08.10.1943
Neðri deild: 29. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 395 í B-deild Alþingistíðinda. (431)
35. mál, dómsmálastörf, lögreglustjórn, gjaldheimta o.fl. í Reykjavík
Jörundur Brynjólfsson:
Eins og hv. frsm. allshn. hefur nú tekið fram, er n. sammála um öll aðalatriði málsins. Ágreiningur er aðeins um þetta eina atriði.
Ég þarf í sjálfu sér ekki mörg orð um brtt. mína. Ég get skírskotað þar um til nál. míns frá síðasta þingi. Að vísu lá þá málið fyrir í nokkuð annarri mynd í heild sinni, en þetta efni þess er þó hið sama þá og nú.
Ekki dreg ég það í efa, að þægilegt kunni að vera undir mörgum kringumstæðum fyrir lögreglustjóra að hafa lagaþekkingu — og hana þá góða, því að prófstimpillinn einn er náttúrlega hvergi nærri nógur, og það sýnir reynslan oft. Ef hann einn væri nægilegur, þá mundi lögfræðinga ekki greina eins oft á um lögfræðiatriði og raun ber vitni — og það jafnvel um augljósan lagastaf í augum almennings.
En það stendur einhvers staðar, að svo eru lög, sem hafa vill fólk. Og í framkvæmdinni kemur til þess, og byggist hún oft og tillögur um slíkt á því, sem menn vilja leggja í lagastafinn. Þess vegna verður svo oft ágreiningur. Því virðist lögfræðipróf ekki svo mikil trygging. Eigi að síður neita ég því ekki, að það ætti að vera trygging í því, að menn með reynslu og þekkingu fjalli um málin. En þetta er ekki nema einn þáttur í störfum lögreglustjóra, hvar sem er, og ekki sízt hér. Því meira fjölmenni sem stjórna þarf, því meira reynir á margt annað en lögfræðiþekkingu. Er stjórna þarf fjölmennu lögregluliði í fjölmennum bæ, reynir einnig og meira á aðra þekkingu. Okkar skamma reynsla stefnir í þá átt.
Sem betur fer, hefur sjaldan reynt á framkvæmd þess að hafa stjórn á lögregluliði. En þegar útlit hefur verið fyrir, að til þeirra kasta kynni að koma, hafa menn með allt aðra þekkingu en lögfræðiþekkingu verið fengnir til að annast framkvæmdir, þótt þeir hafi ekki haft lögfræðipróf og þrátt fyrir reynslu og þekkingu lögreglustjóra. Þeir hafa ekki haft neitt lögfræðipróf, heldur sérstaka þekkingu á þeim viðfangsefnum, sem lutu að því, ef beita þarf fjölmennu lögregluliði gegn miklum hópi manna. Þar hefur lögfræðingum alls ekki verið falin forusta þess máls. Ég held ekki, að mönnum detti í hug, að undir þeim kringumstæðum eigi sá löglærði lögreglustjóri að vera sá, sem gefi lögregluliðinu fyrirmæli um, hvað gert skuli og hvað ógert látið, því að ef svo hefði verið hér, að til þess væri ætlazt, hvers vegna hefur það þá hér í Reykjavík verið talið fremur á annarra manna færi, sem fengnir hafa verið til þess að annast slíkar framkvæmdir, þ. e. að stjórna lögregluliðinu í slíkum tilfellum, ef á þyrfti að halda? Og a. m. k. einu sinni hefur komið til slíkra framkvæmda.
