15.12.1943
Efri deild: 67. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 472 í D-deild Alþingistíðinda. (3768)

179. mál, dragnótaveiði

Flm. (Jónas Jónsson) :

Ég þarf ekki að fjölyrða um þessa till., vegna þess að það fylgja í grg. skýringar á því, sem hér er stungið upp á. Hér er sem sé stungið upp á því að opna fyrir dragnótabátum vissa, tiltekna hluta af landhelginni og loka öðrum, og verði um það farið eftir ráði sýslunefnda á hverjum stað og ríkisstj.

Ástæðan til þess, að þetta þarf að leysa, er sú, að það stóð ófriður um landhelgina á milli sumra íslenzkra útgerðarmanna og þeirra, sem segja, að dragnótin sé hættuleg ungviðinu, og þeirra, sem stunda veiðar á smábátum. Þess vegna er það nokkuð eðlileg lausn á þessu máli að skipta landhelginni á milli trillubátanna og dragnótabátanna. Það kemur þá líka í ljós, ef sú skoðun er rétt, að dragnót sé hættuleg fyrir ungviðið, að þessi friðun er til góðs fyrir alla, þegar fram líða stundir.