23.11.1943
Efri deild: 54. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 448 í B-deild Alþingistíðinda. (490)
35. mál, dómsmálastörf, lögreglustjórn, gjaldheimta o.fl. í Reykjavík
Bjarni Benediktsson:
Það er rangt, sem hv. 1. þm. Eyf. sagði, að ég hefði byrjað hér á þessum skætingi. Það var hann, sem byrjaði þessa orðasennu með ósæmilegum orðum í minn garð. Og það er ekki von, að hann muni orð flokksmanna sinna frá fyrri tíma, ef hann man ekki orð sín frá degi til dags.
Annars verð ég að biðjast afsökunar á því, að ég sagði í gær, að hann væri búinn að sitja 25 ár á þ. Þau eru bara 20. Það er sjálfsagt að láta þá leiðréttingu koma fram, og skil ég ekki í, að maður skuli ekki muna slíkt, því að vanalega finnst manni það leiða hafa verið sem lengst, en þingseta þessa hv. þm. getur ekki hafa verið á þann hátt. Þess vegna verð ég að biðjast afsökunar á misminni mínu.
Varðandi þau orð, sem ég minntist á úr viðtali hans í Tímanum, þá virtist mér þau alls ekki bera vott um, að hann væri horfinn frá sinni fyrri skoðun á Reykvíkingum. Hann sagði þar, að þeir væru ekki „í sjálfu sér“ verri en aðrir landsmenn, og í því virtist liggja það, að hann væri þeirrar skoðunar, að hvernig sem innræti þeirra kynni að vera, þá yrðu þeir verri af að vera í Rvík.
Ég veit ekki, hvernig því væri tekið af honum eða sveitafólki almennt, ef Reykvíkingar kæmu með hátíðlegar yfirlýsingar um, að sveitafólkið væri „ekki verra en annað fólk“. Ætli það þætti ekki lýsa sjálfsánægju og sjálfsdirfsku að vera með slíkar fullyrðingar um 1/3 landsmanna? Eins verð ég að segja, að það lýsir flokkslegri sjálfsánægju og að „litlu verður Vöggur feginn“, að Framsfl. skyldi ekki standa upp á þ. og leggja til, að skipasmíðastöðin skyldi verða byggð í Mývatnssveit eða Bárðardal. A. m. k. virðist hann vilja láta þakka sér og sínum flokksmönnum, að þeir skyldu fylgja því, að skipasmíðastöðin yrði reist hér.
En annars, eins og hv. þm. Barð. gat hér um, þá fer því fjarri, að Rvík sé sýnd einhver sérstök tillátssemi með samþykkt hafnarlagafrv. fyrir þá borg, sem hér er nú á dagskrá. Ég kann vel að meta það og er þakklátur fyrir það, þótt í því felist raunar ekki annað en það, sem öðrum stöðum hefur þegar verið veitt. Enda hefur enginn hv. þm. staðið upp í þessari hv. d. til að þakka sér fyrir að sýna Rvík sérstaka velvild með því að greiða þessu frv. atkv., sem þýðir ekki annað en Rvík fái að njóta jafnréttis á við aðra bæi, nema hv. 1. þm. Eyf. Ég skal þó að vísu játa það, að það væri þakklætisvert af hendi Framsfl., ef hann breytti framkomu sinni gagnvart þessari borg í þá átt, að hann færi að unna henni hins sjálfsagðasta réttlætis. Þótt hv. þm. talaði um það í nokkra daga, þá væri það afsökunarvert, svo mikil tímamót sem það væru í sögu flokksins, og mundi það afla honum meira fylgis en hann hefur notið hér undanfarið.
Varðandi ummæli hv. þm. um dagblöðin hér og að Framsfl. ætti ekki þess kost á við hina flokkana að afla sér fylgis hér, af því að hann héldi ekki úti neinu dagblaði, þá vil ég minna á, að sú var tíðin, að þessi flokkur gaf hér út dagblað. En það hefur sennilega verið af því að Reykvíkingar voru lakari en annar landslýður, að þeim geðjaðist ekki þetta blað.
Hitt er svo annað mál, þegar sá hv. þm., sem viðtalið birtist við í Tímanum um daginn, er hér með helgislepju og fagurgala að tala um þá velvild, er hann sýni Reykvíkingum með því að greiða atkv. með því, að þeir njóti jafnréttis á við aðra landsmenn.