03.12.1943
Sameinað þing: 38. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 448 í D-deild Alþingistíðinda. (3646)

109. mál, vinnutími í vaga- og brúavinnu

Gísli Jónsson:

Ég hafði einnig kvatt mér hljóðs við umr. síðast til þess að mótmæla því, sem hv. þm. Ísaf. sagði um vegamálastjóra, að hann hefði beint framkvæmdum samninganna að því að rífa niður kjarabætur verklýðsfélaganna. Ég vil að gefnu tilefni mótmæla ásökunum þeim, sem þessi merkismaður er borinn á ósómasamlegan og ómaklegan hátt, og ætti hv. þm. að biðjast fyrirgefningar hér á Alþ. fyrir að ráðast þannig á sóma fjarverandi embættismanna. Honum bárust allt að því 1000 beiðnir um að framkvæma vegavinnuna þannig, að unnið væri tíu tíma, en hann var bundinn samningunum við verklýðsfélögin og gat ekki látið framkvæma verkið þannig. Og það endaði á því, að andúðin snerist gegn Alþýðusambandinu, sem nú er að reyna að klína henni á vegamálastjóra.