29.09.1943
Efri deild: 26. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 466 í B-deild Alþingistíðinda. (526)
36. mál, kjötmat o.fl.
Bjarni Benediktsson:
Herra forseti. Út af fyrir sig mundi ekkert vera við það að athuga, þótt jafnstrangar reglur séu látnar gilda um meðferð á kjöti, sem selt er á innlendum markaði og útlendum markaði. En eftir því, sem málið liggur hér fyrir, og samkv. meðferð á því í Nd., þá sýnist mér, að hér muni tilætlunin alls ekki vera sú að bæta hag neytenda frá því, sem verið hefur, heldur hljóti hún að vera einhver önnur.
Það er vitað mál, að þegar kjöt er flokkað til útlanda, þá miðast verð þess og möguleikar til sölu við það, í hvaða flokk kjötið lendir.
Við meðferð þessa máls í Nd. lagði form. landbn. það til, að bæta skuli við þessa gr. því, að gera skuli eðlilegan mismun á verði á kjöti, bæði til framleiðenda og neytenda. Eftir því, sem mér hefur skilizt, hefur þessi till. verið felld af Nd., enda kemur það heim við upplýsingar, sem ég hef aflað mér annars staðar frá, að ekki er farið að hreyfa við þessu kjötmati, sem hér átti að fara fram, og að þetta hefur ekki haft nokkur áhrif á verð eða flokkun kjöts til neytenda. Ég verð því að spyrja: Til hvers er verið að lögleiða þetta? Getur Alþ. verið þekkt fyrir að samþ. flokkun á kjöti, en fella jafnframt, að verðmismunur eigi að koma fram á betra og lakara kjöti? Hvað vakir fyrir Alþ. með setningu þessara laga, og hvað vakir fyrir atvmrh., sem lagði til, að málið færi gegnum d. og taldi nauðsyn á, að þetta næði fram að ganga, áður en sláturtíð byrjaði, úr því að ætlunin er sú, að þetta á ekki að hafa nein áhrif né koma að gagni fyrir neytendur? Hitt er annað mál, að lög um þetta efni breyta hér litlu og munu skv. áliti hv. Nd. ekki hafa áhrif á verð það, sem bændur fá fyrir kjötið.
En það er gengið fram hjá ýmsu, sem miður fer um meðferð kjötsins, og má vera, að erfitt sé að leiðrétta það.
Í núgildandi kjötmatslögum segir, að læknisskoðun skuli fram fara á kjötinu, ef það er ætlað til útflutnings. Er það verjandi að strangari heilbrigðisregiur gildi um meðferð þeirrar vöru, sem út er flutt, en hinnar, sem seld er á innlendum markaði? Og er það verjandi, eftir að farið er að halda verðlagi útflutts kjöts uppi með verðuppbótum? Ég get ekki séð, að það sé verjandi, og ef gera á neytendur rólega, þá er það fyrsta ráðið að láta þá fá betri vöru, bæta mat kjötsins, svo að þeir geti valið um til dæmis 1. eða 2. flokk, eins og hv. 1. þm. N.-M. lagði til. En sú till. var felld. Yrði þá að láta fram fara raunverulega skoðun á því kjöti, sem fara á til sölu innanlands.
Mér hafa sem borgarstjóra borizt málaleitanir um eftirlit með meðferð kjöts og að komið yrði á strangri skoðun á því.
Í 9. gr. kjötmatslaga frá 19. júní 1933 er gert ráð fyrir, að bæjarstjórnir hafi sérstakan stað, sem ætlaður sé til skoðunar á því kjöti, sem að er flutt ómerkt. Þessu ákvæði hefur ekki verið framfylgt, og eru það þó ekki mikil útlát að hafa slíkan stað. En ef honum á annað borð er komið upp, verður hann að koma að gagni, því að það er ekkert aukaatriði, að ekki skuli vera séð fyrir tryggri skoðun á því kjöti, sem neytt er innanlands, eins og hinu, sem selt er á erlendum markaði.
Með leyfi hv. forseta ætla ég að lesa hér kafla úr bréfi, sem mér hefur borizt frá Félagi kjötverzlana í Reykjavík:
„Okkur er iðulega boðin til sölu vara, sem ekki mundi vera álitinn mannamatur á erlendum markaði, enda getur hver sagt sér sjálfur, þótt aldrei hafi nálægt kjötsölu komið, hvernig t. d. frosið kjöt, sem er flutt utan af landi í kælilausu skipi, muni líta út hingað komið, ef það þarf svo að bíða hér svo og svo lengi uppskipunar — stundum af hernaðarástæðum, — og þar af leiðandi orðið frostlaust, — þá finnst okkur það ekki lengur boðleg vara við fyllsta verði.
Einnig er það algengt, að kjöt sé blettað, sem orsakast af því, að frostið er ekki nógu mikið á geymslustað, svo og einnig, að kjötið er blóðugt og óhreint frá slátrun.“
Þetta segir nú í bréfi frá Félagi kjötverzlana, og má af því vera ljóst, að eigi er lögð næg áherzla á góða meðferð kjötsins, en sú hlið málsins kemur ekki fram í frv. Þetta er atriði, sem heyrir undir matvælaeftirlit ríkisins skv. l. frá 1936. Ríkisstj. á skv. þeim að hafa eftirlit kjötsins með höndum að þessu leyti. Nú segi ég ekki, að ríkisstj. hafi ekki viljað allt gott gera í þessu efni, en aðgerðir hennar hafa verið ófullnægjandi.
Það er nauðsynlegt, að settar verði framkvæmanlegar reglur um meðferð kjötsins, þar sem ekki verður fram hjá því gengið, að henni er stórlega ábótavant.
Ég vildi óska eftir nánari skýringum frá n., sem mælir með framgangi frv., um það, hvað fyrir flm. þess vaki þegar neytendurnir eiga ekki að fá að kaupa kjötið á mismunandi verði eftir gæðum þess. Það geta verið einhverjar huldar ástæður, sem liggja á bak við og ekki eru komnar fram.
Mér hefði fundizt eðlilegt, að málið yrði tekið til nánari athugunar, áður en lengra er farið. Ég vil þó ekki gera það að tillögu minni, fyrr en ég hef heyrt hinar duldu ástæður, sem búast má við, að liggi á bak við.