27.10.1943
Sameinað þing: 22. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 424 í D-deild Alþingistíðinda. (3615)
98. mál, neyzlumjólkurskortur
Eysteinn Jónsson:
Það hefur nú komið í ljós á þessu hausti ákaflega sterkur áhugi hjá mörgum hv. þm. á því, að Reykvíkingar hafi nægilega mjólk, bæði góða mjólk og eins mikla og þeir þurfa á að halda. Það hefur greinilega komið í ljós við þessar umr. og þann mikla áhuga, sem hefur lýst sér í þessum efnum, að það er eitthvað sérstakt og meira og annað en hinn almennur áhugi á velferð bæjarbúa, sem liggur hér á bak við. Og það var ákaflega auðvelt að sýna fram á þetta, enda hefur það verið gert í þeim umr., sem hér hafa átt sér stað. Við vitum það ákaflega vel, Reykvíkingar, að það er margt fleira, sem amar að í þessum bæ en það, að hér eru á hverju hausti, í þrjár til fjórar vikur, nokkrir örðugleikar á því að fá næga mjólk. Við vitum það ákaflega vel, bæjarbúar, að um sumar aðalnauðsynjavörur okkar er svo ástatt, að oft er mjög erfitt að fá þær, og það, sem við fáum þá af þeim, er illa með farið og lélegt oft og tíðum. Um þetta hefur hins vegar ekki verið fjallað af hálfu þeirra manna, sem hér hafa látið sér mest hugað um mjólkurmálin. Það er hverju mannsbarni vitanlegt, hvernig er ástatt um fiskinn, sem er ein aðalneyzluvaran í bænum. Samt er það svo hér langtímum saman, að það er nærri ómögulegt að fá fisk, sem ætur getur talizt. Það er þó ekki fyrir það, að það sé ekki á þeim sömu tímum veiddur fiskur það nærri Reykjavík, að mögulegt sé fyrir bæjarbúa að eiga aðgang að þessari vöru í góðu ásigkomulagi, heldur er þetta fyrir einskært sleifarlag á dreifingu og sölumeðferð fisksins og meðferð hans allri saman. Auðvitað er það, þegar ógæfta kaflar koma, að ekki er hægt að fá nýjan fisk. En á þeim tímum, þegar nægur afli hefur verið í nágrenni Reykjavíkur, þá er oft ekki hægt að fá þessa vöru í sæmilegu ásigkomulagi. En þó að þessu sé svo varið, þá verður varla vart við það, að t. d. bæjarstjórn Reykjavíkur láti sig þetta nokkru varða eða nokkrar ráðstafanir séu gerðar, sem vert er að nefna, til þess að bæta úr þessu ófremdarástandi. Ef þessir menn, sem hér láta sér tíðast um mjólkurmálin, störfuðu að þessum málum, fisksölumálunum í bænum, svipað og þeir gera viðkomandi mjólkurmálunum, þá ættu blöðin hér í Reykjavík, þegar ekki er hægt að fá nóg af nýjum og góðum fiski, — sem er æði oft —, að vera barmafull af ákúrum og skömmum í garð sjómanna og útgerðarmanna fyrir það, að þeir fari ekki á sjó og vanræki að sjá bæjarbúum fyrir nægum fiski, sem blöðin þá væntanlega héldu fram, að væri skylda þeirra að sjá um.
Eftir sömu stefnu ætti hver greinin að koma eftir aðra í blöðunum um, að þessi stétt hefði enga forsjá í að fara með þessa vöru og koma henni á markaðinn, þó að hún gæti komið henni á land. Mér sýnist, að ekki sízt ættu þessir hv. þm. að hella sér út yfir sjómenn og útgerðarmenn fyrir að selja erlendis meginhlutann af þeim afla, sem þeir draga á land, því að það vitum við vel, að oft er það svo, að mikill afli er fluttur til útlanda, þó að fisklaust sé í Reykjavík. Ef hliðstætt væri búið að þeim, sem afla fisks, og þeirra, sem framleiða og selja mjólk, væri haldið á málunum á þessa lund af þessum hv. þm. Enginn má samt taka orð mín svo, að ég sé að harma það, að sjómenn og útgerðarmenn skuli ekki á þennan hátt leiknir á sama hátt og bændur, heldur bendi ég á þetta til þess að sýna samræmið í starfi þessara hv. þm. og til þess að leiða hugsun manna að því, hvort undirrótin að öllu þessu tali þeirra og till. um mjólkurmálið sé einskær áhugi á, að menn geti fengið nægilega mikið af góðri mjólk, eða hvort það muni ekki vera fleira, sem þar kemur til.
