23.11.1943
Efri deild: 54. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 446 í B-deild Alþingistíðinda. (488)
35. mál, dómsmálastörf, lögreglustjórn, gjaldheimta o.fl. í Reykjavík
Bernharð Stefánsson:
Ég hef ekki rétt til þess að gera nema stutta athugasemd, enda skal ég vera fáorður.
Hv. 6. þm. Reykv. beindi þessu máli í gær inn á aðrar brautir en beinlínis komu málinu við. Út af því, sem hann og hæstv. dómsmrh. minntust á kostnað lögregluhalds og hver skyldi greiða hann, vil ég benda á, að ríkið greiðir 1/6 kostnaðar. Ég álít sanngjarnt, að ríkið greiði eitthvað, m. ö. o. sem svarar því, sem hægt er að segja, að lögreglan vinni í þarfir ríkisins og þjóðfélagsins í heild. Hvort það er hæfilega metið að 1/6 eða hvort það ætti að vera meira, skal ég ekki segja um. En hitt tel ég rangt, að ríkið greiði allt, eins og t. d. að stjórna umferð á götum bæjanna, fylgja heim krökkum, sem hafa villzt, tína saman hluti, sem fólk hefur týnt o. s. frv. Ég sé ekki, að ríkinu komi þetta beint við, en ég hygg, að talsvert af starfi lögreglunnar sé beint í þágu borgaranna í bæjunum, en ekki í þjónustu ríkisins. En ég skal ekki ræða mikið um það nú. Það verður sjálfsagt tækifæri til þess seinna, þegar borgarstjórinn kemur með frv., sem hann var að boða í gær.
Þá tók hann sér í munn þann róg, að við framsóknarmenn værum sérstaklega óvinveittir Rvík. Ég leyfi mér að mótmæla þeim orðum, sem hann hafði um þetta.
Hér var áðan afgr. frv. um, að ríkið greiddi fyrir því að setja á fót hér í Rvík eitt stærsta atvinnufyrirtækið, sem sett hefur verið á fót hér á landi, og veit ég ekki betur en framsóknarmenn eigi sinn hlut í framgangi þess máls. Það var ekki einn maður á móti því, og mætti benda á fleiri dæmi, þar sem við framsóknarmenn höfum stutt sanngjörn mál Rvíkur eins og aðrir.
Hv. 6. þm. Reykv. er fæddur og alinn upp í þessari borg og hefur vanizt þessum rógi frá blautu barnsbeini og trúir ef til vill þessu sjálfur. A. m. k. hefur það vakið sérstaka athygli hans, að ég hef sagt í blaðaviðtali, að Reykvíkingar væru ekki verri menn en aðrir, — eins og hann væri hissa á því, að ég, framsóknarmaðurinn, skyldi segja það. Og hann veik að því, að ég mundi vera að batna, úr því að ég hefði komið auga á þetta.
Ég hef aldrei talið, að sá 1/3 þjóðarinnar, sem hér býr; væri verri en aðrir landsmenn. En það er annað: Ég álít, að Reykvíkingar hafi að mörgu leyti verri forustu en aðrir, bæði andlega og líkamlega, ef svo má að orði kveða. Ég skal taka það fram, að þegar ég tala um andlega forustu, á ég ekki við prestana. Þeir eru flestir, ef ekki allir, mætir menn og áhugasamir í sínu starfi. Ég á við dagblöðin. Það er sú andlega forusta, sem hefur meira að segja en orð prestanna, því miður. Það eru dagblöðin hér í Reykjavík, sem eru hér með þennan sífellda róg um okkur framsóknarmenn, sem hv. 6. þm. Reykv. tók sér í munn sér til vansæmdar. Við höfum ekki dagblað til að hnekkja þeim rógi og ekki svo mikið fylgi hér í Rvík, að við megnum að vinna á móti honum. En þessi rógstarfsemi blaðanna hefur haft þau áhrif, að óvandaðir menn þykjast hafa rétt til að vaða upp á okkur með svívirðingum á opinberum stöðum. Ég a. m. k. hef orðið fyrir því. Það er búið að ala Reykvíkinga svo upp, að þeir virðast líta á okkur framsóknarmenn eins og nazistar líta á Gyðinga.
Þessi hv. þm. var áðan að kvarta um, að Rvík hefði orðið fyrir misrétti í löggjöf og setið við verri kost en aðrir landshlutar. Ég lít öðruvísi á það mál. Hér er og hefur ávallt verið allur þorri embættismanna landsins. Hér er mikil verzlun og atvinnurekstur. Það er ekki lítið fé, sem Rvík fær frá þessum aðilum. En hvað um það. Hafi Rvík einhvern tíma orðið fyrir misrétti, þá er það liðið, því að síðan síðasta kjördæmabreyt. var gerð, ræður Rvík öllu — bókstaflega öllu. Reykvíkingar eru einráðir um landsmál, svo að það jafnar líklega metin. Og við heyrum það, við sem erum utan af landi, að við eigum ekki að vera að blanda okkur inn í mál hér. Ég man ekki betur en hv. þm. Barð. væri nýlega kallaður „útkjálkaþingmaður“ og gefið í skyn, að hann ætti ekki að láta mál fjölmennisins hér til sín taka.
Þau orð, sem borgarstjóri mælti hér á þingi í gær, voru honum til minnkunar og annað ekki, og er furða, að hann — í svo virðulegri stöðu sem hann — skuli taka sér slík orð í munn á þessum stað.