04.10.1943
Sameinað þing: 16. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 349 í D-deild Alþingistíðinda. (3496)

50. mál, gagnfræðanám

Flm. (Sveinbjörn Högnason):

Hv. þm. Snæf. taldi till. þessa fram komna að ástæðulausu, þar sem nú væri starfandi nefnd, sem hefði skólamál landsins til athugunar. En eins og ég tók fram í framsöguræðu minni, er þörfin mjög mikil á því, að þetta verði tekið fljótt til athugunar. Skipulagsleysið er svo mikið í þessu efni, að ekki er hugsanlegt að draga það lengur að fá úr því bætt.

Það er ekki tilgangur till. að samræma gagnfræðanámið til þess, eins og hv. þm. S.-Þ. komst að orði, að gagnfræða- og héraðsskólarnir verði neðsta trappan upp í menntaskólana, heldur að samræma gagnfræðakennsluna í landinu. Það er hægt að hugsa sér, að menn með gagnfræðamenntun eigi aðgang að fleiri skólum en menntaskólum.

Þótt rétt sé, sem hv. þm. S.-Þ. sagði, að ekki væri vert að leggja of mikið kapp á bóknám, þá er það svo nauðsynlegt að afla sér viss forða þekkingar eins og gagnfræðamenntunar, að það er ekki álitamál. Það er ekki hægt að hugsa sér að komast af án þess að gera vissar þekkingarkröfur til manna. Það er engan veginn tilgangur þessarar till., eins og þm. S.-Þ. virðist álíta, að gerbreyta héraðsskólal. og öllu fyrirkomulagi þeirra skóla. Það væri hægt að hugsa sér, að bekkirnir væru tvískipaðir. Annar legði meiri stund á bóklegt nám, hinn verklegt. Yrði þannig reynt að greina á milli þeirra, sem leggja vildu meiri áherzlu á bóklegt nám, og hinna, sem einkum vildu stunda verklegt. Þá taldi þm. S.-Þ., að ekki ætti að miða skólana eingöngu við þá, sem stunda vilja bókleg fræði. Það er að vísu rétt, en ekki er hægt að miða þá við þá nemendur, sem eiga erfiðast með að læra, og sé ég ekki ástæðu til að taka meira tillit til þeirra en hinna. Virðist auðséð, að heppilegast sé að veita nemendum ákveðinn þekkingarforða, hvort sem hugur þeirra hneigist meira að verklegu eða bóklegu námi.

Ég er sannfærður um, að hv. Alþ. mun taka málið föstum tökum, því að það þarfnast úrlausnar sem fyrst. Það er óverjandi ástand, sem nú ríkir í þessum málum og þessum skólum, til niðurdreps, ef þeim verða ekki fljótlega settar einhverjar reglur sem öðrum.