04.11.1943
Sameinað þing: 26. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 63 í B-deild Alþingistíðinda. (38)
27. mál, fjárlög 1944
Frsm. minni hl. (Þóroddur Guðmundsson) :
Herra forseti. Hv. frsm. meiri hl. hefur nú gert grein fyrir till. hans. Langflestar till. höfum við í minni hl. verið sammála um, en þó eru nokkrar, sem við föllumst ekki á, og svo höfum við gert brtt. sérstaklega. Hv. frsm. meiri hl. hefur gert grein fyrir störfum n., og ætla ég ekki að endurtaka það. Störfin hafa gengið nokkuð greiðlega. Formaðurinn var röggsamur og samvinnan góð, en þegar til þess kom að ákvarða um ýmsar till., kom upp skoðanamismunur í n., svo að við minnihlutamenn sáum okkur ekki fært annað en leggja fram sérálit.
Það var aðallega tvennt, sem um var að ræða. Okkur virtist tekjurnar of lágt áætlaðar, og í annan stað teljum við, að á slíkum peningaflóðsárum sem nú eru sé ekki sæmilegt af Alþ. að ganga frá fjárl. nema reyna að mæta erfiðleikunum, sem búast má við, að dynji yfir í stríðslok.
Hvað tekjuhliðina snertir hefur ágreiningurinn aðallega verið um fjóra liði. Það er skoðun minni hl., að yfirleitt séu allir liðir í tekjubálkinum of lágt áætlaðir, en fjóra liði teljum við keyra úr hófi fram, og þar flytjum við brtt. Þessir fjórir liðir eru: tekju- og eignarskatturinn, stríðsgróðaskatturinn, vörumagnstollurinn og verðtollurinn.
Ég vil nú reyna að sanna mitt mál. Ég ætla fyrst að taka tekju- og eignarskattinn. Áætlun fjárlfrv. er 18 millj. kr. Meiri hl. n. gat ekki fallizt á að hækka hana nema í 19½ millj., en við minnihl.menn leggjum til að hann verði áætlaður 21 millj. Þegar þess er gætt, að tekju- og eignarskatturinn er á yfirstandandi ári 22 millj., er ekki hægt að segja, að okkar áætlun sé óvarleg, því að allir vita, að það eru fullar líkur til, að hann verði ekki lægri, heldur þvert á móti kannske hærri en í ár.
Stríðsgróðaskatturinn er í frv. áætlaður 7 millj., þ. e. a. s. hluti ríkissjóðs. Meiri hl. vildi lækka þetta í 6 millj., en það varð að samkomulagi, að rétt væri að færa hann allan til tekna þarna, og svo til gjalda hluta sveitar- og bæjarfél., en ósamkomulag var um, hvað hátt skyldi áætlað. Við vildum áætla 14 millj. Fyrir yfirstandandi ár er hann álagður 14 millj., og gildir það sama um hann að okkar áliti og tekju- og eignarskattinn.
Þá er vörumagnstollurinn. Hann er áætlaður í frv. 5 millj. Meiri hl. vildi ekki hækka þá áætlun nema í 8 millj., en við leggjum til 9 millj. 1942 reyndist vörumagnstollurinn nærri 9½ millj., og 1943 verður hann allt að 10 millj., svo að ég fæ ekki séð, að óvarlega sé áætlað hjá okkur.
Loks er það, sem mestur ágreiningurinn er um, verðtollurinn. Við leggjum til að hann verði áætlaður 38 millj. 1942 varð hann hér um bil 39½ millj., og 1943 verður hann sennilega allt að 40 millj. Ég sé því ekki, að með réttu sé hægt að ásaka okkur eða, eins og hv. frsm. meiri hl. sagði, telja það ljóð á ráði okkar, að við berum ekki fram till. um auknar tekjur, heldur hækka áætlunina fram yfir það, sem skynsamlegt sé. Því er ekki slegið föstu, að till. meiri hl. séu þær einu skynsamlegu. Hvað getur valdið því, að meirihl.menn vilja ekki fara hærra en þetta? Það gæti verið hægt að líta svo á, að frá þeirra sjónarmiði gerði það ekkert til, þó að tekjurnar færu langt fram úr áætlun. En þegar svona gífurlegu munar, er ekki varlegt að samþ. það svona yfirleitt, því að það væri hægt að leyna tekjum og brúka sem. rök gegn þarflegum till., að fé væri ekki fyrir hendi.