Því verður ekki neitað, að það ber vott um hreina vanrækslu af hendi þeirra, sem eiga að sjá fyrir málefnum bæjarbúa, hvernig fisksölumálin eru hér í bæ. Þessir menn ættu að taka sér fram um að skipuleggja fiskverzlunina, fyrst þeir, sem afla fisksins, telja sig ekki hafa ástæðu til að gera það.
Svipað er að segja um vatn og rafmagn í bænum, svo að tveir liðir séu nefndir, og fiskinn að þessu leyti. Nú er rafmagnsskorturinn svo mikill þann hluta sólarhringsins, sem mest er að gera við heimilisstörf og iðnað, að iðnaðarmenn verða að standa 2–3 tíma á dag aðgerðarlausir og horfa á vélarnar og húsmæður geta naumast soðið mat sinn. Þetta gerir ekkert til, af því að bændur eiga hér ekki hlut að máli. Þá þarf ekki að tala um allt það fjárhagslega tjón og allan þann baga, sem af þessu leiðir. Hvernig halda menn, að það liti út, sem kæmi frá þessum hv. þm., ef mjólkurskorturinn væri eitthvað sambærilegur við rafmagns- og vatnsskortinn í bænum?
Nú skal ég ekki fullyrða, að hve miklu leyti rafmagns- og vatnsskorturinn á rætur sínar að rekja til þess, að setuliðið fær að taka vatn úr bæjarkerfinu og rafmagn úr rafmagnsveitu bæjarins. Hitt fullyrði ég, að ættu bændur að sjá bæjarbúum fyrir rafmagni og vatni, þá væri ekki um það spurt, áður en farið væri að ráðast á þá fyrir að selja setuliðinu nokkra vitund af þessum nauðsynjavörum. Það sannar meðferð mjólkurmálanna nú hér á þingi.
Nú veit ég, að rafmagnsskorturinn stafar að einhverju leyti af því, að setuliðið hefur fengið rafmagn keypt hjá bænum, enda er upplýst af hv. 6. þm. Reykv., að setuliðið fær rafmagn keypt, þó að hann segi, að hægt sé að koma því þannig fyrir, að það sé tekið á þeim tíma, sem afgangur er á rafmagni hjá bæjarbúum. En þetta getur ekki komið til mála, því að það vita allir, sem við iðnað fást, að það er ekki aðeins fyrir hádegi, sem stórkostleg vöntun er á rafmagni, svo að menn verða þá einatt að standa og horfa á vélarnar, heldur er allur iðnaður einnig miklum vandkvæðum bundinn eftir hádegið vegna vöntunar á rafmagni. Ég skal ekki segja það sama um vatnið, en það þori ég að fullyrða, að ættu bændur að leggja til þessa nauðsynjavöru, þá mundi heyrast hljóð úr horni af hálfu þessara hv. þm. En af því að það eru ekki bændur, sem þar eiga hlut að máli, þá er þetta allt borið með jafnaðargeði og tæplega einu sinni svo, að þeir, sem hlut eiga að máli, þurfi að ómaka sig til að útskýra, hvernig á þessum skorti stendur. Svo gersamlega sinnulausir eru þeir, sem eiga að upplýsa bæjarbúa um, hvernig ástatt er í þessum málum, og svo gersamlega sinnulausir eru þeir um að fá málin upplýst, hvað þá meira, ef bændur eiga ekki hlut að máli. Ég held, að ómögulegt sé annað en sjá þá hlutdrægni, sem kemur fram í meðferð mjólkurmálsins, ef sú meðferð er borin saman við þau málefni, sem ég hef nú minnzt á.
