15.10.1943
Sameinað þing: 19. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 350 í D-deild Alþingistíðinda. (3501)
50. mál, gagnfræðanám
Eysteinn Jónsson:
Það vakti fyrir okkur, sem stöndum að þessari þáltill., að koma því til vegar, að þau atriði, sem till. fjallar sérstaklega um, verði rannsökuð hið fyrsta. Við vissum um mþn., en fluttum þáltill. eigi að síður, til þess aði leggja áherzlu á, að einnig þessi þáttur kennslumálanna yrði tekinn fyrir. Flm. hefði fallið betur, ef þáltill. hefði verið samþ., því að í því hefði fólgizt stefnuyfirlýsing af hálfu þ. En samt er ekki sérstök ástæða til að rísa á móti þeirri afgreiðslu, sem n. vill hafa, því að hún ætti líka að geta tryggt það, að þetta atriði verði ekki út undan. Við hefðum sem sé kannske kosið annað, en gerum þó engan ágreining.