28.10.1943
Neðri deild: 39. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 385 í B-deild Alþingistíðinda. (378)

87. mál, tollskrá o.fl.

Frsm. meiri hl. (Jakob Möller) :

Fjhn. hefur ekki orðið alls kostar sammála um afgr. málsins. Meiri hl. leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt, en einn nm. vill ganga lengra í lækkun tolla á þessari vöruteg.

Það er upplýst, að samkvæmt frv. hefði verðtollur af innfluttum ávöxtum orðið árin 1938–'42 um 200 þús. kr. minni, ef þessi breyt. hefði þá verið í gildi öll árin. Þessi ár var tollurinn 358 þús. kr., en hefði orðið 155 þús. kr., ef þessi breyting hefði gilt fyrir þessi ár. Ágreiningurinn um meðferðina á frv. er í sjálfu sér tiltölulega smávægilegur. Meiri hl. sá hins vegar ekki ástæðu til að svo stöddu að ganga lengra í tollalækkun á þessari vörutegund, með því að fjöldi neyzluvara er samkvæmt tollskrárl. tollaður þannig, að sá tollur, sem eftir yrði af þessari vöruteg. samkv. frv., ætti að vera a. m. k. ekki síður forsvaranlegur en þeir tollar, sem samkv. tollskárl. hvíla á ýmsum öðrum nauðsynjavörum.

En þó að ég hafi gefið þessar upplýsingar um tolla af þessari vöruteg. á þessu árabili, 1938–1942, þá er það að vísu ekki mikið. Það hefur verið mjög lítið leyft að flytja inn í landið á þessu tímabili af ávöxtum, en þó nokkuð meira af þeim árin 1941–1942 en áður á þessu tímabili og verðtollur þá orðið hærri en fyrr á þessu tímabili. En af reynslunni virðist mega gera ráð fyrir því, að ef stjórnarvöldunum þykir nauðsyn til bera að hefta innflutning á erlendum vörum, þá muni þessi vöruteg. mjög verða fyrir barðinu á slíkri ráðstöfun, og er þá ekki á því að byggja, þótt tollupphæðin sé nokkuð há þessi ár.