22.11.1943
Efri deild: 53. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 445 í B-deild Alþingistíðinda. (486)

35. mál, dómsmálastörf, lögreglustjórn, gjaldheimta o.fl. í Reykjavík

Dómsmrh. (Einar Arnórsson) :

Hv. þm. Barð. hefur nú látið ljós sitt skína í þessu máli á ýmsa lund. Hann dró í efa, að þörf væri á að skipta þessu embætti. (GJ: Ég sagði, að það vantaði upplýsingar um það). Átti að gera það með því að leggja fram skýrslu um lögtök, uppboð, dómsmál, allar þinglýsingar o. s. frv., sem fara fram í þessu embætti? Öllum, sem til þekkja og ég hef talað við, ber saman um, að brýna nauðsyn beri til að gera þessar ráðstafanir.

Hv. þm. tók svo djúpt í árinni, að hann sagði, að það væri óþinglegt, að embættinu væri skipt, án þess að fyrir lægi grg. um þann kostnað, sem af því leiddi. Bæjarfógetaembættinu í Rvík var fyrst skipt árið 1907. Þá var ekki lögð fram nein grg. um þetta. Þá var því skipt 1918 og 1928, og loks var sakadómaraembættinu skipt árið 1939, og ég veit ekki til, að í neitt skiptið hafi legið fyrir slík grg., enda er ekki auðvelt að láta gera hana. Í öll þessi skipti var málið borið fram á jafnóþinglegan hátt og nú. Það var mikið mein, að þessi hv. þm. skyldi ekki vera kominn þá á þing til að gefa þinginu ráðleggingar um þetta.

Það er eins með þá hugsanlegu nýju stöðu, sem lögreglustjóri eða einhver annar verður skipaður í. Það er ekki gott að gefa nákvæmar upplýsingar um, hvað það muni kosta. Hins vegar geri ég ráð fyrir, að rás viðburðanna greini slíkt sjálf mjög bráðlega eftir stríðið og kannske fyrr, sem verður að gera þær ráðstafanir. Við þurfum ekki að nefna það mál. Ég veit, að öll um þingheimi er kunnugt um það.

Annars held ég, að mér sé óhætt að segja, að ekki sé útlit fyrir, að mikill kostnaðarauki verði af skiptingu lögreglustjóraembættisins. Ég hef a. m. k. heyrt þá, sem því eru kunnugastir, halda fram, að húsakynni geti verið þau sömu og nú, það er aðeins verkaskiptingin, að tveir menn verða hvor yfir sínu starfi í staðinn fyrir einn nú. Annars get ég ekki um það sagt í einstökum atriðum, en ég get hugsað, að höfuðbreyt. verði sú, að þarna verða tveir æðstu menn í staðinn fyrir einn nú. Ég vænti þess, að þeir skipti fulltrúunum á milli sín, og auðvitað falla fleiri fulltrúar undir bæjarfógetann, því að undir hann heyra lögtök, fjárnám og fógetagerðir.