Ég minntist áðan ofurlítið á setuliðsvinnuna annars vegar og mjólkursöluna til setuliðsins hins vegar. Ég benti á, að því hefði verið haldið fram af forsvarsmönnum verkalýðsins, að sjálfsagt væri, að verkamenn ættu að hafa sem allra óbundnastar hendur um að ráða sig í verkamannavinnu hjá setuliðinu, og því hefur verið illa tekið af ýmsum hv. þm., ef átt hefur að gera nokkrar takmarkanir í þessu efni. Ég hélt fram, að þetta væri hliðstætt mjólkursölunni til setuliðsins. Hv. þm. Hafnf. mótmælti þessu. Hann sagði, að það væri ekki hliðstætt, vegna þess að mjólkurframleiðendum á verðjöfnunarsvæði Reykjavíkur beri skylda til að sjá fyrir nægilega mikilli mjólk, vegna þess að þeir hefðu einkarétt til að selja mjólk til Reykjavíkur. Það er rétt, að þeir hafa einkarétt á því, en ég held, að óhætt sé að fullyrða, að sá einkaréttur hafi ekki orðið til þess að draga úr mjólkurflutningunum til Reykjavíkur, síður en svo. Ég hygg, að það sé fjarstæða að hugsa sér, að mjólk væri flutt til Hafnarfjarðar og Reykjavíkur af stærra svæði en núverandi verðjöfnunarsvæði þannig, að hún væri talin góð vara, en ef það væri gert, þá hygg ég, að þeir, sem harðast hafa sótt á í þessu máli, mundu ekki láta undir höfuð leggjast að finna stórkostlega að gæðum þeirrar vöru.
En ef við lítum svo til verkamanna og setuliðsvinnunnar, þá vil ég benda hv. þm. Hafnf. og öðrum á, að því hefur verið haldið fram af verkamönnum og hefur verið viðurkennt af mörgum, að þeir hafi ekki mikið til síns máls, að íslenzka ríkinu og íslenzkum atvinnurekendum beri skylda til að sjá þeim fyrir vinnu. Og við vitum, að margs konar ráðstafanir hafa verið gerðar, til að slíkt mætti verða, þó að fulltrúar verkamanna telji þær ekki fullnægjandi, en engu að síður hafa verið gerðar stórfelldar ráðstafanir til að verða við þessari skoðun verkamanna. En ef þeir vilja halda fram þessari skoðun, sem er ekki óeðlilegt, þá verða þeir að viðurkenna, að þeir hafa aftur á móti skyldur við atvinnuvegina og þjóðfélagið um að láta íslenzkum atvinnuvegum í té það vinnuafl, sem þeir geta lagt fram og atvinnuvegirnir þurfa, og þeir eiga a. m. k. að sitja fyrir því. En þó að þetta hljóti að vera öllum ljóst, að þeir hafi slíkar skyldur, þá hafa verkamenn sótt ákaflega fast að vera frjálsir um að vinna hjá setuliðinu, og þá vil ég segja, að aftur sé komið að því, að hér sé um hliðstæður að ræða, hvorir tveggja hafi nokkrar skyldur, þeir, sem framleiða mjólk, og verkamenn um vinnu. En þrátt fyrir það vilja báðir hafa nokkurt frjálsræði um að skipta við setuliðið, og eru mjólkurframleiðendur þar sízt frekari í sínum kröfum en verkamenn hafa verið. Og hvað sem um þetta er sagt, að Íslendingar eigi að sitja fyrir vinnuafli og mjólk, þá verður aldrei fram hjá því komizt, að hér er um hliðstæður að ræða. Það er fullkomlega rangt að halda fram, að verkamenn eigi að hafa gersamlega óbundnar hendur um að ráða sig í vinnu hjá setuliðinu án tillits til þarfa landsmanna fyrir vinnuafl, en að halda því fram um leið, að mjólkurframleiðendum eigi að vera algerlega óheimilt að skipta við setuliðið með einhvern hluta af sinni framleiðslu. Það er ekki hægt að halda fram, að annað sé algerlega heimilt, en hitt óheimilt. Slíkur málflutningur dæmir sig sjálfan.
