22.11.1943
Neðri deild: 51. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 354 í D-deild Alþingistíðinda. (3511)

156. mál, rannsóknarnefnd vegna eyðileggingar á kjöti og öðrum neyzluvörum

Ingólfur Jónsson:

Herra forseti. Síðasti ræðumaður endurtók mikið af því, sem áður hefur verið sagt um hraunkjötsmálið, svo að það er óþarfi að fara að halda hér langa ræðu um það, þar sem það hefur verið svo mikið rætt. Annars er það vitað mál, að það eru tiltölulega fáir, sem leggja mikið upp úr því, sem þessi hv. þm. eða fylgifiskar hans hafa sagt um þetta mál, og ólætin í blöðunum út af þessu eru öllum kunn. Hafnfirðingar töldu þetta kjöt hinn bezta mannamat og töldu, að þarna væri sprottin upp heil náma fyrir þá, sem mundi nægja þeim til langs tíma. Það er dálítið einkennilegt, þegar dýralæknir er búinn að gefa úrskurð um, að þetta kjöt sé ónýtt, að Hafnfirðingar skuli geta lagt sér það til munns. Og hvað hefði verið sagt, ef þetta kjöt hefði verið flutt í kjötverzlanir og selt þar dýru verði þrátt fyrir úrskurð dýralæknis um, að það væri skemmt og ekki fyrsta flokks kjöt? (EmJ: Lét dýralæknir rannsaka allt kjötið?). Dýralæknir fór yfir allt kjötið, áður en það fór til úrgangs. En kjörorð sósíalista er, að Alþ. taki að sér rannsókn í þessu kjötmáli, og ekkert annað virðist koma til greina. Þeim er ekki nóg, að SÍS hefur falið dómsmrn. að taka að sér rannsókn á þessu máli - og ekki aðeins á því, hverjir hafa tekið kjöt úr hrauninu, heldur á kjötmálinu yfirleitt, og er þessi rannsókn nú hafin. Það er dálítið einkennilegt, ef lögreglustjórarnir eru ekki færir um að hafa á hendi slíkar rannsóknir sem þessar. Og það er þá alveg nýtt í þingsögunni, ef endilega á að kalla þm. til rannsókna og athugana á málum, sem verða að þrætumálum meðal þjóðarinnar. En það má vera, að það sé vegna þess, að þingið hafi ekki önnur verkefni að leysa. Ég hefði þó haldið, að á þeim tímum, sem nú ganga yfir heiminn, gæti hæstv. Alþingi Íslendinga fundið sér annað verkefni en það að sletta sér fram í það, sem því kemur ekkert við. Og þeir, sem starfað hafa á Alþ. á undan okkur, hafa ekki talið það í sínum verkahring að skipta sér af málum sem þessum.

Hv. þm. Siglf. fullyrti hér áðan, — sem sannar, að hann er ekki vandur að málflutningi sínum, að ekkert 1. flokks saltkjöt hefði verið á boðstólum í fyrravetur, og að Samb. ísl. samvinnufélaga hefði haldið því til baka. Ég vil upplýsa, að það er ekki rétt, að Samband ísl. samvinnufélaga hafi eitt haft ákvörðunarrétt á því, hvernig kjöt er verðlagt eða hvort það er á boðstólum eða ekki. Ég vil taka á mig nokkuð af þeirri ábyrgð. Ég vil einnig upplýsa, að það er ekkert satt í því, að 1. flokks saltkjöt hafi ekki verið alltaf á boðstólum í fyrravetur.

