15.12.1943
Efri deild: 67. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 472 í D-deild Alþingistíðinda. (3769)
179. mál, dragnótaveiði
Gísli Jónsson:
Ég get ekki greitt þessari till. atkv. út úr d. Hún gerir ráð fyrir, að landhelginni verði skipt upp milli landsmanna. Þetta er mikið nýmæli. Dragnótin er engu betri en botnvarpan, allra sízt fyrir ungviðið, og verður að banna hana, ef verja á fiskstofninn. Ég álít því, að þessi till. sé spor aftur á bak, en ekki áfram í þessu máli, ef skipta á upp landhelginni milli stærri og smærri báta. Ég vildi því leggja til, að umr. um þetta mál yrði frestað og það sett í sjútvn. til rækilegrar athugunar, og væri þá athugað um leið, hvort ekki væri hægt að gera breyt. á l. um dragnótaveiðar, sem hér hafa jafnan verið þrætuepli á þinginu, m. a. af því, að hagsmunir einstaklinga hafa verið metnir meira en hagsmunir þjóðarheildarinnar. Aðalatriðið í þessu máli er að finna örugga leið til þess að vernda ungviðið.