Ég get fúslega viðurkennt það, að að öðru jöfnu, ef ég ætti að skipa í slíkt embætti sem þetta, mundi ég fremur taka lögfræðing en ólöglærðan mann, því að það er ætíð vinningur að hafa meiri þekkingu á öllum þeim greinum, sem starfið snerta, og það hefur líka sitt að segja í starfinu gagnvart almenningi. En lögfræðiþekking er bara hvergi nærri nógur hæfileiki fyrir lögreglustjórann í mikilvægum atriðum starfs hans. Þar kemur allt annað til greina. Og það hygg ég, að hv. frsm. allshn. verði að viðurkenna, að undir vissum kringumstæðum geti það farið svo um lögfræðing í lögreglustjórastöðu, ef hann hefur enga aðra kunnugleika á þessu starfi en sína lögfræðiþekkingu, að einmitt þegar mest reynir á, skorti þann lögfræðing það í höfuðatriðum, sem hann helzt þyrfti að hafa hæfileika til og miklu fremur en nokkurn tíma lögfræðipróf. Og ég hygg líka, að það sé svo, hvar sem er erlendis, þar sem reynsla er fengin í þessu efni, að þá sé lögfræðipróf eitt alls ekki látið nægja sem skilyrði fyrir því, að mönnum séu veitt lögreglustjórastörf, heldur þurfi menn til þess sérstakan undirbúning fyrir starfið og jafnvel þjálfun í starfinu. En það fer ekkert fyrir því hjá hv. meiri hl. allshn. í meðferð hans á þessu máli hér, að hann leggi hið minnsta upp úr þessu, því að ef svo væri, þá mætti ætla, að af hálfu meiri hl. allshn. væri borin fram brtt., sem tryggði einmitt, að lögreglustjórar hefðu fengið slíkan nauðsynlegan undirbúning undir starf sitt. En það virðist svo sem hv. meiri hl. allshn. telji, að lögfræðiprófið eitt sé nóg sem undirbúningur þessara embættismanna undir starf sitt. Þó vita þeir alveg eins vel og ég, hvað á hefur skort um framkvæmd þessa verks, og hefur þó því nær ekkert til slíks þurft að taka, sem betur fer, í okkar þjóðfélagi, að þurft hafi að beita lögregluliði gegn hópi manna. Þetta vil ég meina, að sé fullmikil nægjusemi af hálfu þeirra manna, sem vilja haga þessum málum á þann veg, sem verða mundi eftir þessu frv. óbreyttu.
Hv. frsm. allshn. veik að því, að úr því að lögfræðingur væri á skrifstofu lögreglustjórans, þá bæri það vott um það, að menn teldu, að lögfræðiþekking væri nauðsynleg í starfinu. Það hefur heldur enginn borið á móti því, að svo sé. Í minni brtt., sem hv. frsm. vitnaði til, er þvert á móti viðurkennt, að próf í lögum sé æskilegt. En þó verð ég að segja það, og þar getur maður skírskotað til þess, sem við þekkjum í okkar þjóðfélagi, að lögfræðipróf út af fyrir sig þarf ekki að vera sönnun þess, að sá maður, sem það hefur, hafi meiri lögfræðiþekkingu en annar, þó að hann hafi ekki tekið slíkt próf, því að til er það, að menn hafi á námsárum sínum lagt stund á lögvísindi, en ekki lokið prófi, og ætla ég, að finna megi dæmi um það, að þeir, sem slíkt lögfræðinám hafa stundað, hafi haft meiri þekkingu í þeim efnum en jafnvel þeir, sem lögfræðipróf hafa tekið.
Við öll meiri háttar störf, hver sem þau eru, þá er það svo, að það er einkar þægilegt fyrir þann mann, sem veitir einhverju slíku starfi forstöðu, að hafa lögfræðilega þekkingu. Mörg fyrirtæki, sem hafa mikið umleikis, ráða í þjónustu sína lögfræðing til þess að eiga sérstakan mann vísan til ráðuneytis um lögfræðileg atriði, sem fyrir kunna alltaf að koma. Dettur þó engum í hug að segja, að nauðsynlegt sé, að forstjóri þeirra fyrirtækja sé endilega lögfræðingur. Það er t. d. ekki nærri alltaf, að bankastjórar séu lögfræðingar, og hefur engum dottið í hug að gera lögfræðipróf að skilyrði fyrir veitingu bankastjóraembættis, því að höfuðskilyrði þess, að menn geti verið góðir bankastjórar, er ekki fyrst og fremst lögfræðiþekking, heldur annars konar hæfileikar. — Ég tek þetta fram af því, að hv. frsm. allshn. gerði svo mikið úr því, að þar sem starfsmaður lögreglustjóra væri lögfræðingur, þyrfti lögreglustjóri líka að hafa lögfræðipróf.