Hv. þm. Siglf. viðurkenndi, að saltkjöt hafi orðið það mikið á síðasta hausti (1942), að litlar líkur væru til þess, að það seldist innan lands. Hann veit, að slátrun var með mesta móti haustið 1942. Og hann veit, að það vantar íshús á mörgum stöðum á landinu. Þar af leiðir, að það er ekki hægt að verka kjöt á þeim sömu stöðum nema í salt. Kjötverðlagsn. vissi, að allt það kjöt, sem saltað var 1942, gat ekki selzt á innlendum markaði, en samt gæti selzt meira af því en saltkjötsneyzlan hafði verið undanfarin ár. Þess vegna var seinni partinn í fyrravetur farið að leita eftir að selja saltkjöt úr landi, og í maí s. l. var upplýst, að takast mundi sala á saltkjöti til Englands. Þá var samið um söluna á kjötinu þangað, og samningar náðust um sölu á 1000 tunnum til Englands, en það var það magn, sem sýnilegt var, að ekki mundi seljast innan lands. En vegna þess, hver tregða var með að fá kjötið flutt vegna flutningaörðugleika, drógst flutningurinn á því þangað til í september s. 1., að hægt var að koma kjötinu á markaðinn. En áður en kjötið væri flutt út, voru matsmenn og dýralæknir kvaddir til að rannsaka kjötið, enda sjálfsagt skilyrði, að það yrði ekki látið fara án þess. Niðurstaðan af þessari rannsókn varð sú, að aðeins 346 tunnur reyndust ógallaðar af þessum 1000 tunnum og söluhæfar til útflutnings. Nokkrar voru gallaðar, en þó nothæfar innan lands, en um 200 tunnur voru dæmdar óætar. Þessar gölluðu tunnur, sem þóttu ekki hæfar til útflutnings, en þó hæfar til manneldis, voru seldar með afföllum hér innan lands. En þeim 200 tunnum, sem dýralæknir taldi óætar, var ekið suður í Hafnarfjarðarhraun og dysjaðar þar. Og þetta er það, sem Hafnfirðingar telja ljúffengan mat og hafa gert sér að góðu.

Nú hefur því verið haldið fram, að saltkjötið hafi skemmzt og þetta hafi komið fyrir einungis vegna þess, að bannverð hafi verið sett á þessa vöru haustið 1942. Nú getum við athugað þetta og farið í skýrslu, sem þegar er búið að gera, en ég að vísu hef ekki við höndina hér, en hún mun sjást í dagblöðunum, áður en langt um líður. Og af þeirri skýrslu sést, að kjötneyzlan af framleiðslunni 1942 er meiri en hún hefur verið nokkru sinni áður. Og það sannar, að verðlag á kjöti 1942 hefur ekki verið því til fyrirstöðu, að salan væri eðlileg og kjötsins væri neytt. En það var vegna þess, að það var meira saltað af kjöti árið 1942 en nokkru sinni áður, að þessar 1000 tunnur voru afgangs. Og þegar athugað er, hvernig kjöt hefur verið verkað undanfarin ár, þá upplýsist, að allt til stríðsbyrjunar hefur verið saltað árlega 600–800 tonn af kjöti. Það má því teljast kraftaverk, að saltkjöt skuli ekki hafa eyðilagzt í stórum stíl, þegar útlendi markaðurinn lokaðist, en ekki var hægt að breyta verkunaraðferð eins og þurfti.

En ástæðan til þess, að kjötið skemmdist, var sú, að ekki var hægt að flytja það út fyrr en í september, og síðan stríðið byrjaði, hefur ekki verið hægt að fá til landsins nýjar tunnur. Það hefur orðið að nota undir kjötið gamlar tunnur, sem svo hafa reynzt þannig, að pækillinn hefur lekið úr þeim. Og einungis af þessum ástæðum skemmdist kjötið, en ekki vegna verðlagsins á saltkjötinu.

Ég mótmæli því, að ekkert hafi verið gert af kjötverðlagsn. eða þeim, sem kjöt áttu, til þess að greiða fyrir sölu á saltkjöti. Strax haustið 1942 var saltkjöt lækkað um 40–50 aura og selt þeim mun lægra en frosið kjöt, og var þetta gert til þess að ýta undir sölu á þessari vöru, enda kom í ljós, að saltkjöt hefur selzt meira af framleiðslu ársins 1942 innan lands en árin áður. En það má vel vera, að eitthvað hefði verið notað meira af þessari vöru, hefði kjötið verið lækkað niður í helming fyrrverandi verðs eða hver veit hvað. Það skal ég ekki segja um. Og það getur vel verið, að hv. þm. Siglf. (ÁkJ) álíti, að það geri ekkert til, þó að bændur fái ekki nema hálft verð fyrir vöruna. En þar sem vitað var, að hægt var að selja það, sem fram yfir var innanlandssöluna til Englands, þá var ekki ástæða til þess að setja verðið niður úr öllu valdi, því að það var ekki vitað fyrir fram, að það mundi dragast allt sumarið, að hægt yrði að koma til Englands kjötinu, sem þangað hafði verið samið um sölu á, né heldur, að tunnurnar, sem saltkjötið var í, væru lekar, þannig að kjötið geymdist ekki í þeim.

