21.09.1943
Neðri deild: 20. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 460 í B-deild Alþingistíðinda. (513)
36. mál, kjötmat o.fl.
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Þessi brtt., sem ég ber hér fram á þskj. nr. 55, fer fram á tvennt, — í fyrsta lagi, að bætt sé inn í l. ákvæði um það, að sá greinarmunur, sem fram kemur í flokkun við sölu á kjöti t. d. í Englandi, verði látinn koma fram í verði kjötsins til bænda. Þessi till. er gerð af mér, af því að mér er kunnugt um, að þetta hefur verið framkvæmt töluvert misjafnt eftir því, hvar er á landinu. Okkur, sem höfum átt að hafa það verk með höndum að reyna að stuðla að því, að bændur legðu sig fram um að eiga gott fé, sem gæfi gott kjöt og seldist vel á erlendum markaði, hefur verið það til tafar í að ná árangri af starfi okkar, að sá greinarmunur, sem fram hefur komið í verði á kindakjöti okkar á erlendum markaði eftir gæðamati, hefur ekki verið látinn koma nægilega fram í verðinu til bænda. Sums staðar hefur þessi greinarmunur verið látinn koma fram alveg, sums staðar að nokkru leyti og sums staðar alls ekki neitt í verðinu til bænda. Þessi till. er flutt af mér til þess að bóndinn, sem leggur inn tiltölulega mest af þeim skrokkum, sem í hæstum verðflokkum teljast, fái tilsvarandi hæst verð fyrir sitt kjöt, en ekki, að nokkur hlutinn af raunverulegu verði fyrir kjöt hans verði tekinn af honum og lagður við það, sem aðrir fá fyrir sitt kjöt, sem þó er lakari vara og í öðrum lægri verðflokkum.
Í öðru lagi finnst mér eðlilegt, — og það er annar tilgangur minn með þessari brtt., að það náist, — að sá munur, sem þarna er á verðinu í Englandi, komi tilsvarandi fram í mismun á verði kjöts til neytenda innanlands. Mér er ljóst, að það er erfitt að framkvæma þetta til fulls gagnvart neytendum. En það hefur verið reynt í öðrum löndum annaðhvort með því, að sumar búðir hafa aðeins selt 1. flokks kjöt og aðrar búðir aðeins annað kjöt en 1. flokks. Hætt er við því, að yrði þessi leið farin hér, yrði umsetning í báðum búðunum of lítil, og þyrfti því að leggja meira á kjötið en nú er gert. Þá hefur verið reynt að láta stimpla á sex stöðum á hvern skrokk, í hvaða gæðaflokki hann er. Finnst mér það vel framkvæmanlegt hér, og væri þá stimplað á bóg, miðja síðu og læri. Þetta mundi koma að fullu gagni í heildsölunni og þegar menn keyptu heila skrokka af smásölum og jafnvel þó að þeir væru nokkuð hlutaðir í sundur í smásölunni. Ég veit að vísu, að menn, sem vilja brjóta lög og vilja græða á því að brjóta lög, geta náð í nokkra bita víðs vegar af skrokkunum, sem þeir geta selt með öðru verði en slíkir stimplar, sem ég hef nefnt, segja til um. En ég held, að þessa stimplunaraðferð yrði að taka upp, ef þessi flokkun á kjötinu til neytenda yrði upp tekin. Ég hef ekki komið fram með brtt. við þessa brtt. mína á þskj. 55, af því að mér skildist á einum nm., að n. mundi yfirleitt vera með brtt., en væri hálfhrædd við að færa þennan mismun á verð kjötsins til neytendanna. Þess vegna hef ég ekki slegið þann varnagla eins og t. d. að setja framan við brtt. mína: „Eftir því, sem við verður komið“ — því að ég átti von á því frá nefndinni.
Það er svipað um þetta mál að segja og það, að ekki fæst gerður mismunur á verði til bænda fyrir mjólk, þó að sumir bændur framleiði mjólk, sem hefur 3,2% fitumagn, en aðrir mjólk með 5% fitumagni. Þess vegna er eins og maður tali fyrir daufum eyrum, er maður talar um, að langmest sé áríðandi að framleiða góða mjólk. Það er ekki enn komið í kring, að mönnum sé mismunað um verð fyrir mjólkina eftir gæðum hennar alls staðar á landinu. Og hinir, sem slátra úti um land, hafa það eins með kjötið; þeir gera ekki mismun á verði þess til framleiðendanna eftir gæðum þess, og verður það til þess að draga úr viðleitni manna til að ná þeim vörugæðum um kjötið, sem á að ná. En til þess að reyna að ráða bót á þessu hef ég flutt brtt. mína.