21.09.1943
Neðri deild: 20. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 464 í B-deild Alþingistíðinda. (519)

36. mál, kjötmat o.fl.

Frsm. (Jón Sigurðsson) :

Hv. flm. þessarar brtt., sem rætt hefur verið um, hefur gert grein fyrir henni. Og ég er hans ástæðum fyrir brtt. fyllilega sammála. En ég hef ekki trú á því, eins og till. hans er orðuð og í raun og veru ekki heldur eftir henni eins og hann hefur endurbætt hana með skrifl. brtt., að ákvæði brtt. bæti verulega úr. Það, sem gerði það að verkum, að n. sá sér ekki fært að fylgja þessari brtt. óskipt, var fyrst og fremst það, hvernig flokkuninni er háttað. Mér skilst, að eftir frv. gildi þetta mat á kjöti jafnt um það kjöt, sem ætlað er til útflutnings, og um hitt, sem selt er innanlands. En eftir þeim reglum, sem fylgt hefur verið í flokkun kjötsins og ég býst við, að fylgt verði hér eftir, þá minnir mig, að 1. og 2. flokkur séu í sex undirflokkum hvor og 3. flokkur, hygg ég, að sé í a. m. k. tveim undirflokkum, og svo er 4. flokkur, úrgangskjötið, sem ég veit ekki, í hve mörgum undirflokkum er. Með slíkum flokkafjölda virtist okkur í n. það ekki koma til mála, að það væri greinilegur munur gerður á þessu öllu í kjötbúðunum, því að úr þessu yrði sú vitleysa, að enginn maður gæti farið eftir þessu. Ég hygg, að hyggilegast hefði verið að breyta brtt. á þann veg, að gera skyldi þennan greinarmun á kjötinu, hvað verðið snertir, eftir gæðum eftir aðalflokkum þess, en gengið væri í útsölunni fram hjá undirflokkuninni. Þannig væri þetta frekast framkvæmanlegt og mestar líkur til þess, að það gæti komið að gagni, a. m. k. fyrir neytendur.