07.09.1943
Neðri deild: 11. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 387 í B-deild Alþingistíðinda. (392)

26. mál, heimild fyrir ríkisstjórnina og ríkisstofnanir að greiða eftirlaun

Dómsmrh. (Einar Arnórsson) :

Herra forseti. Háttv. þingdeild. Fjármálaráðh., sem flytur þetta frv., er bundinn í Ed. vegna annars máls, svo að ég skal leyfa mér að mæla nokkur orð með þessu frv.

Í 23. gr. fjárl. hafa á síðustu árum verið teknar upp heimildir til þess að greiða eftirlaun eða styrktarfé. Fjármálaráðherra telur eðlilegt að taka þessar heimildir úr fjárl. og festa þær í eitt skipti fyrir öll í l. í stað þess, að þær hafa áður verið endurteknar frá ári til árs. Önnur breyt. skilst mér ekki vera frá núgildandi skipulagi í þessu frv. Mun ég ekki lengja mál mitt og vænti, að þetta frv. verði að lokinni þessari umr. sent til n., sem ætti þá líklega að vera fjhn.