17.09.1943
Efri deild: 20. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 480 í D-deild Alþingistíðinda. (3796)

40. mál, eignakaup af setuliðinu hér

Fyrirspyrjandi (Haraldur Guðmundsson):

Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir greinagóð svör og einnig hæstv. ríkisstj. fyrir aðgerðir hennar í þessu máli. Hæstv. ráðh. hefur upplýst, að ríkisstj. hefur þegar skipað nefnd til að hafa með höndum milligöngu þessara mála, er til kemur, og vil ég láta í ljós ánægju mína yfir því og hef ekkert út á nefndaskipun þessa að setja.