Það má þó segja, að eitt gott sé við þessa þáltill., a. m. k. grg. hennar, því að þar kemur fram umhyggja fyrir bændum. Grg. þáltill. er einn lofsöngur um bændur, og hv. flm. þessarar þáltill. sjá sig tilknúða að bera till. fram af umhyggju fyrir bændum í nútíð og framtíð. Það er nú gott að fá þetta fest á pappír. En það nægir bara ekki, þó að það sé sett á pappírinn, að þetta sé hugur kommúnista til bænda, því að verkin segja annað, sem þeir koma með þarna á móti og stangast á við þetta, sem í grg. stendur, um umhyggju þeirra fyrir bændum. Og bændur sjálfir munu ekki taka því með þökkum, þó að sjálfir kommúnistar komi með till. eins og þessa. Þeir munu skilja, að það er ekki af umhyggju fyrir þeim, sem þetta er komið fram, heldur að þetta er gert til þess að æsa neytendur gegn framleiðendum og að þetta er einn þáttur þeirrar áróðursherferðar, sem af þeim er nú farin til þess að æsa neytendur upp á móti framleiðendum og móti heilbrigðum atvinnurekstri.

Þá er það eitt atriði, sem hv. þm. Siglf. talaði um áðan, að það væri um allt annað mál að ræða, þegar búið væri að bæta þetta kjöt upp með framlögum úr ríkissjóði. Ég ætla ekki að standa hér eins og maður, sem leiddur er fyrir rétt, og segja, að þetta hafi ekki verið gert. Nei, ég ætla að lofa hv. þm. Siglf. og öðrum kommúnistum að hafa það, sem þeir vilja. Ef þessi till. verður samþ., þá er ekkert líklegra en að hv. þm. Siglf. verði skipaður í nefndina, og þá kemur hann á skrifstofu kjötverðlagsn. og rannsakar skjölin, og þá fær hann að sjá sannleikann í réttu ljósi. Það er þess vegna kannske bezt, að þessi maður og kommúnistar allir bíði með nokkurri eftirvæntingu eftir því að vita, hvort það er sannleikur eða lygi þær upplýsingar, sem ég hef nú greint og birtar mundi verða innan skamms, — því að það er auðheyrt, að þeir trúa því ekki, sem áður hefur verið sagt hér í hv. d. og í blöðum um þetta. Og ég hirði því ekki um að vera að endurtaka það nú.

Þá var það, sem hv. þm. Siglf. talaði um áðan, að undir þessu skipulagi, sem nú ríkti í kjötsölumálunum, gætu einstaka menn séð sér beinan hagnað í því að fleygja kjöti og það væri bara vegna þess, hvernig skipulagið er. Þetta held ég, að fáir eigi gott með að skilja nema hv. þm. Siglf. og aðrir kommúnistar, hvernig hægt er að hafa hagnað af því að eyðileggja matvæli, sem til hefur staðið að selja fullu verði.

Hv. þm. Siglf. talaði um, að nauðsynlegt væri að breyta skipulaginu og þá náttúrlega kjötsölulögunum. Það eru þessir menn, sem þykjast sjá lengra en bændur sjálfir og þykjast í öðru orðinu vilja bera umhyggju fyrir þeim, er halda þessu fram. En er það þá vegna þess, að bændur viti ekki sjálfir, hvað að þeim snýr? Er það vegna þess, að bændur viti ekki, hvort þeir hafa hag af þessu skipulagi eða þessum 1.? Eða er það af því, að kommúnistar einir séu bærir um að dæma um það, hvað bændum er fyrir beztu? Ég fullyrði, að bændur kæra sig ekkert um, að þessu verði breytt. En það er kannske af því, að þeir séu ekki bærir um að vita, hvað þeim er fyrir beztu, en það séu kommúnistarnir í Reykjavík, sem eiga að vera þeim leiðarljós og benda þeim á rétta leið?! Það lítur út fyrir, að hv. þm. Siglf. og aðrir kommúnistar þykist ætla að reyna að halda slíku fram.