Hv. frsm. veik að því, að það gæti borið við, að vandasamt væri ýmislegt í þessu starfi, og nefndi hann í því sambandi handtökur manna og drap á, að það hefði borið við, að af handtöku hefði leitt skaðabótamál og ríkið hefði orðið að svara til sakar og greiða bætur vegna handtöku, sem hv. frsm. talaði um. Ég þekki það dæmi, sem hv. þm. átti við. Vildi þó hv. þm. ekki beinlínis kenna lögreglustjóra um þetta, og ég tek það ekki heldur svo, að hann hafi meint það. En ef svo er, að lögreglustjórinn á ekki sök á því, en lögregluþjónarnir hafa farið í því tilfelli út fyrir þær reglur, sem þeim eru fyrir fram settar um slíkar framkvæmdir, hver er þá tryggingin fyrir því, að betur tækist til, þó að lögreglustjórinn hefði lögfræðipróf? Meinar hv. frsm. þá, að lögreglustjóri mundi bara fyrir það, að hann væri lögfræðingur, ef hann væri það, hafa kennt lögregluþjónunum betur og búið þá betur undir starf sitt, svo að slík mistök kæmu síður fyrir? Og, svo að ég haldi mig við þetta dæmi, ef lögreglustjóranum núverandi hefur láðst að segja lögregluþjónunum nógu skýrt fyrir um handtökur, þá vil ég meina, að hann eigi sök á þessu, svo að hann væri þá ekki hreinn af þessu máli. En mér skildist, að hv. frsm. vildi meina, að lögreglustjórinn ætti ekki sök á þessum mistökum, og ég held, að það sé rétt, hvorki að honum hafi láðst að gefa lögregluþjónunum réttar reglur um það, hvernig handtökur ætti að framkvæma, né að hann eigi aðra sök í þessu máli. Ég held því, að þetta sérstaka atriði, sem vitnað hefur verið til hér, sé einskis vert til að styðja skoðun hv. frsm. í þessu efni né skoðun meiri hl. n. En kannske er einmitt þetta dæmi ljós bending um það, hver vandi er á höndum þessa manns að undirbúa lögregluliðið, — ekki með neinni lögspeki, heldur með langri þjálfun. Það hygg ég það sanna í málinu. Enda má fara nærri um það, hvernig aðrar þjóðir haga sínu mannvali til þessa starfs. Ég treysti mér að vísu ekki til að dæma um þessi mál meðal annarra þjóða, en vel má vera, að lögfræðipróf sé ein af þeim kröfum, sem gerðar eru þar til lögreglustjóra. En þann kunnugleika hef ég víða að, að hlutaðeigandi menn í öðrum löndum gera miklu meiri kröfur til lögreglustjóranna en lögfræðiprófið eitt, og enginn annar en sá, sem getur uppfyllt þær kröfur, fær veitingu fyrir slíku embætti.
Um hin atriðin, sem hv. frsm. drap á, svo sem heilbrigðismál og eftirlit með útlendingum og útgáfu vegabréfa o. þ. h., er það að segja, að sumt af þessu er skrifstofuvinna, sem þarf ekki sérstaka þekkingu til að inna af hendi, og ekki meira en mörg störf, sem tíðkast í öðrum stofnunum. Held ég, að það þurfi alls ekki að koma í bág við þau störf, þó að lögreglustjóri sé ekki lögfræðingur.
Ég ætla ekki að fjölyrða meira um þetta. Ég hef skrifað ýtarlegt nál., þar sem vikið er nánar að ýmsum atriðum, og get ég vísað til þess að öðru leyti. Mér má í sjálfu sér í léttu rúmi liggja út af fyrir sig, hvort brtt. mín verður samþ. eða ekki. Ég þykist hafa gert skyldu mína, bæði með flutningi hennar og með því að benda á, að það muni vera hyggilegra að gæta fleiri atriða en aðeins lögfræðiprófs við veitingu lögreglustjóraembætta. En hitt kann ég þó ekki við, að þingið, eftir því sem það hefur aðstöðu til við skipun l., hvort sem um þetta efni er. að ræða eða annað, reyni ekki að vanda lagasetningu sem bezt, til þess að l. verði framkvæmd sem bezt fyrir þegna þjóðfélagsins. En það er þeirra mál, sem að því kunna að standa, ef þetta mál verður afgreitt með þeim einfaldleik og ófullkomleik, sem málið hefur nú, ef það tekur ekki neinum breyt.