22.11.1943
Efri deild: 53. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 389 í B-deild Alþingistíðinda. (405)
26. mál, heimild fyrir ríkisstjórnina og ríkisstofnanir að greiða eftirlaun
Þorsteinn Þorsteinsson:
Ég á hér eina brtt. við þetta frv., sem ég vil aðeins skýra fyrir hv. dm. með fáeinum orðum, hvernig á henni stendur. Ég ætlaði að senda hana til hv. allshn., en varð of seinn. En þannig er með þessa ekkju, sem kemur undir d.-lið í seinni hluta frv., ef samþ. verður, að hún er ekkja féhirðis Áfengisverzlunar ríkisins. Hún hefur fengið greidd eftirlaun til bráðabirgða, en það þótti rétt að taka þau hér upp, en ekki í fjárlög. Því er till. þessi hér fram komin, að nafn þessarar konu hefur fallið niður af vangá.
En nú er svo mál með vexti, er ég fer að athuga þetta nánar, að aftan við d.-lið vantar, að ekkja þessi fái greidda sömu uppbót á eftirlaun sín og ríkissjóður greiðir á sams konar greiðslur á hverjum tíma. Ég mun því leyfa mér að bera fram skriflega brtt. þessa efnis nú í þessari hv. d.
Ég sé svo ekki ástæðu til að orðlengja þetta meira. Það hefur verið reynt að ákveða eftirlaunin svo sanngjörn sem hægt er, og vil ég leyfa mér að afhenda hæstv. forseta þá skrifl. brtt., er ég hef nú lýst hér.