Ég vil í þessu sambandi rifja það upp, að í fyrra vetur átti sér stað sami leikurinn. Þá voru tekjur áætlaðar langt fyrir neðan það, sem þær urðu í reyndinni og við í minni hl. fjvn. höfðum lagt til að þær yrðu áætlaðar. Það var samþ. í fyrra, að tekju- og eignarskattur skyldu áætlaðir 18 millj. kr., en hafa reynzt 22 millj. kr. Vörumagnstollur var áætlaður 6 millj., en hefur reynzt 10 millj., og verðtollur var áætlaður 21 millj., en hefur reynzt 40 millj. Þeir, sem hafa þarna misreiknað sig um 27 millj., ættu því ekki að vera að deila nú við okkur, sem höfðum komizt mjög nálægt hinu rétta í áætlunum okkar. Við getum verið ánægðir, því að reynslan hefur gefið okkur rétt, og það væri ánægjulegt, ef þeir, sem gerðu svona skakka áætlun í fyrra, gætu nú orðið vitrari af þessari reynslu.
Þá kem ég að 3. gr. Við vorum sammála um, að hækka bæri þá áætlun nokkuð, en ekki náðist samkomulag um að taka með í þá áætlun þær tekjur, sem síðasta verðhækkun á tóbaki. og áfengi leiðir af sér. Hv. frsm. meiri hl. taldi að vísu rétt, að þær kæmu fram í áætluninni, en vildi láta þær bíða, þar til við 3. umr. Það er þó gott, að þessi yfirlýsing skyldi koma fram um, að rétt væri að taka þessar tekjur með á áætlun, enda hefði verið óviðeigandi að taka þær ekki með, þótt líklega sé búið að semja um það á bak við tjöldin, hvernig þeim skuli varið. En þótt búið sé að bruðla þeim án þess að talað hafi verið um það við þingið, þá er þó rétt að reikna þær með til tekna á þessum lið. Það munar þannig hvorki meira né minna en 22½ millj. kr., sem við leggjum til að tekjurnar verði áætlaðar hærri en meiri hl. leggur til.
Þá kem ég að þeim ágreiningi, sem varð á milli okkar um ýmsar útgjaldatill. Við 12. gr. berum við fram 3 brtt., sem meiri hl. gat ekki fallizt á. Í fyrsta lagi er það, að við leggjum til að veittar verði 500 þús. kr. til læknisbústaða og sjúkraskýla, í stað þess, að meiri hl. leggur til, að veittar verði 250 þús. kr. Eftir þeim upplýsingum, sem við fengum, þá er þetta allt of lág upphæð, en við vildum þó ekki fara fram á meira en 500 þús. kr., í von um það að fá einhverja til þess að ganga inn á það með okkur, þótt það sé álit okkar, að það þurfi meira. Nú má segja, að það sé mjög erfitt að fá efni og því séu erfiðleikar á því að nota féð, en það má þá leggja það til hliðar nú og nota það síðar.
Þá er það sjúkrahús Akureyrar. Allir vita, að það er stórt og mikið sjúkrahús, og læknir þess er í miklu áliti. Það er mikil þörf á því að byggja þarna nýtt sjúkrahús, og bæjarstjórn Akureyrar hefur lagt til, að það yrði rekið af ríkinu. Um það hefur ekki náðst samkomulag, en ég skal þó ekki fara út í það, en til nýbyggingar við þetta sjúkrahús veitir ekkert af 500 þús. kr., ef eitthvað á að gera, en meiri hl. hefur talið nægilegt að veita til þess 250 þús. kr., en það sjá allir, að nú er ekki hægt að byggja mikið fyrir 200 þús. kr.
