27.10.1943
Sameinað þing: 22. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 435 í D-deild Alþingistíðinda. (3621)

98. mál, neyzlumjólkurskortur

Skúli Guðmundsson:

Það er búið að ræða mikið um þessi mjólkurmál hér á þ., og eflaust er eftir að ræða þau lengi enn, og mér sýnist allar líkur til, að áður en þessum umr. verður lokið, muni mjólkurskorturinn verða úr sögunni. Ef að vanda lætur, ætti að fara að koma næg neyzlumjólk til bæjarins, og ætti því ekki að þurfa lengri ræðuhöld um málið, en í þess stað gætu menn snúið sér að því að bæta úr skorti á öðrum vörum.

Hv. þm. A.-Húnv. kom með þá uppástungu að bæta úr mjólkurskortinum með því að flytja mjólk úr Dala-, Snæfells- og Húnavatnssýslum. Ég veit nú um Húnavatnssýslu, að þaðan væri ekki hægt að fá mjólk, því að þar fellur lítið meira til haustsmánuðina en íbúarnir þurfa sjálfir, og mjólkurflutningar norðan úr Húnavatnssýslu koma ekki heldur við þeirri till., sem hér er til umr.

Hv. 3. landsk. fór að svara fyrir hv. 6. þm. Reykv. um rafmagns- og vatnsskortinn. Hann sagði, að munur væri á því, hvernig aðfinnslum væri tekið af hlutaðeigendum. Bærinn tæki aðfinnslunum svo vel, að hann sendi út leiðbeiningar um notkun rafmagns. En ég býst nú ekki við, að húsmæðrum muni ganga vel að elda við þessi prentuðu skjöl eða rafmagnið muni vaxa við þessar leiðbeiningar. Hv. 3. landsk. þm. og hv. 6. þm. Reykv. segja, að reynt sé að taka aðfinnslum sem bezt og bæta úr eftir föngum. En ég hef tekið eftir því, þegar ég geng hér um göturnar um hábjartan daginn, að þá logar oft og tíðum á götuljóskerunum, einmitt þegar rafmagnsskorturinn er mestur. Ég fæ ekki skilið, að þessi ráðstöfun sé til þess fallin að bæta úr rafmagnsskortinum. Annars skal ég ekki ásaka bæjarstj. fyrir, þó að stundum sé lítið rafmagn og hún selji setuliðinu rafmagn. En þeir, sem þetta gera, geta þá ekki meinað öðrum að hafa hliðstæð viðskipti.

Hv. 3. landsk. las upp úr 1. gr. l., þar sem mjólkurbúin eru skylduð til að hafa alltaf næga mjólk til sölu hér í bæ. Það væri fróðlegt að heyra, hvernig bændur ættu að uppfylla þessa skyldu, þegar þeir fá ekki það vinnuafl, sem til þarf, og auk þess má lengi um það deila, hvenær sé nóg af þessari vöru. Venjulega er nóg til að svara eftirspurninni, þó að mjólkurskortur hafi verið nú um fáar vikur eins og stundum áður á haustin, og upplýst hefur verið, að meiri mjólk hafi verið flutt til bæjarins en nokkru sinni áður um þetta leyti árs. En ýmsar ástæður valda því, að þetta hefur ekki reynzt nóg: fólki fjölgar, og eitthvað fer til útlendinganna. Annars hef ég ekki vitað til þess, að nokkur takmörkun hafi verið á vörusölu til útlendinga þeirra, sem hér dveljast, og það hefur meira að segja komið fram í opinberum skýrslum, að stjórnarvöld bæjarins hafa leyft að setja upp búðir til viðskipta við setuliðið, án þess að fullnægt væri sjálfsögðum kröfum um hreinlæti.

Að síðustu er það, sem hv. 6. þm. Reykv. sagði, að leitt væri til þess að vita, að menn héldu sér ekki við málefnið, sem hann kallar. Ég skal viðurkenna, að þetta er leiðinlegt! Þegar borgarstjóri kemur til forstjóra samsölunnar og segir, að skortur sé á mjólk og ekki megi selja mjólkina til útlendinga, er forstjórinn svo ósvífinn að segja: „Það er líka rafmagnsskortur. Ætlið þið að hætta að selja þeim rafmagnið?“ — „Við skulum ekki tala um rafmagnið, heldur halda okkur við málefni“, — svarar þá borgarstjórinn!

Hv. 3. landsk. þm. og hv. 6. þm. Reykv. hafa haft um þetta mörg orð. En það er augljóst, að ef banna á einum aðila skipti við setuliðið, þá er ranglátt, að annar aðili fái að halda áfram sínum viðskiptum við það.