15.12.1943
Neðri deild: 64. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 386 í D-deild Alþingistíðinda. (3537)

156. mál, rannsóknarnefnd vegna eyðileggingar á kjöti og öðrum neyzluvörum

Gunnar Thoroddsen:

Ég tel fulla þörf á rannsókn á þessu máli, sem tillagan fjallar um, og hana því ekki ófyrirsynju fram komna. Hins vegar mun nú fara fram rannsókn á þessu máli, og má vafalaust láta hana nægja, a. m. k. í bili. En ég get alls ekki fellt mig við þessa rökst. dagskrá að orðalagi til, og að ýmsu öðru leyti er ég á móti því, sem í henni er sagt, og greiði ég því ekki atkv.