18.11.1943
Efri deild: 51. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 386 í B-deild Alþingistíðinda. (387)
87. mál, tollskrá o.fl.
Brynjólfur Bjarnason:
Hv. frsm. minntist á það, að ég skrifaði undir þetta nál. með fyrirvara. Það er eins og hann sagði, að ég er samþ. þessu frv. svo langt sem það nær, en ég tel rétt, að þessir tollar séu afnumdir með öllu. Ég tel, að þarna sé um að ræða vöru, sem sé nauðsynjavara, og kannske ein af allra mestu nauðsynjavörum, sem við flytjum inn, og ég tel, að þær eigi að vera tollfrjálsar. Hins vegar hefur verið flutt um þetta till. í Nd., og það var sýnt við atkvgr. þar, að sú till. hafði ekki þingfylgi, og veit ég því ekki, hvort ég freista þess að bera aftur fram þá till. í þessari hv. d., en ég mun greiða frv. atkv. við þessa umr.