Þriðja brtt. við 12. gr., sem ágreiningur varð um, er ekki mikil upphæð, aðeins 17750 kr. En þarna varð ágreiningur um annað. Það er, að meiri hl. vill gera sjúkrahúsum úti um land misjafnt undir höfði, hann vill leggja meira til sjúkrahúsanna á Akureyri, Ísafirði og Seyðisfirði en til sjúkrahúsanna í Vestmannaeyjum og á Siglufirði, þ. e. hann vill láta eitt sjúkrahús í hverjum fjórðungi njóta meiri styrks en önnur og að þau sjúkrahús yrðu þá nokkurs konar landsspítalar. Þessi regla gæti orðið mjög ósanngjörn. Við skulum taka t. d., að á Austurlandi yrði eitt slíkt sjúkrahús, sem fengi ef til vill um 150 utanhéraðssjúklinga á ári. Nú er ákveðið, að þetta sjúkrahús skuli njóta sérstakra hlunninda, og á Akureyri er einnig sjúkrahús, sem á að njóta sömu hlunninda, en á Siglufirði er einnig sjúkrahús, og það á ekki að njóta neinna hlunninda, en það fær ef til vill 500 utanbæjarsjúklinga á ári. Hvaða vit er nú í því, að sjúkrahús Austfirðingafjórðungs njóti meiri styrks en sjúkrahúsið á Siglufirði? Þetta er ekkert annað en einhver „fiks Idé“, sem á engan rétt á sér. Ég skal ekki fullyrða, hver sé faðir þessarar hugmyndar, hvort það er hv. þm. S.-Þ., en hann var a. m. k. mjög hrifinn af henni, og ég gæti bezt hugsað mér, að hann ætti hana, — hún er a. m. k. mjög ósanngjörn. Það eina, sem er rétt og sanngjarnt í þessu máli, er það að styrkja sjúkrahúsin úti um land hlutfallslega eftir því, hvað þau taka á móti mörgum utanbæjarsjúklingum á hverju ári. Þau, sem taka á móti flestum slíkum sjúklingum, eru meira fyrir alþjóð en hin, sem eru nær eingöngu notuð af viðkomandi innanhéraðsmönnum og eiga því að njóta styrks frá ríkinu eftir því. Einnig má geta þess, sem raunar allir vita, að atvinnuhættir á Siglufirði og í Vestmannaeyjum eru þannig, að þangað streymir fjöldi fólks til vinnu á vissum tímum ársins, til Siglufjarðar á sumrin og Vestmannaeyja á veturna. Þetta er sérstaða, sem engir aðrir staðir á landinu hafa, og það hefur sýnt sig, að það er heppilegt vegna þessa aðkomufólks að hafa sjúkrahúsin á þessum stöðum allmiklu stærri en nægja mundi handa bæjarbúum einum. Ef ætti að gera upp á milli sjúkrahúsanna úti um land, þá væru það því einmitt þessi sjúkrahús, sem ættu helzt að njóta sérstakra hlunninda.
Um þetta fékkst ekki samkomulag fjvn., en ég hygg, að sumir í meiri hl. hafi séð í gegnum till. um fjórðungssjúkrahúsin og fundið ósanngirnina í henni. Ég vil því vona, að þótt þetta færi svona í n., þá fái það þó sanngjarna afgreiðslu í þinginu.
Þá hefur orðið ágreiningur um 14. gr. Einn af þm. Reykv. hefur skrifað fjvn., og fór hann þess á leit, að styrkur til Verzlunarskóla Íslands yrði hækkaður úr 25 þús. kr. upp í 60 þús. kr., og hann benti á; að í Verzlunarskólanum væru sex sinnum fleiri nemendur en í Samvinnuskólanum, en þó nytu nú báðir sama styrks, þ. e. 25 þús. kr. hvor, og ef sanngirni ætti að ríkja þarna á milli, ætti því að hækka styrkinn til Verzlunarskólans, ekki upp í 60 þús. kr., heldur upp í nokkuð á annað hundrað þús. kr., ef miða ætti við nemendafjölda. Við tókum þessa till. upp og gerðum hana að okkar till., en hún var felld í fjvn.
Nú ber þess einnig að gæta, að Verzlunarskólinn er orðinn 6–7 ára skóli, sem hefur auk þess nýverið fengið rétt til þess að útskrifa stúdenta, en Samvinnuskólinn er heldur lélegur skóli og hefur auk þess ekki verið fyrst og fremst verzlunarskóli, heldur flokkspólitískur skóli fyrir Framsfl., þ. e. a. s. hann hefur verið pólitískur verzlunarskóli. Nú er það eitt, að Verzlunarskólinn skuli hafa sex sinnum fleiri nemendur en Samvinnuskólinn, nægilegt til þess, að hann ætli að fá sex sinnum hærri styrk, eða miðað hlutfallslega við nemendatölu, en við gerðum okkur þó vonir um að fá till. okkar frekar samþ., ef við færum ekki fram á mikið, og lögðum því til, að styrkurinn yrði aðeins hækkaður upp í 60 þús. kr. Ég gerði ekki ráð fyrir rökum frá Framsfl. í þessu máli, enda komu þau ekki fram, en ég get ekki skilið, hvers vegna Sjálfstfl. í n. var á móti þessu og hvaða sjónarmið hafa þar ráðið, nema ef þeir hafa ekki þorað að vera á móti Jónasi.