Ég benti á það áðan, að það mundu ef til vill vera fáir hv. þm., sem vildu taka að sér þessa rannsókn eða fara í þessa n., sem á að hlaupa fram fyrir skjöldu og taka að sér að leysa það, sem lögregluvaldinu er ekki treyst til að gera. Það má vel vera, að hugsunarháttur minn sé ólíkur hugsunarhætti margra annarra hv. þm., en það mætti segja mér, að þeir væru mjög fáir, að undanteknum kannske hv. þm. Siglf., sem óskuðu eftir að taka sæti í þeirri n.

Þá var það eitt, sem hv. þm. Siglf. talaði um, að það væri vegna sóma landsins, sem þingið þyrfti að skipa þessa n. í þetta mál. Ég held hins vegar, að það gæti eins vel orðið til ósóma fyrir landið, að löggjafarsamkoma þjóðarinnar, sú virðulega stofnun sé að sletta sér fram í þau verkefni, sem öðrum heyra til, en vanræki svo skyldur sínar. — Annars er gott að heyra það, að þessir hv. þm. tala um að gæta sóma landsins. Það kannske reynir á það fyrr en seinna, að þeir þurfi að taka þátt í því að gæta sóma landsins.

Ég sé nú ekki ástæðu til þess að fjölyrða meira um þetta mál að þessu sinni. Ég fyrir mitt leyti hef ekkert á móti því, að þessi þáltill. verði samþ. og hv. þm. Siglf. fái einu sinni að koma á skrifstofu kjötverðlagsn. og athuga plögg þar. Ég býst við, að árangurinn af því verði næsta lítill, þó að till. verði samþ. Ég býst við, að það geti komið fyrir, þó að þessi þáltill. verði samþ., að næsta haust eða næstu haust verði e. t. v. að fleygja einhverju af skemmdu kjöti, því að það er ekkert nýtt fyrirbrigði, að matvæli skemmist að einhverju leyti, þó að í þessari þáltill. sé aðeins nefnt kjöt. Það er ekki gerður háv aði út af því, þó að síld skemmist og þó að fleygja þurfi mörgum tunnum af síld, jafnvel svo að tugum og hundruðum tunna skiptir. Og áður en þessi kjötsölulög gengu í gildi, kom það fyrir, að kjöt skemmdist, þótt ekki væri það vitað, fyrr en kjötið var komið út fyrir landsteinana og á bryggju utan lands. Og það er ekki verið að fárast yfir því, þó að fiskur og hrogn skemmist og sé ekið í sjóinn. (SigfS: Jú, það er einmitt miðað að því í þáltill.). Ef hv. þm. Siglf. á að taka sæti í þessari n., þá hygg ég, að það sé rétt að koma með brtt. við þá þáltill. og láta verkefni þessarar n. ná út yfir það líka — (SigfS: Þáltill. nær það.) —, því að það er ekki nema gott að sjá um, að ekki skemmist önnur matvæli heldur. Og rétt er að athuga það, að ef herferðinni gegn bændum er haldið áfram eins og hún hefur verið farin að undanförnu og fólkstraumurinn fyrir það heldur áfram úr sveitunum til kaupstaðanna eins og að undanförnu, þá þurfa sósíalistar ekki að kvíða því, að það verði offramleiðsla af kjöti hér í landinu. Það má vel vera, að eftir aðeins fá ár verði þá kvartað undan því, að ekki sé nóg kjöt til í landinu. En þá verða þessir menn ekki í vandræðum, því að þeir hafa margsinnis lýst yfir því, hvað þeir ætli þá að gera: fá kjöt frá Ameríku, því að þar er það nóg. Og ef ekki verður framleidd nóg mjólk hér í sveitum landsins, þá á líka — skilst mér — að fá hana frá Ameríku. Þess vegna finnst þeim ekkert athugavert við það, þó að fólkið flykkist úr sveitunum og bæirnir taki við því, án þess að atvinnuskilyrði séu fyrir hendi fyrir fólkið þar. Það gerir ekkert til frá þeirra sjónarmiði, þó að sveitirnar tæmist, því að þetta megi fá frá Ameríku, sem hér er nú framleitt í sveitum landsins. Þannig er hugsanagangur þessara manna. Og ef aðgætt er, hvað þessir menn hafa talað og skrifað á undanförnum missirum og undanförnum árum, þá þurfum við ekkert að undrast það, þó að þessir menn komi fram með dálítið einkennilegar till. á Alþ.