10.12.1943
Neðri deild: 61. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 359 í D-deild Alþingistíðinda. (3522)
156. mál, rannsóknarnefnd vegna eyðileggingar á kjöti og öðrum neyzluvörum
Eysteinn Jónsson. Herra forseti. Þessi till. til þál. fer fram á, að skipuð verði sérstök fimm manna rannsóknarnefnd, sem hafi það verkefni að rannsaka matvælaskemmdir þær, er um ræðir í till., en það er fyrst og fremst allt viðvíkjandi kjötnámunum í Hafnarfjarðarhrauni, og skal n. hafa vald til að krefja menn um skýrslur svo og um nauðsynlega aðstoð. Það er eigi alllítið verk, sem n. þessari er ætlað, en ég kem síðar að því atriði, hver nauðsyn er til nefndarskipunar í þessu máli.
Enn fremur er ákvæði um, að n. þessi skuli rannsaka skemmdir á kjöti og öðrum matvælum. Nú er ekki venja, að þannig sé farið að nema þegar ríkar ástæður liggja fyrir hendi um mikið ólag og óhæfu. En þótt hér sé svo óvenjulega að farið, þá gera flm. sér ekkert far um að skýra, af hverju þetta sé svo brýn nauðsyn. Það skortir fullkomlega rök fyrir því, af hverju þeir krefjast, að slík rannsókn fari fram. Hitt vita menn, að þessir þm. eru haldnir ofsóknaræði gegn samtökum bænda.
Þá skal ég víkja örfáum orðum að því, sem er aðalatriði þessarar till. Það kom heldur en ekki gott hljóð í flm., þegar fréttist um, að fundizt hefði kjöt í Hafnarfjarðarhrauni. Þeir túlkuðu þetta þegar á þann veg, að þetta kjöt hefði verið eyðilagt af ásettu ráði til þess að halda uppi hinu háa verði á kjöti, og því fer alls fjarri, að þeir hafi kvikað frá þessari skoðun sinni. Annað veifið tala þeir þó um sleifarlag á meðferð þessara mála. Er augljóst, að þá langar til að halda hér uppi tvenns konar áróðri, sem getur þó alls ekki samrýmzt. Er þetta gott dæmi um málflutning þessara manna.
Það er upplýst í þessu máli og ekki unnt að vefengja það, og það hefur ekki heldur verið reynt að vefengja það, að það kjöt, sem Samband íslenzkra samvinnufélaga hefur látið urða í. Hafnarfjarðarhrauni, er að magni um 20 smálestir. Enn fremur ættu allir menn að vita það, að kjötmagn það, sem selt er hér innan lands nú, leikur frá 3000 til 3500 smálesta. M. ö. o., það kjöt, sem farið hefur verið með suður í Hafnarfjarðarhraun og urðað þar, er ekki nema eitthvað í kring um 5–6% — fimm til sex af þúsundi — af því kjötmagni, sem verzlað er með í landinu sjálfu. Þetta ætla ég, að ætti að vera nægilegt til þess að upplýsa það, hvers konar fjarstæða annað eins er og það, að nokkrum manni detti í hug að koma fyrir kattarnef 5–6%, af einhverri vöru til þess að gera markað fyrir vöru rýmri og það eigi að vera eitthvert atriði til þess að geta haldið uppi verðinu. Og þetta sýnir ekki annað en — ja, hvers konar aumingjar hér eru að verki, að þeir skuli leyfa sér að bjóða mönnum upp á aðrar eins fjarstæður og þessar. Ef gera hefði átt ráðstafanir til þess að rýma á markaðinum, þá hefði orðið að taka öllu betur á en að koma fyrir kattarnef (eða minkanef?) 5–6% af framleiðslunni. Það ætla ég, að allir geti séð, jafnvel þeir, sem glórulitlir eru vegna andúðar gegn kjötframleiðendum og ákafa um það að koma illu af stað, eins og virðist vera um flm. þessarar þáltill., því að það getur ekki verið miðað við annað en koma illu af stað að halda á málum eins og gert hefur verið í sambandi við þetta mál, það er óhugsandi. Það sér hver skynbær maður. [Frh.].