Þá hefur orðið ágreiningur um framlag til byggingar barnaskóla. Meiri hl. vildi leggja fram 400 þús. kr., en við vildum hafa það 350 þús. kr. hærra, eða alls 750 þús. kr. Fræðslumálastjóri hefur rökstutt þörfina á þessu fé svo vel, að mér finnst ekki vera hægt að hrekja það, og finnst mér því rétt, þegar nóg fé er til, að láta hann þá fá það, sem hann fer fram á. Hann segir, að ef eigi að halda áfram með þær byggingar, sem þegar er byrjað á, þá veiti ekkert af 750 þús. kr. aðeins til þess, og þá er ekkert eftir handa 12 skólahverfum, sem nú þurfa að byggja sér barnaskóla.
Þá er það framlag til byggingar húsmæðraskóla í sveitum. Meiri hl. vill veita til þess 340 þús. kr., en við viljum hækka það upp í 400 þús. kr. og þar af 20 þús. kr. til húsmæðraskóla Árnýjar Filippusdóttur, en meiri hl. vildi ekki láta hana hafa nema 10 þús. kr. Nú lágu fyrir upplýsingar um það, að það er mikil þörf á að byggja húsmæðraskóla á Hallormsstað, í Borgarfirði og á Laugarvatni. Það er einnig svo, að jafnan hefur heldur náðst samkomulag til framkvæmda í sveitum en kaupstöðum, en þó náðist ekki samkomulag um þetta. Til húsmæðraskóla í kaupstöðum viljum við veita 400 þús. kr., þó ekki vegna þess, að ekki væri þörf á meiru, en í n. náðist ekki samkomulag um meira en 340 þús. kr. Þörfin á að styrkja húsmæðraskólana er mikil, því að þeir hafa unnið og vinna mjög þarft verk, og það gildir sérstaklega um einn skóla, sem er rekinn af einstaklingi og er rekinn með fyrirhyggjusemi og dugnaði, og byggingarkostnaður við hann var lægri en við nokkurn annan slíkan skóla. Mér finnst rétt að sýna viðleitni til þess að verðlauna þennan dugnað, og tel ég ekki of mikið að veita 20 þús. kr. til þess.
Þá er það 4. brtt. okkar, við 14. gr., um framlag til íþróttasjóðs. Við leggjum til, að það verði 650 þús. kr., en ekki náðist samkomulag í n. um meira en 450 þús. kr. Nú standa fyrir dyrum miklar framkvæmdir í þessum efnum, og það hefur verið rökstutt, að það muni alls ekki veita af 650 þús. kr., — og því þá að vera að klípa af því? Íþróttamálin eru svo mikilvæg, að það er engan veginn réttmætt að skera þetta framlag niður úr öllu valdi á þeim tímum, sem nú eru.
Við 15. gr. eru það tvö atriði, sem ekki náðist samkomulag um. Það er í fyrsta lagi bókakaupastyrkur til landsbókasafnsins. Við vildum hafa hann 100 þús. kr., en meiri hl. ekki nema 80 þús. kr. Miðað við ýmsa hina háu pósta í fjárl. er þetta ekki mikil upphæð, og bækur eru svo dýrar nú, að ekki fást margar bækur fyrir það fé.
Þá er það framlag til skálda, rithöfunda og listamanna. Það var áður 100 þús. kr. grunnstyrkur, en nú var tekin upp í frv. 20 þús. kr. hækkun á þeim lið. Menntamálaráð hafði hins vegar farið fram á, að þetta yrði hækkað um þriðjung, og mun það þá hafa miðað við þá upphæð, sem var í frv., en ekki fjárl. yfirstandandi árs, þannig að upphæðin yrði ekki hækkuð úr 100 þús. kr. upp í 150 þús. kr., heldur úr 120 þús. kr. upp í 180 þús. kr. Það náðist ekki samkomulag um þetta, en við leggjum til, að samþ. verði málaleitun menntamálaráðs. En þegar þetta kom fram í fjvn., en þar er einn maður, sem á einnig sæti í menntamálaráði, þá lýsti hann því yfir, að hann stæði ekki að þessari málaleitun og væri á móti henni. Hann færði þó engin rök fyrir máli sínu, en hélt langa ræðu um það, hve síðasta styrkjaúthlutun menntamálaráðs væri ranglát og ósanngjörn, en það er vitað mál, að honum hefur sárnað það að geta ekki lengur ráðið einn yfir þessum úthlutunum og notað þær til hagsbóta fyrir sinn flokk. (BBen: Hver er þessi maður? ) . Það er hv. þm. S.-Þ.
