nefna í því sambandi Flensborgarskólann, sem land og bær hefur nýlega byggt yfir af rausn ig myndarskap. Það fólk, sem sækir hann, fer að námi loknu út í atvinnulífið. Það eru aðallega sjómenn og sjómannakonur, sem búa sig þar undir lífsbaráttuna. Ég álít það ekki heppilegt fyrir þá, sem halda áfram námi, að fara þangað, því að skólinn er ekki sniðinn sem framhaldsskóli. Ég tel, að það eigi við um gagnfræðaskólana eins og héraðsskólana að breyta þeim nokkuð og kenna meira verklegt í þeim.

Það kemur fljótt í ljós, hvort nemendur þessara skóla hafa áberandi námshæfileika. Þm. V.-Sk. og núverandi kennslumálaráðh., sem báðir eru ágætir námsmenn, hafa t. d. báðir verið í Flensborgarskólanum og vöktu þá þegar athygli á sér. En það má engan veginn sveigja út af aðalbrautinni vegna fárra manna, sem stunda vilja langskólanám. Ef til vill má koma því svo fyrir, að þessari till. verði breytt á þann veg, að hún gæti orðið sem eins konar net, sem lagt yrði fyrir þann kjarna, sem vildi halda áfram námi.

Ég hygg, að rétt sé að leggja áherzlu á að gera skólana þannig, að þeir verði sem aðgengilegastir, bæði fyrir þá, sem einkum vilja stunda bóklegt nám, og hina, sem fremur kjósa það verklega. Það eru ekki allir mjög hrifnir af bóknámi, og verður árangurinn af starfi þeirra skóla, sem áherzlu leggja einkum á það, aft mjög misjafn. Eru barnaskólarnir gott dæmi um það. Ef hægt væri að breyta þeim að nokkru leyti í vinnuskóla, mundu koma þaðan fleiri menn, sem yrðu góðir og gegnir borgarar þjóðfélagsins. Það er að vonum, að tekið sé til athugunar, að í Menntaskólanum í Reykjavík er enginn maður úr sveit. Þm. nærliggjandi héraða segja sem svo: Fólk úr okkar byggðarlögum á þess ekki kost að sækja þennan skóla, og þó er þetta skóli Suður- og Vesturlandsins. Úr þessu viljum við gjarnan bæta. — Nú er bætt úr þessu á þann hátt, að menn úr næstu sýslum við Reykjavík senda börn sín norður á Akureyri, í menntaskólann þar. Það er eðlilegt, því að Menntaskólinn í Reykjavík er að nokkru leyti lokaður.

Ég álít ekki tilvinnandi, að gerð verði sú breyt. á gagnfræða- og héraðsskólalögunum, að þeir verði neðsta trappan á leiðinni til háskóla. Hins vegar verður að gera þeim, sem það vilja, kleift að ganga háskólaveginn. En til þess verður að fara aðra leið en þá að breyta um héraðs- og gagnfræðaskólana.