20.10.1943
Neðri deild: 34. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 433 í B-deild Alþingistíðinda. (467)

35. mál, dómsmálastörf, lögreglustjórn, gjaldheimta o.fl. í Reykjavík

Sigfús Sigurhjartarson:

Herra forseti. Það voru aðeins örfá orð út af brtt. 198. Hv. 4. þm. Reykv. virtist líta svo á, að þessi till. væri ekki frambærileg vegna þess fyrst og fremst, að eftir henni ættu tveir aðilar að fara með þetta veitingarvald, og taldi hann það vera í ósamræmi við önnur l. og reglur og aðeins einn aðili ætti um það að fjalla, eftir því, hvor veitingarvaldið fengi. En þetta er hinn mesti misskilningur. Það er fjöldi embætta í landinu þannig veittur, að það eru fleiri en einn aðili, sem fjalla um málið. Ég vil benda á stétt eins og t. d. prestastéttina. Um þau mál fjallar söfnuðurinn og biskupinn, en hið eiginlega veitingarvald er í höndum ríkisstj. Það má benda á kennarastéttina. Þar fjalla þrír aðilar um málið, í fyrsta lagi formaður skólanefndar, fræðslumálastjóri og loks ríkisstj., svo að það er tiltölulega algengt, að fleiri en einn aðili fjalli um það, þegar um veitingu opinberra embætta er að ræða. Ég get svo aðeins drepið á það, sem kom fram hjá hæstv. dómsmrh. Hann leit svo á, að það væri ekki rétt að setja slík sérákvæði um lögreglustjórann í Reykjavík. Það væri eðlilegt, að það sama gilti í öllum lögreglustjóraembættum landsins, og gæti hann því ekki fallizt á þetta. Það er kunnugt, að lögreglustjóraembættið í Reykjavík er með allt öðrum hætti en slík embætti utan Reykjavíkur. Þar fara lögreglustjórarnir með dómsvaldið, en það gerir lögreglustjórinn í Reykjavík ekki. Hans eina starf er að stjórna lögreglunni í Reykjavík. Ég skal svo fara nokkrum almennum orðum um þau rök, sem liggja að þessari till. Þá er þess fyrst að minnast, að það fjölmenna lögreglulið, sem lögreglustjóri stjórnar, 80 manns, er að mestu leyti kostað af Reykjavíkurbæ eða að 5/6 hlutum. Þetta lögreglulið er þannig valið, að lögreglustjóri gerir till. um það, hverjir skuli í liðinu vera, en bæjarstj. hefur synjunarvald, sem er í rauninni ekkert annað en það, að veitingarvaldið er formlega hjá bæjarstj., en í framkvæmdinni hefur bæjarstj. ekkert annað vald en synjunarvald gagnvart þeim till., sem lögreglustjóri leggur fram. Þá vil ég benda á það, að samkvæmt fleiri en einum uppkveðnum dómi ber bæjarsjóður fjárhagslega ábyrgð á axarsköftum lögreglustjóra, og hann hefur verið dæmdur í allstórar fésektir, vegna þess að lögreglustjóri hefur vikið lögreglumönnum úr embætti. Bæjarsjóður hefur líka verið dæmdur til að greiða skaðabætur, vegna þess að hlotizt hafa meiðsl á borgurum í bænum í viðskiptum við lögregluna. Allt þetta sýnir, hversu mikið bæjarstjórn á undir því, að hæfur og góður maður skipi lögreglustjóraembættið. Og það er sízt ófyrirsynju, að það sé í l. sett, að enginn sá maður verði í þetta starf kjörinn, sem bæjarstj. fellst ekki á. Sambandið á milli bæjarstj. og ríkisstj. yrði þá að þessu leyti það sama og nú er á milli lögreglustjóra og bæjarstj. um lögregluþjónavalið, og þetta er að vissu leyti mjög eðlilegt. Ég skal svo ekki fjölyrða meira um þetta. Ég vænti þess, að hv. þm. fallist á það, að bæjarstj. fái þetta vald, og fallist á það, að þetta sé ekki í neinu ósamræmi við það, sem gerist um aðra embættaveitingu, og sjái, að þetta er í fullu samræmi við það, sem viðgengst um val lögreglustjóra í Reykjavík. Hitt get ég svo fallizt á með hæstv. dómsmrh., að spursmálið um lögregluna í heild mætti koma til endurskoðunar, og hver eigi að bera ábyrgð á henni, hver eigi að bera kostnaðinn af henni, ríkið eða bæjarfélögin. Eins og fyrirkomulagið er, er það hvorki fugl né fiskur, það er í rauninni mesta vandræðafyrirkomulag. En meðan það er svo, er það eðlilegt, að enginn verði í lögreglustjóraembættið settur nema sá, sem bæjarstj. getur fallizt á, að þar sé.