27.10.1943
Sameinað þing: 22. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 428 í D-deild Alþingistíðinda. (3616)
98. mál, neyzlumjólkurskortur
Forseti (GSv) :
Hv. þm. hafa gleymt tilmælum mínum að stytta ræður sínar sem mest, og eru ræður manna nú orðnar mikið til endurtekningar. Þm. sá, er síðast talaði, hafði fullan rétt til ræðu, og varð hann við tilmælum forseta. Nú er svo komið, að hugsað verður til að nota rétt 37. gr. þingskapa og takmarka ræðutíma. Nú eru fleiri en einn á mælendaskrá, og fyrstur er þar hv. 2. flm. þessarar till., og hefur hann talað aðeins einu sinni, en hv. 1. flm. hefur þegar talað sinn tiltekna tíma. Nú vil ég mega ætlast til, að hv. 2. flm., 3. landsk., sem næst tekur til máls, stytti ræðu sína, eftir því sem föng eru á, en að lokinni þeirri ræðu mun ég ákveða, að ræðutími hvers hv. þm. verði 5 mín., og sjá, hvort það má eigi verða til þess, að þessari umr. megi nú ljúka af.