Þetta sjáum við enn betur, þegar við berum saman rökin af hálfu bænda annars vegar og verkamanna hins vegar fyrir þessum viðskiptum við setuliðið. Mér er minnisstætt, þegar um var að ræða takmörkun á vinnu innlendra verkamanna hjá setuliðinu, að þá var sagt: Það er nóg vinna yfir sumarið, og það væri út af fyrir sig ekki óeðlilegt, að íslenzkir atvinnurekendur sætu þá fyrir vinnunni, en ef ekkert væri unnið þá hjá setuliðinu, yrði það til þess, að setuliðið hætti að ráða til sín íslenzka verkamenn þann tímann, sem vinnu vantar. — Þessu er haldið fram af hálfu verkamannafulltrúanna í sambandi við setuliðsvinnuna, og þetta hefur ævinlega verið tekið til greina, þannig að það var samið um það við setuliðið, að það skyldi að vísu vera fækkað hjá því um íslenzka verkamenn yfir sumartímann, en þó ekki alveg fellt niður, til þess að ekki þyrfti að grípa til þess að flytja inn erlenda verkamenn og setuliðsvinnan þar með úr sögunni, þegar innlendum verkamönnum væri mest til hagsbóta, að hún yrði fyrir hendi. En það sjónarmið, sem bændur hafa, er alveg það sama. Þeir segja: Auðvitað vildum við helzt selja innlendum mönnum alla mjólkina, þegar minnst er af henni og hennar þarf allrar með til innlendra manna. Það væri æskilegast að geta komizt hjá því að selja hana setuliðinu, þegar skortur er á henni í Reykjavík og Hafnarfirði. — Auðvitað hugsa bændur á þessa lund. En þá kemur það til athugunar, að þeir mega ekki taka alla mjólkina af setuliðinu, frekar en taka má af því allt vinnuaflið, nema eiga á hættu, að öll mjólkurviðskipti við það falli niður. Það er því alveg hliðstætt, að einhver mjólkurviðskipti haldi áfram, og að setuliðsvinna falli ekki alveg niður. Í báðum tilfellunum er það til þess, að þessi viðskipti falli ekki með öllu niður á þeim tíma ársins, sem þau eru landsmönnum hagfelldust. Og hvernig geta þeir menn, sem halda því fram, að setuliðsvinnan megi ekki falla niður yfir sumarið, til þess að hægt sé að njóta hennar á öðrum tíma árs, haldið því jafnframt fram, að mjólkursala til setuliðsins skuli gersamlega stöðvuð yfir haustmánuðina, þó að því hafi verið marglýst yfir af setuliðinu, að þeir geri sig ekki ánægða með, að salan sé algerlega stöðvuð, því að það gæti orðið til þess að við misstum alveg þann markað, sem við getum allir verið sammála um, að framleiðendum sé mjög hagfellt að hafa, alveg á sama hátt og það er til hagsbóta að hafa setuliðsvinnuna. Það hefur vantað vinnuafl tvö undanfarin ár, og samt hefur mönnum ekki verið bannað að ráða sig í setuliðsvinnu. Það hefur ekki verið hægt að ráðast í sumar framkvæmdir, sem þjóðinni hafa verið mjög nauðsynlegar, og vitað er það, að landbúnaðinn hefur vantað vinnuafl stórkostlega.
Því var kastað fram áðan, að það væri rangt túlkað, að sveitirnar vantaði vinnuafl, vegna þess að það kæmi nóg framleiðsla frá landbúnaðinum og þyrfti því ekki fleira fólk þangað. Ég vil benda mönnum á, að það hefur vantað stórkostlega ýmsar aðrar mjólkurafurðir en nýmjólk. Vöntun á smjöri hefur verið stórkostlega mikil, og kartöflur hefur vantað tilfinnanlega, og er það að vísu að sumu leyti vegna uppskerubrests, en líka vegna þess, hversu lítinn vinnukraft var hægt að leggja í kartöfluræktun á þessu ári. Og menn munu reka sig á, að skortur á ýmsum landbúnaðarvörum, eins og kartöflum og smjöri, mun færast í vöxt, og þá munu menn finna áþreifanlega, hvort það eru nokkrar fullyrðingar út í bláinn, að það sé skortur á vinnuafli í landinu. Auk þess er vitað, að jarðræktarframkvæmdir, sem alltaf verða að eiga sér stað, hafa nærri því alveg orðið að falla niður, vegna þess að þeir, sem stunduðu landbúnaðarstörf, hafa enga stund haft til að sinna þessum störfum, sem hefur verið þeim til stórfellds tjóns. Þetta er eitt gleggsta dæmi þess, hversu tilfinnanlega hefur vantað vinnuafl til þessa atvinnuvegar.
Ég skal svo ekki frekar lengja þessar umr., en mér fannst nauðsynlegt, að það kæmi fram, að það er algerlega hliðstætt, að bændur selji setuliðinu mjólk, og að verkamenn fari í setuliðsvinnu. Þessu verður ekki mótmælt. Og ætti að banna bændum að selja setuliðinu nokkurn mjólkurdropa, þá væri það sams konar ráðstöfun og ef banna ætti mönnum gersamlega að ráða sig í vinnu hjá setuliðinu. En fram að þessu hafa menn ekki viljað ganga inn á þá braut.