Ég skal svo ekki tefja mikið meira við þetta, annað en það, að við teljum nauðsynlegt að gera ráðstafanir til þess að mæta komandi erfiðleikum. Frá okkar sjónarmiði er það nauðsynlegt að gera nú stór átök til þess að bæta um fyrir landbúnaðinum, ekki með því að ausa í hann styrkjum, heldur gera honum mögulegt að standa undir sér í framtíðinni, svo að hann þurfi ekki að lifa sem sníkjudýr á öðrum atvinnuvegum. Það er hins vegar vitað, að sumir vilja ekki, að hann geti staðið undir sér, heldur vilja þeir, að til séu fáeinir stórbændur, en að meginþorrinn séu fátækir ræflar, sem þeir geti svo haft í hendi sinni. Við teljum, að landbúnaðurinn þurfi að standa undir sér, og þar sem ríkissjóður ræður nú yfir svo miklu fé, þá teljum við rétt að leggja nú fram 4 millj. kr. í þessu skyni.
Þá er það sjávarútvegurinn, sem er okkar traustasti atvinnuvegur og sá atvinnuvegur, sem er undirstaða fjárhagsafkomu okkar. Það vita allir, að það, sem nú kreppir einkum að honum, er, að hann vantar ný og góð skip. Við teljum því rétt að leggja nú til hliðar 10 millj. kr. til þess að kaupa síðar fyrir það ný og góð skip. Við getum látið liggja milli hluta, hvernig sé heppilegast að gera þau út eða hvort þau skuli gerð út af einstaklingum, ríki eða bæjarfélögum, en um hitt ættu menn að geta verið sammála, að það sé nauðsynlegt að kaupa nokkur ný og góð fiskiskip inn í landið og því sé rétt að leggja nú til hliðar nokkuð stóra upphæð í þessu skyni.
Þá vildi ég víkja nokkrum orðum að 17. gr., en í henni er kveðið á um styrk til slysavarna. Það er með þetta eins og annað, þegar styrkja á það, sem viðkemur sjávarútveginum eða þegar fólkið við sjávarsíðuna á í hlut, og verð ég að segja það, að mér finnst hreinasta smán að því fyrir Íslendinga að telja eftir sér, þótt veittar yrðu 100 þús. kr. til slysavarna. Í frv. eru áætlaðar 35 þús. kr. í þessum tilgangi, en meiri hl. fjvn. vildi ekki hækka þennan styrk nema upp í 50 þús. kr. Við leggjum til, að hann verði hækkaður upp í 100 þús. kr. og mundum ekki sjá eftir því, þó að það væri hærri upphæð. Ég er viss um, að fjvn. er ekki góð spegilmynd af ástandi þ., því að ég veit, að meiri hluti þm. mun ekki telja eftir sér, þó að veittar yrðu 100 þús. kr. til slysavarna hér við land.
Við þessa gr. flytjum við einnig till. um, að hluti sveitarfélaga af stríðsgróðaskatti verði áætlaður 7 millj. kr.
Við 20. gr. flytjum við brtt. um að verja til vitabygginga 700 þús. kr., en meiri hl. vill leggja fram 350 þús. kr. Sama máli gegnir um þetta atriði og um slysavarnirnar, þar sem þetta er í þágu sjávarútvegsins, þá ætti sízt að telja það eftir, þó að lögð verði fram veruleg fjárupphæð til byggingar nýrra vita. Hins vegar veit ég til þess, að nokkrir erfiðleikar eru á útvegun ýmissa áhalda, en ef þau fást ekki í bili, mætti leggja þetta fé til hliðar, þangað til hægt yrði að fá þessar vörur keyptar. Ég býst við, að hv. þm. muni líta á þetta öðrum augum en fjvn. og ekki sjá eftir 700 þús. kr. í þessu skyni.
Ég get svo farið að ljúka máli mínu, en vil taka það fram, að við leggjum til, að fjárlögin hækki tekjumegin um kr. 22,7 millj. meira en í till. meiri hl., en gjaldamegin um kr. 16,9 millj. meira en í till. meiri hl. Eftir okkar till. hækka gjöldin ekki fram yfir tekjur, heldur verður hækkunin minni gjaldamegin.
Ég vil svo enda mál mitt með því að benda frsm. meiri hl. á það, að ef hann og þeir í meiri hl. ætla að halda fast við sína till. um tekjurnar, verða þeir að færa frekari rök fyrir sínu máli. Ágreiningur okkar við meiri hl. í þessu tilfelli er nær eingöngu vegna þess, að þeir gera sinn samanburð við tekjur síðasta árs og miða þannig við verðlag, sem liðið er hjá, en hins vegar miðum við okkar samanburð við núgildandi verðlag, svo að hann getur alls ekki haldið því fram, að okkar till. séu lítt skynsamlegar.